Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1912, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.01.1912, Blaðsíða 4
HEIMILISBLAÐIÐ >BEE3SEB##gHBSEH#SBEEEBB«l HEIMILISBLAÐIÐ 1 kemur út einusinni á mánuði og kostar ;3 75 aura árgangurinn Ief blaðið er borgað fyrirfram. Kostar annars I krónu árgangurinn, og er þá gjalddagí bundinn við 1. júlí. Uppsögn sé skrifleg og bundin við áramót, | ógild nema komin sé til útgefanda fyrir 1 okt. | Handhœgast er að senda blaðgjaldið í óbrúkuðum frímerkjum eða póstávísun. Utanáskrift blaðsins er: Heimilisblaðið, Eyrarbakka, Árnessýsla. œisjafnir dómar. Dómarnir þurfa að vera góðgjarnir. Og því má ekki gleyma, að gagn blaðsins ei að mörgu leyti komið undir les- endum sjálfum. S.: Hvernig er það undir þeim komið? J.: Fyrst verða þeir að kaupa blaðið og borga það skilvíslega. Án þess getur ekkert blað lifað, þó bezta blað sé. Svo verða þeir að athuga efni blaðsins vandlega, taka eftir iivað tar er til eftirdœmis og hvað til viðvör- unar, hvað til varnaðar og hvað til uppörfun- ar og þetta frameftir götunum. Og umfram alt verða þeir sjálfir að hafa einlœgan vilja til þess að taka á móti góðum áhrifum og lifa sig inn í þau. S.: Til hvers er blaðið, ef alt er undir lesendunum komið ? J.: Blaðið á að gefa bendingarnar, Les- endurnir eiga að taka þær alvarlega til greina, leggja í þær réttan skiining og festa þær í minni til þess, að geta hatt þeirra sem bezt not. feir mega ekki lesa blaðið athugalaust, leggja það svo frá sér og segja útí bláinn: „Heldur er það nú þunnt!“ Slikt má beztu blöðum gera — og er of oft gjört. S.: Hver eiga þá góðu áhrifin að verða? J.: Þau eiga að verða í sem flestum greinum. En ekki má búast við að þau sjá- ist alment fyr en með timanum. Þau eiga smámsaman að þroska andann. S.: En ef menn misskilja blaðið? J.: Það á ekki að vera þungskilið. Hver sem vill skilja það á að geta skilið það. S.: Ætli nokkur sé, sem ekki vill skilja? J.: Svo hefir stundum litið út. í*egar fundið ei að einhverju, þá er eins og sumir látist ekki skilja. En orsökin er víst oftast sú, að aðfinningin hefir kærleiksleysisblæ. JÞetta blað mun leitast við að láta bróður- þelið hvervetna ráða orðalagi sínu. I’að munu fáir mísskiija. S.: Nú er „svo margt sinnið sem maður- inn er“. J.: fví er nauðsynlegt að efni blaðsins sé sem fjölbreyttast, svo sem ílestir geti, hver um sig, fundið þar þá andans fæðutegund, sem honum er holi. S.: Treystir blaðið sér til þess? J.: Það byggir á þeirri von, að sem flestir menningarvinir sendi með því orð „til fólks- ins“. Óefað langar marga að leggja eitthvað til frá sér, þegar um það er að ræða, að gefa menningarþroska þjóðar vorrar ofurlítið næringarefni. Því fleiri sem gera það, þvi fjölbreyttara verður efnið. S.: Verður það ekki léttmeti? J.: Kannske innan um, en sumt verður gott, og „á misjöfnu þrífast börnin bezt“. En hér er ekki hugsað til að gera kraftaverk: það er ekki ætlast tíl að árangurinn komi alt í einu. En því er treyst, að hann komi með tímanum. Því er treyst, að Guð blessi góðan vilja. S.: Jæja. Eg skal kaupa blaðið og standa í skilurn. Eg skal reyna að lifa mig inn í anda þess og leitast við að láta efni þess hafa sem bezt áhrif á mig. Svo lít eg til baka á vissum tímum til að bera saman þroska- Stigið, sem eg var á og þroskastigið sem eg verð á. „Dropinn holar steininn". -1-----o*o~o----- Stuðningsmenn blaðsins. Þessir mentamenn hafa allir lofað að vera stuðningsmenn blaðsins og skrifa 1 það, eftir því sem ástæður þeirra leyfa:

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.