Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.12.1915, Blaðsíða 7

Heimilisblaðið - 01.12.1915, Blaðsíða 7
HÉIMILISBLAÐIÐ 91 Veturinn 1784—5 gekk hallæri oiikið yfir megin hluta íslands. Fólk dó hrönnum saman af matvælaskorti, og öðrum afleiðingum hinna hræðilegu jarðelda er komu upp í Varmárdal upp undan Síðu í Skaftafellss. um hvítasunnu 1783. Fénaður var viða gereyddur af heyskorti og sjúkdómum, því sumstaðar féll hann þó hey væru nóg, því jörðin var öll svo óholl orðin að fénaður sýktist og dó þó í fullum holdum væri. Var því bágt til bjargar hjá þeim fátækari enda höfðu þeir, sem gátu, yfirgefið héruð þau er verstum búsitjum sættu, þegar þeir sáu hvað í vændum var. En margir hinna fátækustu komust ekki í burtu, en urðu að láta fyrirberast. Hrundu þeir því niður þegar harðna tók, þvi þó ílestir ríkustu mennirnir sætu heima á jörð- um sínum, var lítillar hjálpar af þeim að vænta. Það reyndist þar sem oftar, að hjálpfýsi er minst þar sem efnin eru mest, þá voru og eru ætíð heiðarlegar undantekningar, hvað það snertir. Það voru líka svo margir sem hjálpar þörfnuðust að erfitt var að fullnægja þörfunum Menn þorðu heldur ekki að láta rnikið af mörk- um, þvi þeir óttuðust skort hjá sjálfum sér. Meðal þeirra sem áttu við bág kjör að búa, var bóndi einn, Árni að nafni. Fénaður hans hafði að mestu fallið um vorið, svo litið Yar tíl að kaupa fyrir forða til vetrarins. Varð hann og fjölskylda hans að leggja sér margt það til munns, sem ekki þætti nothæft nú á dögum, svo sem jurtarætur, skófir af steinum og loks gömul skinn og skóbætur. Veturinn lagðist að sveitunum með frosti og fönn, sýktust þá margir, sem lítilfjörlegt viðurværi höfðu haft um sumarið, þar á meðal börn Árna, þau veikt- ust og dóu eitt eftir annað. Loks lagðist hann sjálfur í rúmið. Fann hann það brált, að hann myndi ekki komast á fætur aftur, þó kona hans, sem enn þá var á tótum ásamt einum dreng er þau áttu, hjúkraði honum af fremsta megni, því holla og nærandi fæðu, sem hann þarfnaðist framar öllu öðru, var ekki unt að veita honum. Hann dó við jólaföstubyrjun, varð þá hrepps- nefndin að skerast í leikinn, en það var um seinan, því sama daginn sem hann var kistu- lagður, lagðist kona hans, sem orðin var ör- magna af skorti, þreytu og vökum, var þá að eins einn drengur eftir, tólf ára að aldri, sem ekki hafði fengið veikina. Húsfreyja lá aðeins skamma stund, því þrek hennar og mótstöðuaíl var gersamlega þrotið. Hún andaðist á þriðja degi. Var hún þvi lögð i gröf með manni sínum. Drengurinn, sem hét Jón, var nú aleinn eftir. Faðir, móðir og systkini — alt var dáið á stuttum tíma. Sveitastjórnin sá honum ekki fyrir neinum sama stað, hún kvað sig ekki hafa vald til að skylda neinn til að taka drenginn. Hann varð þvi að ganga manna á milli og betla Varð honum misjafnlega til beina þar sem hann kom, því viða var vistaskortur, en hinir ríkari margir ófúsir að hýsa slíka gesli. Var honum þó viðast veitt húsaskjól, eu matskamtar þeir er honnm voru ætlaðir voru oft smáir. Þó hélt hann að mestu fullu fjöri, því hann var hraust- bygður að upplagi. Þannig leið veturinn fram að jólum. Hafði Iiann þá farið víða um sveitina, en sjaldan dvalið nema eina eða tvær nætur á hverjum bæ. Á aðfangadagskvöld jóla barði hann að dyrum eins auðugasta bóndans þar í sveitinni. Var hann jafnframt einn aðalmaðurinn í sveit- arstjórninni. Bóndi kom sjálfur til dyra, en þegar Jón hafði borið upp erindið, svaraði hann bistur: „Það væri nú alt of mikið ef maður fengi að vera i friði fyrir þessum flækingum á sjálfa jólanóttina. Eg er hræddur um að fólki mínu væri lítil ánægja að því að hafa þig með í kvöld, enda hef ég ekkert rúm handa þér til að liggja í. Þér er því bezt að fara eitthvað annað, því hjá mér verðurðu ekki í nótt“. Skelti hann síðan aftur dyrunum. Drengurinn lagði af stað grátandi. Hann var orðinn örmagna af þreytu, og hafði svo innilega óskað þess að þurfa ekki að fara lengra, og treysti því að ríkasti bóndinn í sveitinni mundi varla láta sig muna um það að hýsa hann eina nótt, eða

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.