Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1914, Síða 8

Heimilisblaðið - 01.06.1914, Síða 8
48 HEIMILISBLAÐIÐ „Þá reynum við víöar,“ sagði varðmaðurinn hughreystandi. „Kristján, hjerna er hún Katrín litla, dóttir yðar.“ „Hún Katrín mín,“ rumdi í fanga í klefanum, sem þau nú komu að. „Nei, eg átti einu sinni dóttur, sem Katrín hét, en hún er fyrir löngu dáin af sorg yfir ógæfu minni“, og tárin hrundu niður eftir kinnunum á veslings fanganum; hann stundi þungan og sneri sér frá hinum aðkomnu. Niðurl. SóiHrisur. Kveðið í góulok 1914, Eg mun, Góa, á eftir þér, eigi sóa tárum, litla fróun fékstu mér í freðnum snjóa bárum. Enga blíðu áttir til, öll var stríð þín ganga. Mörgum hríðar bléstu byl beint á hlíðar vanga. Alt er frjóa hulið hold, — hinstu sóast gæðin — þú hefir, Góa, gefið fold gömlu snjóa klæðin. Lækjum göngin þóttu þröng, þeir ná öngum hljómi. Kári löngu lögin söng leið með ströngum rómi. Hvíta höndin hefir lín haga löndum strokið. Fast eru böndin bundin þín, brátt þótt önd sé lokið. Margur hló í munar geim misjafn þó var hagur, sig er bjó að halda heim hinsti Góu-dagur. Sendu, Harpa, sólaryl, sigraðu garp frá tjónum, = HEIMILISBLADIЗ keraur út 1 Reykjavík einusi»ini í mán- uði — 12 blöð á ár — og kostar að- eins EINA KRÓNU, sera óskast borgað við móttöku fyrsta tölnblaðs hversárg. I VESTURHEIMI kostar blaöið 40 cent og kr. 1,50 í Evrópu. Uppsögn er bundin við l. október, og sé kaupandi ^>á skuldlaus vió blaöið. : Utanáskrift til blaðsins er: ::::::: : HEIMILISBLAÐIÐ — KEYKJAVfK. : láttu skarpan blíðubyl burtu varpa snjónum. Klakahaft og kulda spor, kiptu jafnt úr lautum. Láttu aftur. viðkvæmt vor veita kraft í þrautum. Qatafiazt. lldhúsráð. „Hrærð egg.“ 6 egg, 12 matskeiðar mjólk, 10 kv. smjör, ofurlítið salt. Egginu ásamt mjólkinni og salt- inu er hrært vel saman t. d. í 5 mín. Smjörið er látið í pott með flötum botní og látið bráðna. Því næst eru eggin látin út í og þarf þá að hræra stöðugt í og eldurinn má ekki vera mik- ill undir. í skal hræra á þann hátt, að skafa með sleifinni frá botninum, svo eggin komi upp í stórum flögum. Þegar alt er þannig orðið jafnt eru þau búin og má bera þau inn í gler- skál og strá yfir þau smátt skorinni pétursselju. SKINFAXI, 16 siður á mánuði. Flytur myndir. Verð 2 krónur. Gefur skilvís- um kaupendum „Þjóðfélagsfræði11, eft- ir Einar Arnórsson prófessor. Ritstjóri Jónas Jónasson frá Hriflu. Utgefandi og ábyrgðarmaður: Jón Helgason prentari, Félagsprentjmiöjan.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.