Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1993, Blaðsíða 13

Muninn - 01.04.1993, Blaðsíða 13
Það var einu sinni maður sem bjó í sundlaug þangað til að hann fékk astmakast. Þá þurfti hann að flytja út því að ullarpeysan hans var með ofnæmi fyrir pólíester og harðsoðnum gulrótum. Hann fór í Þórshamar og keypti sér 3 hamstra og minkaskinnsjakka og rotaði svo bifvélavirkjann með hrásalati frá Kjamafæði. Nú voru góð ráð dýr, meira að segja sæmileg ráð voru of dýr fýrir manninn þannig að hann keypti sér bara 2 léleg ráð og eitt umferðarráð, fór á Amtsbókasafnið og tók út ævisögu Guðmundar Jaka en það var bara trix til þess að blekkja neytendaeftirlitið því að hann var búinn að hækka verðið á rauðrófum mn um það bil 12 cm til vinstri. Og þá var allt til reiðu og hann gat hafið brottflutning innfæddra af flóðasvæðunum á Madagaskar, en fyrst þurfti hann að kaupa sér Víking vaðstígvél með beinni innspýtingu og þrefaldri þjófavöm. Þannig að hann fór bara í einkaumboð Vikingboots á Grænhöfðaeyjum. Þegar þangað var komið sá hann sér og öðrum til mikiUar hrellingar að hann hafði gleymt rækjusmurosti í axlaböndunum og gleymt að slökkva á örbylgjuofninum í strætóskýlinu. En heppnin var með honum því að hann átti fjarskyldan ættingja Finns Eydal sem þekkti föðurbróður afa konu sem þurfti að fara í strætó, leið 5 upp í Breiðholt og hún tók bara skiptilyklasettið úr örbylgju- ofninum og skipti um öryggi í samlokubrauðinu. Eeeeee - öööö - uuuu schmim. Mimið að greiða afnotagjöldin þú tryggir ekki eftir á nei þýðir nei jú kant bít þe ffling og nú er potturinn þrefaldur varist hundinn. Eeeeee úúúúú. Og hann hélt áfram göngu sinni um myrkvaða fmmskóga Mósambik í leit sinni að landi hins himneska friðar, landinu þar sem smjörið drýpur af trjánum, þar sem hárið vex aftur á bak ofan í þriggja hæða jógúrtdollur fylltar hinni eilífu gleði jarðarberjasósunnar með blóðmörsbragði. Góðan daginn súðvíska lúða, er þetta rétti tíminn til þess að sofa svefni hinna réttlátu? Halló, er þetta svæðisútvarp Kolbeinseyjar? Haa, er ég í beinni, ég ætlaði bara að biðja um óskalag. Já hérna, lagið Sleeping Satelhte eftir Ásgeir lúðu. Takk fyrir. Afsakið en þetta var bara smá- innlegg í umræðuna um sifjaspell. Svo ég haldi áfram þar sem frá var horfið þá var maðurinn í leit að fyrirheitna landinu, Nýju-Gíneu og Vestur- Samóaeyjum. Það bara skiptir ekki máli hvort landið varð fyrir valinu því að bæði löndin voru í beinu stjómmálasambandi við Sómalíu og Kampútseu. Og þar sem hann átti þrjár lírur keypti hann sér... díses tíminn er búinn og ég er SVANGUR. Sigurður Högni Jónsson, l.F MUNINN 13

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.