Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1923, Qupperneq 3

Heimilisblaðið - 01.08.1923, Qupperneq 3
HEIMILISBLAÐIÐ 99 °g daglegri iðju og trúna eða sannfæring- una um alveg sömu þörf og nauðsyn henn- ar og daglegs brauðs. En hafi einhver í bernsku og æsku ekki borið gæfu, eða ekki haft vit eða vilja til að taka svo góðu uppeldi í þessu efni, sem vera bar og þurfti, þá á hann, þegar hann eldist og kemst til vits og ára, að uppala Slg sjálfur til skemtilegs lífs, láta ham- lngjuþrána knýja sig til að fylgja röddu samvizkunnar, yfirbuga alla ólánsleti, hafna adri heimsku og ómensku og búa sér og öðrum marga ög mikla og verulega góða skemtun daglegs lifs, sem fylgir iðjuseminni. [Niðurl. næst]. ■£§ólcLxla£lSVÍS%ZPo (2. jttlí 1923). Blessuð fósturfoldin mín, fögur ertu að líta, þegar sumarsólin skín síð á tinda hvita, og á grænan gróðurhjúp gnúpa rnilli og stranda, og i munkyrt marardjúp milli nesja-sanda. Ó, hve heitt eg óska þá, að í mínu geði skina mælti ætíð á æsku, frið og gleði. Eg á marga mynd af þér, móðir tignarbjarta, þessi. mynd þó ávalt er inst í mínu hjarta. fí. J. ^aggan Qg l^isian, (Pýtl úr pijzku). Margur er hvilustaður mannsins hér á jörðunni og enginn er sá, er ekki þekkir tvo hina mikilvægustu. Annar hvílustaður- inn stendur þar sem lifið byrjar, hinn við enda þess. Mjög ólíkur virðist tilgangur þeirra — jafnvel algerlega gagnstæður, og samt sem áður eru þeir skyldir. Bæði vaggan og kistan eru smíðaðar úr viði. 1 skóginum var einusinni tré, sem við- urinn var höggvinn úr. Frjálslega breiddi hið skrúðgræna tré út greinar sínar og oft ogtíðum skeði það, að þreyttur ferðamaður kom og leitaði sér hvíldar og svefns við rætur þess. Að lokum var svo þetta tré felt og bútað í sundur í stærri og smærri búta og unnið úr þeim á vinnustofu. Ef til vill var og smiðað úr sama trénu vagga og kista. Vagga og kista — báðar uxu þær þannig einusinni saman sem eitt skógartré og höfðu fuglar loftsins yndi af því að leika sér á greinum þess. Báðar íklæddust þær sínum blóm- og laufskrúða á vorin, en fölnuðu aftur með haustinu. Báðar voru þær feldar með hinni bitru skógaröxi, eða af vindinum. í þeim báðum sefur maðtir. í báðum er hvild og frið að finna. Hversu saklaust liggur ekki hið litla jarðarbarn í vöggunni sinni. Eng- in neyð þrengir að því. Heiður og skir er lífshiminn þess. Er því öðruvisi varið með kistuna? Maðurinn sefur einnig í henni og hefir þar eigi lengur neina byrði að bera og engin neyð þrengir lengur að honum. En samt er svefn mannsins í kistunni frá- brugðinn svefni hans í vöggunni að því leyti, að í kistunni er hann órjúfanlegur, draumlaus og iskaldur. Hvorki stigum vér sjálfir í vögguna eða kistuna. Vér erum lögð í þær, því vér er- um hjálparlaus og veikbygð, er vér sitjum í skauti móður vorrar. Frá henni fáum vér alt það er vér þörfnumst — einnig hvíld-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.