Heimilisblaðið - 01.04.1925, Page 15
HEIMILISBLAÐIÐ
63
Skuggsjá.
I’egar »Lusitania« sökk 1915 er talið að
gull- og silfurverðmæti hafi þar sokkið um 50
milj. króna virði í sjó. Nú er myndað félag í
Englandi, sem ætlar að gera tilraunir til að
ná einhverju af þessu verðmæti upp úr hafinu.
Viltar kanínur eru regluleg landplága í
Norður-Bandaríkjunum. Árið 1923 voru par
drepnar 700,000 kanínur, en pó sá ekki högg
á vatni.
Þegar hjón í Árgentínu eignast sjöunda
barnið, pá er ríkisforsetinn altaf guðfaðir pess.
í hinni gömlu Apenuborg var leiksvæði,
l'ar sem voru sæti fyrir 300,000 áhorfendur.
Talið er að nú þekkist um 172 tegundir
dýra, sem alveg eru blindar; pær lifa í höl-
Urr> niðri í jörðunni og í miklu hafdýpi.
Drotning Hollands er mikill dýravinur. Ekki
leyfir hún dýraveiðar í neinni mynd á peim
áindssvæðum, par sem hún á yfir að ráða sér-
staklega.
Tíðindum pykir pað sæta, að dóttursonur
Rockefellers gamla, drengur 17 ára, hefir ný-
^ega gerst nemandi á skrifstofu hjá einum
stórbanka í New-York.
Dkki færri en 2500 milj. appelsínur eru
urIega fluttar út frá Italíu til annara landa,
*ru Spáni um 1500 milj. og 90 milj. frá
Portúgal.
Hér f Evrópu þykir pað miður kurteist að
*le^ja samtal við ókunnan mann með því að
sPyrja hann, hvað gamall hann sé( en í Kína
ei pað siður, að ein fyrsta spurningin hjá
jnverjum er einmitt pessi: »Hvað ertu gam-
,l eða gömul?«
alkonar og svalir á húsum, sem nú er
svo mjög tíðkanlegt að hafa á húsum, sér-
staklega í suðurlöndum, var ópekt í tíð forn-
Rómverja, en er hingað til Evrópu komiö frá
Austurlöndum.
1 tilefni af pví, að í ár á að hafa sýningu
mikla í Wembley, sem er í nánd við Lund-
únaborg, hafa verið búin til 500 milj. frí-
merkja, sem sýningin er auglýst, á.
Vatnið í Tinto-fljótinu á Spáni er svo mjög
steinrunnið, að sandurinn á botni vatnsins er
sem harðasta grjót og falli steinn í vatnið,
sameinast hann strax steinum í vatninu, sem
hann hittir par fyrir. Hvorki fiskar né nokkur
önnur dýr lifa í pessu vatni.
Pegar setið var um París 1871 voru send
um hálf priðja miljón bréfa með loftballónum
og mörg hundruð bréfdúfum.
í Tokio eru ekki færri en 800 opinber
baðhús, daglega koma par um 300,000 bað-
gestir.
Japanir eru mjög hraust pjóð, kemur pað
mikið til af pví að þeir daglega iðka inn- og
útöndunaræfingar og gæta pess vandlega, aö
hafa alt af hreint loft í húsum sínum.
------------
Eldhúsráð.
Fiskiréttur.
Porskur, sem er um 6 kg. er keyptur og
úr honum tekið alt innvolsið og fiskurinn
vel skafinn og ristur frá hryggnum, síðan eru
punnildin skorin frá og pynnsti fiskurinn við
sporðinn. Fiskstykkin tvö, sem pá eru eftir,
eru látin liggja í salti einn klukkutíma og
síðan þurkað með klút. Síðan er þeim dýft
niður í eggjahvítu, sem þeytt sé í einni mat-
skeið af mjólk síðan nuddað upp úr hveiti og
steykt í palrnín, par til pað er orðið fallega
ljósbrúnt og vel steikt, í gegn.