Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1912, Side 10

Heimilisblaðið - 01.01.1912, Side 10
8 HEIMILISBLAÐIÐ Lífsábyrgðarfélagið „VIKTORIA" er eitt af elstu og ríkustu lífsábyrgðarfélögum í Svíþjóð. Það býður viðskiftamönn- um sínum svo mikla tryggingu sem framast verður fengin hjá nokkru lífsábyrgð- arfélagi. Iðgjöldin eru lág, borin saman við hin miklu hlunnindi, sem það lætur við- skiftamönnum sínum í té. Innstæðufé félagsins eru 16 iuíljónir kr. Skráðar tryggingarupphæðir 70 miljónlr kr. og í ágóða (bonus) hefir félagið borgað um 7 miljónir kr. „Yiktoría44 veitir hagkvæmastar tryggingar fyrir karlmenn, konur og börn. Aðalumboðsmaður félagsins er Björn Ólafsson, símritari á Seyðisfirði A Eyrarbakka gefur Jón Helgascn prentari upplýsingar um félagið og tekur á mót.i yggingum. Ungir menn og stúlkur, tryggið líf yðar. Bæn hestanna. # Gefðu mér fóður svo eg sé ekki svangur, og vatn þegar eg er þyrstur. Mundu eftir því, að nú eru víða á þjóðvegum komnar brýr yfir ár og læki, svo nú get eg ekki feng- ið að drekka á ferðalagi eins oft og áður. Ljáðu mér hús og sæmilega hirðingu, svo að eg þurfi ekki að standa úti í vetrarfrosti og jarðleysum. Berðu mig ekki. Begar eg er að bera þig eða þína muni, þá skil eg ekki, hversvegna þú ert að berja mig, mér finst eg vilji þóknast þér í öllu, sem eg get. Sjáðu um það að ekki sé kipt illmannlega í taum- ana eða látin upp í mig frosin beislismélin á vetrardag, þegar eg er beizlaður. — Láttu mig ekki ganga berfættan á grýttum vegi eða svellalögum á vetrardegi. Legðu ekki þyngri byrðar á mig en eg get borið. Hnýttu hvorki hestum né nautum í tagl mitt, slíkt hefir oft kvalið mig og þreytt. Og þrýstu mér ekki til að hlaupa harðara en eg get og umfram alt lánaðu mig ekki ungum reiðgöpum eða fyllirútum. Lofaðu mér að hviia mig þegar eg er mjög þreyttur, eða er bólginn eða með sárura undan reiðverum. Alt, sem eg get unnið, skal eg vinna fyrir þig með glöðu geði, einkum ef þú sýnir dá- Jitla viðkvæmni og blíðu, og þó þú berjir mig og sýnir mér illhryssingshátt, þá skal og sarat vinna fyrir þig með góðu, ef þú svo ekki á eíSdanum selur mig þegar eg er orðinn gamall og heilsulítill, til ókunnugra manna í ókunna átthaga; styttu miklu heldur líf mitt þannig, að eg sem minst vitl af því, þegar þér virðist að eg geti ekki unnið fyrir upp- eldi mínu. Tú veizt, að eg get ekki talað svo þú skiljir mig, en láttu mig ekki gjalda þess. (Þjóðv.fél.alm. 1911). Tr. G. Neistar. Að lifa, það er að hafa réttlæti, sannleika, skynsemi, samúð, hreinskilni, dómgreiud og jkyldurækni sameinað hjartablóðinu, er flytur sað með hverju lífæðaslagi um allan likam- mn. Að lifa, það er að þekkja sitt eigið aianngildi, að vita hvað maður getur gert og rvað manni ber að gera. Lifið er samvizka. Víktor Iíugo. SKRÝTLUR. A. : Hundarnir eru skynsamar skepnur, eg held t. d. að hann Snati minu sé eins skyn- samur og eg sjálfur. B. ; Já, það held eg nu hka, en það er sannarlega engin sönnun þess, að hann sé skynsamur. Útgef. og ábyrgðarmaður s Jón Helgason, prentari. Prentsmiðja SuðurlandB.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.