Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1923, Qupperneq 4

Heimilisblaðið - 01.08.1923, Qupperneq 4
100 HEIMILISBLAÐIÐ ina. Hversu mjúklega hefur hún eigi barnið sitt úr skauti sér og leggur það með ástúð í vögguna. — Með dauðanum verðum vér stirðir og fölir og kraftar vorir og hreyflng þrýtur. Nú erum vér lögð í kistuna, því nú getum vér ekki lengur lagt oss sjálfir til hvildar. Vaggan og kistan — við þær báðar er grátið. Allir kannast við gleðitárin, sem speglast í augum föðursins og móðurinnar, er þau horfa á vöggu barnsins síns. Allir kannast og við tárin, sem glitra i augum barnsins, er það stendur við kistu föður síns eða móður. Foreldrarnir leggja barnið sitt í vögguna og vanalega leggja börnin foreldra sina í kistuna. Vaggan og kistan — við báðar er vonað. Björt von ris í brjóstum foreldranna, er þau standa við vöggur »augasteinanna« sinna. Þau biðja og vona, að þeim megi auðnast að ganga lifsbrautina með þeim, þar til dauðinn lætur vegi skiljast. Þau þrá að geta lifað í innilegu sambandi við börn sín. En í dauðanum verður skilnað- urinn. En vér vonum og treystum að ást- vinur megi sjá ástvin sinn á hæðum og að þeir þurfi eigi lengur að bera kvíðboga fyrir skilnaði — og þessi von er við kist- una huggun vor, atkeri vort og frelsisstjarna. Vaggan og kistan — við þær báðar er beðið. Heilagar óskir, hugsanir og tilfinn- ingar bærast í brjóstum foreldranna og þær stíga til himins, er þau standa við vöggu hins saklausa barns síns. Þau biðja Guð um hamingju og blessun fyrir það. Vér biðjum og fyrir hinum andaða manni, að hann fái mildan dóm, himnafrið og sælu. Vér biðjum og íyrir oss um vizku í lífi og dauða. Vaggan og kistan — sífelt munu þær bera menn í skauti sínu. Æ! hversu oft standa þær eigi skamt hver frá ann: ari! Stundum er aðeins eitt stundarkorn á millum þeirra. En hvort sem það er nú stutt eða langt á milli þeirra, þá eru þær báðar vöggur, önnur er: vagga, sem til- heyrir hinu jarðneska lífi, hin er: vagga, er tilheyrir því himneska. Friðjón Krisljánsson. fiséin ab veTÍa vi1\ut. Mayer Anselm Rotschild, ættfaðir Rotschildanna, var fæddur í Frankfurt 1747 af fátækum foreldrum, en dó 1812 og var þá orðinn auðugur maður og eigandi stór- banka. Hann lét eftir sig skrifaðar »reglur«, sem hann hafði nákvæmlega fylgt og höfðu orðið honum til svo mikillar blessunar. Sonur hans, James barón, lét prenta þær og hengja upp í aðalskrifstofu Rotschild- anna. Reglurnar hljóða svo: 1. Athugaðu vandlega, hvaða málefnum þú hefir mestan áhuga lyrir. 2. Hugsaðu mál þitt vandlega. Taktu siðan skjóta ákvörðun. 3. Starfaðu öruggur að áhugamálum þín- um. 4. Vertu þolinmóður, þegar á móti blæs, og veittu erfiðleikum djarflega mótspyrnu. 5. Réttlæti sé þér heilagt. 6. Segðu aldrei ósatt i verzlunarefnum þínum. 7. Vertu ekki hikandi að offra peningum, þar sem það er hyggilegt. 8. Treystu aldrei tækifærishepni. 9. Notaðu tímann vel. 10. Gerðu þér ekki far um að sýnast meiri en þú ert. 11. Láttu aldrei hugfallasl. Starfaðu óaf- látlega. Þá geturðu verið viss um, að þú kemst vel áfram í heiminum.

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.