Muninn - 14.12.1989, Page 14
des ræða formanns:
1.
Ágæti skólameistari.
Virðulegu kennarar.
Nemendur og aðrir gestir.
í dag er 1. desember.
Og hvað merkir það í hugum okkar
íslendinga?
Vekur það okkur til umhugsunar
að eitt árið enn er liðið síðan þessi
litla þjóð varð fullvalda ríki í konungs-
sambandi við Danmörku, eða finnst
fólki þetta aðeins vera frídagur í skóla
án þess að nokkur ástæða sé ljós?
Nú er liðið 71 ár síðan sá atburður
varð við stjómarráðshúsið í Reykjavík
að fullveldi okkar varð að veruleika og
við unnum merkan áfangasigur í bar-
áttu okkar fyrir sjálfstæði þjóðarinnar.
Það er sárt til þess að hugsa að við
skulum ekki vera meðvitaðri um að
einmitt þama er upphaflð að þeirri
hagsæld sem, við búum við nú.
Ungir íslendingar em komnir vel á
veg að gleyma 1. desember, en ljóst
má vera að þessi dagur væri fallinn
enn dýpra í myrkur skuggans ef hann
hefði ekki verið helsti hátíðisdagur
stúdenta, sem þá hafa jafnan haldið
miklar samkomur, sem hefur verið
útvarpað í Ríkisútvarpinu. í skólan-
um okkar hefur fullveldisins hins vegar
verið minnst á hveiju ári frá 1918,
framan af með sérstakri fullveldishátíð
en síðasta aldarfjórðunginn hefur árs-
hátíð skólans jafnframt verið 1. desem-
ber. Það má því segja að þessar tvær
menntastofnanir, Háskóli íslands og
Menntaskólinn á Akureyri, hafl einkum
haldið á lofti minningu dagsins.
Ef til vill getur það hjálpað okkur
nútímafólki að gera okkur grein fyrir
því hve merkur áfangi var að öðlast
fullveldi ef við lítum í kringum okkur
og sjáum að nú, á allra síðustu vikum,
hafa milljónir manna, sem í heimi
nútímans búa rétt hjá okkur, verið að
fá sambærileg réttindi þeim sem við
náðum 1. desember 1918 og síðar með
stofmm lýðveldisins 1944.
Við verðum djúpt snortin þegar
okkur berast fregnir af því að jám-
tjaldið riðlast og múrar falla og þjóðir
öðlast frelsi eftir áralanga áþján. En
víst má telja að okkur gengi betur að
slqmja og skilja þær tilflnningar sem
bærast í hjörtum þessa fólks ef við
geymdum í bijóstum okkar skýrari
mynd af þeirri reynslu sem fólk varð
fyrir hér á landi fyrir nákvæmlega 71
ári. Við höftim nefnilega ekki alltaf
verið frjáls og við fengum ekld frelsi án
fyrirhafriar. Við skulum vera minnug
þess.
Góðir gestir.
Við minnumst fúflveldisins hér í
kvöld og um leið er þessi samvera
okkar árshátíð skólans. Huginn,
Skólafélag Menntaskólans á Akureyri,
hefur kappkostað að gera þennan dag
eftirminnilegan og hér hafa margar
hendur lagst á einn plóg. Án áhuga
og samstarfs þeirra sem vettlingi geta
valdið gæti svona samkoma ekki átt
sér stað og Skólafélagið þakkar öflum
þeim sem hér eiga hlut að máli. En
þetta er ekki eina hátíðin á þessu
skólaári, heldur aðeins sú fyrsta.
Þetta er ekki eins og hvert annað
venjulegt skólaár, því á vordögum
verður þess minnst að liðin verða 110
ár frá stofnun Möðruvallaskóla og 60
ár frá því skólinn okkar varð mennta-
skóli. Það sýnir okkur að við stöndum
á gömlum grunni og sá grunnur er
traustur. Við höfum því æma ástæðu
til að vera í hátíðaskapi.
Verum glöð á góðri stundu.
Gleðilega hátíð.
Ólafur Ingimarsson
formaður Hugins
14
MUNINN