Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1915, Qupperneq 7

Heimilisblaðið - 01.01.1915, Qupperneq 7
HEIMILISBLAÐIÐ 5 iSteei Niðurl. „Bréf til þín, Anna,“ heyrði eg Jón segja, þegai- hann kom inn. „Bréf til mín“, svaraði Anna í önugum róm. „Hvað ertu að ljúga?“ „Líttu þá á: Fröken Anna Jónsdóttir, Hamri.“ „Hana þá! Þar færðu bréf“, sagði Þóra þá, „þetta skal eg ábyrgjast að er biðilsbréf, þau eru altaf auðþekt á utanáskriftinni. Geðshrær- ingin gerir línurnar skakkar.11 „Jæja“, sagði Anna, og var nú hýrari i bragði, „eg fæ þá bréf eins og hitt fólkið, nú skal eg fara upp í baðstofuna og biðja . . .“ Eg heyrði ekki meira, en flýtti mér aftur í sætið mitt, því eg vissi, að nú átti eg að lesa fyrir bana bréfið. Hún kom þjótandi upp stigann, hratt hurð- inni upp á gátt og ruddist inn með bréfið sjálft í annari hendinni, en umslagið i hinni. „Bréf til min, lestu nú, lestu nú, blessuð min!“ hún klappaði mér með báðum höndum, blóðrjóð útundir eyru og skellihlæjandi, það er biðils-bréf, segir hún Þóra, hún er viss að þekkja þau, æji, lestu íljótt, lestu fljólt!“ Hún steig fram á fótinn og iðaði öll af óþreyju. Eg tók hikandi við bréfinu, og varð ekkert um sel, — hún var að geggjast stúlkan. „Bíddu nú við“, sagði eg og setti mig sem best í stellingarnar, „þetta er svo hræðilega illa skrifað, eg get varla lesið það“. „Æi jú, góða, reyndu að lesa það.“ Eg komst ekki hjá því að gera henni úr- lausn, og fór að stauta bréfið: Elskulega fröken Anna! Viltu verða konan mín? Eg er bráðskotinn i þér. Viltu ekki verða frú, og fá fallegan kjól °g hring, og svo skulum við halda veizlu með niat og kaffi, og söng og dansi. Svaraðu mér "em fyist- Kári í Kötlugjá.“ „Þetta var bréfið. Eg hafði ætlast til þess að það væri svo vitlaust, að jafnvel Anna sæi það. En Anna néri saman höndunum af á- nægju. „Það er þá biðilsbréf eins og Þóra sagði; ansi er hún glögg. Er ekki svo? Hann vill fá mig fyrir frú, og ætlar að gefa mér hring — mig hefir altaf langað til að eiga hring. Blessaður maður er þetta. Kári heitir hann! Hver ætli hann sé? Hann sagði að eg yrði frú, frúin hans, ha, hæ, þar er Anna litla þá loksins orðin frú!“ Hún lét dæluna ganga. Eg vissi ekld hvað eg átti til bragðs að laka „Heyrðu, Anna mín“, sagði eg loksins, „ætli þetta sé ekki einhver vitleysa, — við skulum ekki.“ — En Önnu var ekki um neinar vífilengjur, „ætli ekki hvað — ertu kannske að hugsa um að spilla mér við hann? Finst þér kannske að eg geti orðið frú á hverjum degi? Nei, eg læt engan hræra í mér, skal eg segja þér“. „Hverju ætlarðu þá að svara lionum?“ spurði eg. „Hverju eg ætla að svara? Hvað held- urðu? Heldurðu eg fari að hrygghrjóta mann- inn, úr því hann vill mig? Eg er búinn að fá meira en nóg af draslinu hérna, piagga- þvottinum, skóstaglinu, forarengjunum og vatns- burðinum. Þó eg segði nú jú! Eg skal bjóða þér í veizluna, ef þú vilt skrifa fyrir mig.“ Anna hoppaði um gólfið. Eg var ekki al- veg eins kát. Þetta var ljóta ldípan. Það var ó- neitanlega skrítin sjón að sjá Önnu. Hún var með hugann|j íullan af framtíðardraumum, — búin að segja skilið við skarnverkin, leðurskórn- ir voru horfnir, hrífan og vatnsföturnar, — og rúsínan beið á botninum, — frúarstaðan — fallegu fötin, hringurinn og kjóllinn. En mér var þó enginn hlátur i huga. „Það er ilt að svara bréfinu“, sagði eg með mestu hægð. „Við höfum enga áritan til að fara eftir,“ Það þótti Önnu kynlegt. Stóð ekki nafnið mannsins fullum stöfum á bréfinu? Þetta var auðvitað útlendingur eða öllu líklegra að svo væri, hélt hún. Eg steinþagnaði. Önnu var auðsjáanlega al- vara, og eg þorði ekki að segja henni hið sanna um upphaf bréfsins. Anna var geðprýðin sjálf í 2 til 3 vikur,

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.