Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1914, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.12.1914, Blaðsíða 4
90 HEIMILISBLAÐIÐ unar væri von, þó niaður legði sig sjálfan i sölurnar fyrir sannleikann eða fyrir almennings- heill; að eiðar hefði engan ósýnilegan áheyr- anda; að enginn væri sjónarvottur leyndra glæpa nema fremjandi þeirra; að tilvera mannsins hefði engan tilgang og dygðin engan óbrygðul- an vin; að þetta líf væri oss alt og dauðinn gerði enda á þvi fyrir fult og alt. Hugsum oss i einu orði, að menn útrými frá sér allri trú; hver getur hugsað sér, hve víðtæk eyðilegging þar fylgdi á eftir? Ef til vill vonum vér, að borgaraleg Iög og náttúrleg samhygð manna gæti samt haldið félagslifmu saman. En það væri viðlíka líklegt, eins og að vér gætum fram- leitt Ijós og yl og frjógun jarðar með eldi og blysum, þó sólin hyrfi af hinmi. Hvað er það í eðli manns, sem áynni honum virðingu og að- laðan, ef iiann er ekkert annað en verndarlaus dægurfluga? Og hvað væri hann þó annað, ef guðneitun hefði rétt að mæla? Hvað yrði úr mannlegu félagi, ef hugsjónin um Guð og virð- ingin fyrir honum hyrfi alveg? Þá mundi eigin- girni og nautnafýst ná algerðum yfirráðum yfir manninum. Engum lögum yrði hlýtt. Engin takmörk yrði á sællífi annarsvegar og á skorti og vonlausum bágindum hinsvegar. Ðygð og skylda yrði meiningarlaus orð og eftir engum frumreglum lifað. Maðurinn skeytti þá ekki um neitt annað en sjálfan sig, öll sálaröfl hans gengi upp í þvi. Það yrði þá orð að sönnu, að maðurinn sé eitt af villidýrunum. Vert er að taka það sérstaklega fram, að hin kristna trú heíir einkarmikla þýðingu fyrir frjálsan félagsskap. Það er full ástæða til að efast um, að án hennar geti borgaralegt frelsi átt sér stað. Svo mikið er víst, að þar, sem hún er ekki ráðandi, þar njóta menn hvorki jafnréttis né óhlutdrægni. Kristindómurinn styð- ur frjálst fyrirkomulag. Andi hans er andi frelsisins, það er að segja: andi virðingar fyrir rétti og hagsmunum annara. Kristin- dómurinn viðurkennir meðfætt jafnrétti allra manna. Hann mótstendur þeim ofríkiskröfum náttúru vorrar, sem vilja kúga hina mörgu undir vald hinna fáu. Hann leiðir, — með betra uppeldi eigi síður en með boðorðum — hugi mannanna til Gaðs: til að auðsýna honum ein- um þá virðingu og lotningu, sem þeir hafa ranglega auðsýnt vissum meðbræðrum sínum. Öll stefna hans er frjáls. Hann leggur grund- völlinn undir frumreglur góðgirninnar, réttvís- innar, og virðingarinnar, fyrir manneðlinu. En ekki er andi frelsisins eiugöngu sá, — þó marg- ir haldi það, — að halda sínum rétti fast fram og lúta sj&fur engri kúgun: hann er miklu fremur sá: að bera virðingu fyrir rétti annara og styðja hann, en forðast að gera nokkrum manni rangt til. Sá er andi kristindómsins. Þar, sem hann ræður, er trygging fyrir persónulegu frelsi manna. En hún er engin þar, sem hann ræður ekki. En auk þessa hjálpar trúin frelsinu á ann- an hátt. Hún dregur úr þörfinni fyrir að beitt sé ofbeldis-aðhaldi við menn til að fá þá til að hlýða lögunum. Hún hefir nfl. þau áhrif á menn, að þeir verða “sjálfum sér lögmál“ ; hafa sjálf- krafa taum á tilhneigingunni til að gera öðrum rangt. Hugsum oss að áhrif trúarinnar til að hreinsa hugarfarið og leggja hendur á ástríð- urnar, hyrfi með öllu. Þá yrði stjórnend'úr að hafa liðsafla til þess, að geta með ofbeldi afstýrt óreglu og glæpum. En sá liðsafli og það of- beldi gæti þá orðið — og hefir oft orðið — hafður til að kúga frelsið, sem hann átti að vernda. Hugsum oss, að lifernisreglur kristin- dómsins hafi minni og minni áhrif á almennan hugsunarhátt; að sama skapi yrði rneiri og meiri nauðsyn að beita valdi í mannfélaginu. I voru landi hefir stjórnin ekki þörf á hinni miklu og margbrotnu lögregluskipun, sem hjá öðrum þjóðum er sífelt á verði. Vér þurfum ekkert herlið, ekkert njósnarfélag, engar þving- unarreglur. Nokkiir vopnlausir embættismenn og dómarar nægja til að koma fram hinum góða tilgangi laga og réttar. Þetta gengur fram með svo mikilli ró og kemur svo sjaldan í bága við frjálsræði vort, að margir hafa varla af lögum eða stjórn að segja, þó þeir njóti dagsdaglega hinna blessunarríku nota, sem af þeim leiða. Þetta er eðli hins fulla frelsis. En hverju eigum vér nú þetta að þakka? Það er því að þakka, að kristindómurinn hefir ritað öflug lög í hjörtu vor, sem sameina hugina og mynda það al- menningsálit sem mótstendur ranglæti og kúg-

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.