Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.08.1925, Side 3

Heimilisblaðið - 01.08.1925, Side 3
HEIMILISBL AÐIÐ 107 Pó að lífsins sorgarsár svelli inst i barmi, Guðs barnanna gleðitár geisla jieiin á hvarmi. Ásta. --- Skólar í Japan. Japanir eru framsækin þjóð og mentunin fer sívaxandi lijá þeim. Út um alt land svo að kalla, eru reist skólahús, ekki ósvipuð sveitaskólahúsunum í Noregi og Danmörku. Gangir þú inn í skólahúsið, þá verður fyrst fyrir þér stór opinn skápur. Par hefir l'vert barn hyllu fyrir skóna sína. Hverju japönsku húsi og heimili þætti vera misboðið, °f þú gengir inn á skónum og bærir svo óþverrann af götunni inn á fótum þér. 1 hverju húsi eru fínir húkar á gólfi, í skólahúsinu líka, og með þessa dúka verður að fara svo vel og mjúklega sem unt er, því að gólfábreiður í Japan eru jafnframt bæði borð og sæti og legubekkur og hver nnxndi vilja óhreinka legubekkinn sínn eða borðið? •iapanar hafa hvorki borð, stóla né legubekki 1 dagstofum sínum og rúmið þeirra er gólfið, IJeir breiða bara dúk á það og liggur á honum. Kenslustofan er þó með líku fyrirkomu- lagi og hjá okkur, því að Japanir vilja láta hörn sín nema háttu Norðurálfumanna, að llndanteknu þessu, að gengið sé inn í húsin a skóm. Þeim eldgamla sið halda þeir í skól- Uluun sem annarsstaðar. Kenslustofurnar hjá þeim eru yfirleitt stærri °8' loftmeiri og þar af leiðandi hreinni en hjá okkur. Erfiðast veitir börnum þeirra að læra að skrifa. Japanska skrifletrið er fátæklegt, svo að þeir nota oftast nær kínverskt letur í þess stað, en kínverska letrið er næsta erfitt að |æra, eins og kunnugt er. Og oft komast þeir 1 ^tökustu vandræði, er þeir eiga að tákna Suifla hluti, sem tíðkast í Norðurálfunni, bfluti, sem aldrei hafa þekst áður þar í landi. Kín- verjar hafa orðið að bæta nýjum táknmynd- um við fyrir þá hluti, líkt og við hérna verð- um að búa til nýyrði. — Japanar sjálfir hafa 48 bókstafi, og af því að þeir nota líka lat- ínubókstafi, þá verða ritningar þeirra sumstað- ar kynlegur blendingur af þessu hvortveggja; en sarnt er þetta óðum að breytast til batn- aðar. Áður enn þú kemur inn í kenslustofuna úr anddyrinu, þá verðurðu að ganga gegnum klefa, þar sem börnin geyma nestið sitt. Par er líka skápur og sín smáhyllan þar Iranda hverjum krakka. Ef þú gengur inn í kenslustofuna, [xá standa börnin upp af því að þú ert gestur. En á kensluna er þér víst ekki til mikils að hlusia, því að þú skilur víst ekkert í henni. En eg veit, að þér þykir gaman að sjá krakkana, því að þau eru hraustleg og kvik í bragði. Lifnaðarhættir Japana eru heilnæmir, hýbýli þeirra loftgóð; börn þeirra dafna yfirleitt vel og foreldrar þeirra sýna þeinx mikla nærgætni og ástúð. Yertu börnunum samferða, þegar þau fá frímínúturnar sínar. Leikinn þeirra áttu hægra með að skilja en kensluna. En leikurinn minnir því miður á það, sem efst liggur í þjóðinni. Pau leika „bardaga". Annar flokk- urinn bindur rauða vasaklúta um höfuð sér, en hinn hvíta og hafa samlita fána hver fyrir sig. Jafnskjótt sem merki er gefið, slær fylk- ingum saman og er þá kepni fiokkanna hvors fyrir sig um það að ná höfuðbandinu af hin- um. flokknum. Atlagan getur verið næsta hörð og löng, áður en annarhvor fiokkurinn ber sigur af hólmi. Af þessu má sjá, að Japanir ala börn sín upp til bernaðar frá blautu barnsbeini. En Japanar eiga fleiri skóla en barnaskóla; þá taka við unglingaskólar, iðnskólar, kenn- araskólar, og fjöldi einstakra manna lieldur líka skóla. Eftir því sem mentunin eykst og breiðist víðar út í landinu, eyskt líka aðsóknin að liærri skóla og nú eru háskólar stofnaðir

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.