Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1915, Side 7

Heimilisblaðið - 01.09.1915, Side 7
HEIMILISBLAÐIÐ 71 vegna hins góða, sem Iiann ber á borð fyrir lesendur sina. Hreinskilni, sannleiksást og guðs- ótti, virðist honum meðfætt og drukkið með móðurmjólkinni. Hafi höf. þökk fyrir verkið. Frágangur allur á bókinni er góður, mun hún fást hjá bóksölum. k. j»jónarnir þrír. (Lítil dæmisaga). Eftir Bergstein Kristjánsson, Einu sinni var konungur sem hafði þrjá þjóna, sem ráða skyldu yfir öðrum þjónum hans; þessir yfirþjónar eða ráðsmenn hétu, Kári, Páll og Pétur, allir vildu þeir þóknast húsbónda sínum, því þeir vissu að alt sem hann gerði var rétt, og alt sem hann talaði var satt, en til að þóknast húsbóndanum völdu þeir sína leiðina hver. Kári henti á lofti öll lofkvæði og lofræður, sem hann heyrði um húsbóndann, og ílutti honum alt aukið og endurbætt. Hann fór frá vinnu sinni, áður en hann þvoði sér eða greiddi, fram fyrir húsbóndann að lesa þetta yfir honum og áminti undirmenn sína að hlusta á sig með athygli, og gjöra hið sama. Líkama sinn hirti hann illa, kvaðst meta meira að lofa húsbónd- ann. Alt sem skrifað var um húsbóndann, hafði hann i heiðri, hversu mikill böglingur sem það var, bara ef það átti að heita Iof, og nafn hans stóð þar nógu víða, þú hann forsmáði aðrar bækur og blöð. Óvini húsbóndans neiddi hann til að vera þjóna hans, eða drap þá að öðrum kosti. En það sem hann átti að vinna fyrir hús- bóndann leysti hann illa af hendi, við undir- menn sína og dýrin var hann harður og misk- unarlaus, og gat engann séð glaðann, áleit það bera vott um skort á virðingu fyrir húsbóndan- um. Páll var líkur Kára í því, að lofa húsbónd- ann með mörgum orðum, og gagnvart óvinum hans var hann eins. En hann vandaði alt sem húsbóndi hans lét hann vinna, og var góður við aðra, menn og dýr. En Pétur var þeim báðum ólíkur, hann kost- aði kapps um, að vanda alla breytni sína sem mest hann mátti, var kurteis og vingjarnlegur við alla, og nærgætinn, og kærleiksríkur við' menn og dýr. Hann gat aldrei verið glaður nema allir þeir, sem hann um gekzt væru það lika. Hann kom ekki oft fram fyrir húsbónd- ann, en þegar hann kom, talaði hann fá orð og helst frá egin hrjósti, um húsbóndann las hann fáar bækur, og aðeins þær sem vel voru samd- ar, illa skrifaðar bækur um hann, þó lof ætti að heita, fyrirleit hann og taldi þær ganga lasti næst. Þegar honum yfirsást, bað hann stundum fyrirgefningar en stundum ekki. Óvini húsbónd- ans kúgaði hann aldrei. Líkama sinn hirti hann vel, og gætti þess að koma aldrei fram fyrir húsbóndann, óhreinn eða illa búinn. Einu sinni komu vinir konungsins til hans og töluðu margt við hann, meðal annars spurðu þeir hann hvern af ráðsmönnum sínum hann elskaði mest. Konungur svaraði: „Kára fyrirlít eg, því þó hann lofi mig og þakki mér, og vilji fjölga þegnum mínum, sýnir hann það í breytni sinni við undirmenn sína, að hann misskilur mig eða þá allar hans lofgerðir eru hræsni. Páll er að mörgu góður ráðsmaður, en Iof- ræður hans um mig, eru orðnar eins og foss- niður fyrir eyrum undirmanna lians. En Pétur er mér kærastur, orðum hans er veitt athygli, þvi þau eru ekki of mörg, og hann sýnir það með breytni sinni, að hann vill líkjast mér, og þó hann biðji ekki æfmlega fyrirgefn- ingar á yfirsjónum sínum, sýnir hann iðrun sina með því, að breyta betur aftur. Húsflugan verpur fjórum sinnum á sumri og minst 800,000 eggjum i hvert skifti. Þann- ig getur ein fluga eignast 3 miljónir afkomenda á einu sumri.

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.