Heimilisblaðið - 01.04.1925, Page 1
4. blað
Engill vorsins.
Sjá engill vorsins nálgast,
pví óðum hœkkar sól,
med ótal kærar gjafir
frá Ijóssins náðarstól
til okkar, sem hér búuni
við íssins kulda og él,
með ástarsælu hjarta
peim gesti fögnum vel.
Svo kom pú. engill vorsins
og kœttu hverja sál,
já, kom með Ijós og hita,
sem píði snjó og stál,
ó, kom í dýrð píns herra,
eg kœtist við pá sýn;
mér kœrleikssólin himnesk
í vorsins geislUm skín.
[Sveitabarnið]. E. E. Sverrisson.
v
Hann kemur jafnt til allra,
sem eitthvað vona og prá,
nieð ýmislegar gjafir,
sem hugann vakið fá,
til nýrrar sterkrar gleði,
til nýrra 'starfa um leið,
jd, náðarengill vorsins
pinn faðm oss móti breið.
dig stráðu rósum pínum
á barna vorra• braut,
v'ió birtu morgunroðans
um hverja fölva laut,
en vek í sœrðu hjarta
pitt vonarmilda Ijós,
°rJ varpa geislum pinum
of hverja dána rós.
Lát ungbarnshjartað njóta,
lát œskumannsins prá,
*il ódauðleikans veginn
í geislum Jnnum sjá,
°> veittu peim er sofna
að 'vakna í bœn hjá pér,
0(J vonarljósi kœttu
hvern barm, sem grátinn er.
Pálmasunnudag’sræða.
(Flutt í Grindavíkurkirkju 5. apríl 1925, af
séra Brynjólfi Magnússyni.,
Jóh. 12, 31—36.
Hér talar frelsarinn til vor um pínu sína
og dauða. Peirra atburða minnumst vér nú
í vikunni, sem er að byrja. Sú vika liefir
löngum kölluð verið »dymbilvika« eða [)ögla
vikan, og vér vitum, bvers vegna bún hefir
verið kölluð svo. Hún hefir verið kölluð svo
af pví, að allar undanfarnar kristnar kyn-
slóðir hafa viljað minnast þess með lifandi
tilfinningu, að í pessarí viku fór fram endur
fyrir löngu einn hinn stærsti sorgaratburður,
sem nokkru sinni hefir skeð i mannkynssög-
unni, er konungur sannleikans var myrtur og
kærleikurinn og sakleysið beið lægri hlut fyrir
vonskunni og grimdinni.
Pessa atburðar mintust menn um margar
aldir, méðan kærleikurinn til frelsarans var
enn heitari og ákveðnari en nú er orðið, með
pví að viðhafa sem mesta algera pögn og úti-
loka sem mest allan veraldlegan gleðskap og
hávaða úr lífi sínu í pessari viku.
Kirkjuklukkunum var ekki einu sinni liringt