Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.04.1925, Page 5

Heimilisblaðið - 01.04.1925, Page 5
HEIMILISBLAÐIÐ Æfisaga ömmu gömlu. Eftir Jónínu Hermannsdóttur. [Framh.] Lannig leið tíminn fram að jólum. Pá var Iatð eitt laugardagskvöld að ákveðið var ;|ð ðalda dansleik í kvennaskólanum. Náttúrlega úlakkaði eg til, þó eg kynni ekki að dansa öðruvísi en í sveitinni, ])á gat ]>ó ætíð verið gaman að horfa á, enda átti eg góð föt og Þurfti ekki að vera eftirbátur stallsystra hdnna um klæðaburð. Pá var ]tað, Jiegár eg var nýkomin inn, að forstöðukonan kynti ’hig manni, sem hún nefndi Rút Ilanson. Pað var maður á meðal hæð, fölleitur með tinnu- Svört augu, dökt hár, á að gizka 19—20 ára. Víð settumst niður í einu af hliðarherbergj- únum og tókum tal saman, urðum við fljótt kunnug, jíins og unglingum er títt. Eg sagði honum, að eg værí aðkomandi í Reykjavík °g hverra manna eg væri. Hann sagði mér ;,ö hann væri læknissonur og væri á menta- skólanum, þó hann væri eigi ákveðinn í að Verða embættismaður. Pannig leið kvöldið. Við dönsuðum og töluðum saman þess á milli. Vér leiddist, þegar aðrir voru að bjóða mér llPp í dans, ])ví þá þurfti eg að skilja við Rút. ö, hvað mér fanst hann strax yndislegur °g skemtilegur, og hafa eitthvað það við sig, Sem eg hafði ekki tekið eftir hjá öðrum karl- ’áönnum. Hann var svo stillilegur, en þó svo iifsglaður. Og Jiegar loks var hætt, kl. 3 um "óttina, fylgdi Rútur mér heim, og spurði, i'vort hann mætti heimsækja mig næsta dag, Sem var sunnudagur, og livað gat eg sagt dUnað en já. Práði eg ekki einmitt þetta? ^u- þó einkennilegt væri eftir ekki lengri ' 'ðkynningu, þá fanst mér einhver óumræði- iog'ur tómleiki grípa mig4 þegar hann ætlaði tl(ð skilja við mig; og eg bjóst við að sjá óann ef til vildi aldrei aftur. Nóttin leið( þó L‘kki yrði mér svefnsafnt. Eg var nefnilega dð rifja upp fyrir mér kvöldið, hvert augna- ’ luið, hvert handtak, og yfirleitt alt, sem okkur Rúti hafði farið á milli. Pað var svo ■fudislegt að hugsa um þetta alt í nætur- •Hðinni. Og að hugsa sér að eiga að fá að 53 ' véra með honum á morgun! — Eg hrökk við, við þessar hugleiðingar. Pví var eg annars að liugsa um alt þetta. Yar þetta kannske þessi ást, sem eg oft hafði heyrt talað um? Gat hún komið svona fljótt? Var þetta ekki einhver barnaskapur? Loksins sofnaði eg út frá þessu lmgargrufli undir morgun. Skyldi Rútur koma? Eða var hann að gera að gamni sínu? Nei, það gat ekki verið. Og hann kom seinni hluta dagsins. 0, hvað eg var milli vonar og. ótta. Eg titraði af óum- ræðilegum fögnuði, er hann drap á dyr. — Hvernig átti eg að verjast ])ví, að hann sæi gleðina á mér, gleðina yfir því að hann skyldi koma. Við settumst niður og eg vildi kveykja á lampanum, því talsvert var farið að skyggja — en Rútur afraði ])ví, og sagði það væri svo skemtilegt að spjalja saman í myrkrinu. Við settumst á legubekkinn livort við annars hlið, og hann lét mig segja sér frá æskuár- um mínum. Líka sagði hann mér frá foreldr- um sínum, einkum móður sinni, sem honum ])ótti mjög vænt um. Pannig liðu dagarnir. Við Rútur hittumst oft, helzt á kvöldin og sunnudögunum. Eg taldi dagana og stundirn- ar og beið með ó])reyjn samfundanna. Og eg verð að segja það, að eg vonaði að honum ]>ætti vænt um mig, ])ví eg fann það svo glögt, aö eg elskaði hann með öllum hita og styrk sálar minnar. Pað var á aðfangadagskvöld jóla. Eg var nýkomin úr kirkjunni. 0, livað mér fanst tóm- legt heima hjá mér. Eg hafði aldrei verið að heiman frá mér þetta kvöld fyrri. Eg.þráði eitthvað, sem eg gat ])ó ekki gert mér grein fyrir livað var. Helzt það, að vera komin heim. Mun ekki fara svo fyrir flestum, sem eru að heiman á jólunum? Pá finst manni, að manni geti livergi liðið eins vel og heima, og fá að njóta ]>ar jóladýrðar og jólafagnað- ar með vinum sínum. En ]jó urðu þetta sæl- ustu jólin á æfi minni. Seint um kvöldið kom Rútur. 0, hvað eg varð glöð og hamingjusöm. Hann hafði skilið við alla jóladýrðina heima, að eins til að geta verið með mér. Og þegar hann lagði handlegginn ntan um mittið á mér og dró mig að sér og sagði: »Hulda mín,

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.