Heimilisblaðið - 01.04.1925, Blaðsíða 3
HEIMILISBLAÐIÐ
51
En Jesús segir seinast í textanum: »Meðan
þér liafið ljósið, þá trúíð á ljósið og gangið í
ljósinu, svo að þér verðið ljóssins synir og
inyrkrið yfirfalli yður ekki«.
Pað geta komið jreir tímar, að ljósið verði
eins og tekið frá oss og vér getum ekki
skynjað kærleika Guðs, af Ijví að myrkur
mótlætinganna, sársaukans og sorgarinnar
yfirgnæfir og truflar hina innri sjón vora.
Svo varð j>að jafnvel einnig fyrir frelsaran-
um á Gólgata, er þjáningarnar stóðu sem
hæst og syndabyrði mannkynsins og sekt
hvíldi á honum með öllum sínum þunga. Pá
eins og myrkvaðist sjálf kærleikssólin fyrir
honum sjálfum og sambandið við föðurinn,
sem annars var svo sterkt og lifandi, að hann
aldrei efaðist um, að stæði á bak við alt sitt
líf, það sljógvaðist svo, að hann hrópaði upp
í angist sinni: »Guð minn, Guð minn, hví
hefir þú yfirgefið mig«.
En ef slíkt kom fyrir heilagan Guðs son,
hve eðlilegt er þá ekki, að slíkt geti miklu
fremur komið fyrir öss veika og synduga og
ófullkomna menn, eins og vér allir erum.
Látum oss jjví alla koma til Jesú meðan
ljósið enn skín og hinn góði og hentugi tími
er að herklæðast hertýjum trúarinnaf.
Látum engan svifta oss þeirri trú, að við
kross Krists er hjálpin og frelsið, fyrirgefn-
ingin og krafturinn og möguleikinn til þess
að byrja nýtt líf og verða Ijóssins barn og
Ijóssins sonur.
Látum engan telja oss trú um að vér get-
um sjálfir bætt fyrir synd vora og eins og
heimtað af Guði náð hans og sáluhjálp vegna
eigin verðleika. Nei, slíkt er hin mesta hroka-
og villukenning, sem oft má heyra hjá ný-
'nóðins trúarbrögðunum, sem steypa vilja
krossi Krists og setja sig í sæti frelsarans.
lJað munum vér reyna á síðustu stundu, ef
ekki fyr, er myrkrið yfirfellur í algleynfingi
°g reynir á j>að í síðasta sinni fyrir alvöru
að hafa eignast ljósið, svo gengið verði í
Ijósinu. Já, I>á munum vér reyna, að jjað
eitt hjálpar, að víta og mega reiða sig á það:
að blóð Jesú Krists hreinsar oss af allri synd
°g að fyrir hans benjar erum vér læknaðir
og höfum öðlast frið og sátt við heilagan Guð.
Betta sé hið heilaga hugleiðingarefni vort
nú í kyrru vikunni og þeim heilögum minn-
ingardögum um pínu Jesú, sem í hönd fara.
I3að fyllir hjörtu vor lotningu og þakklæti og
undirbýr þau undir páskafögnuðinn, er kirkju-
klukkurnar taka að hríngja og flytja oss boð-
skapinn: Hann er upprisinn! sem dó fyrir þig.
Hann lifir, sem fórnaði lífi sínu, svo að þú
mættir eilíflega lífa og vera barn Guðs og
sonur ljóssins.
Hjálpi oss öllum kærleikans faðir til að
verða hæfilega undirbúnir undir þann boðskap,
svo að vér þá og æfinlega, er frelsari vor
kemur til vor í' orðinu getum sagt með hin-
um fagnandi lýð hins gamla guðspjalls dags-
ins: Blessadur sé sá, sem kemur í nafni
Drottins. Hósanna í hœstum hœdum. Amen.
Sumarkveðja.
Gleðilegt sumar gefi oss
Gud, sem öllu rœdur!
Heilsum pví med hjartans koss,
heilla félagsbrœdur!
Af oss vetrar hristum hregg,
hrím úr sálum þýdum,
hvetjum bitra andans egg,
og á vaðid rídum!
Gleðilegt sumar — gull í mund
gefi peim, er starfa
og verja hverri stuttri stund
strax til góds og parfa.
Færi pad oss björg í bú
og blessun hverju standi,
sálarþrek og sanna trú
og sól Guds pessu landi.
G. G:, i Gh.
—-——