Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 4

Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 4
68 HEIMILISBLAÐIÐ. dögum. Þó hirða bændur oft þurt hey undan regni á helgum. Þarf það í sjálfu sér ekki að rýra helgidagshaldið á neinn hátt. Að mínu áliti á æskulýðurinn hér verstan málstað að verja; og þó undarlegt sé, hafa ung- mennafélögin lítið hvatt til að halda vel hina helgu daga, gott ef þau hafa ekki neinstaðar stefnt að því gagnstæða. Þá ber að minnast þess, að með uppbyggi- legum málfundum hafa félögin máské eflt and- legan fjársjóð meðlima sinna. En að vinna í samlögum á helgum dögum ættu félögin alls ekki að gera, nema um sérstakt mannúðar eða kærleiksverk væri að ræða. Að vísu get ég vel skiiið það, að með þvi að gera það að meginreglu, að vinna ekkert verklegt á helgum, sé að miklu leiti loku skotið fyrir verklegar framkvæmdir félaganna. Þau verði því ekki annað en málfunda og íþróttafélög. Og það er líka það eina sem þau geta verið; þar sem þau samanstanda mestpart af ungmennum, sem að öllu leiti eru öðrum háð. Og með því geta félögin, ef vel er áhald- ið, hjálpað ungmennum til að menta andann og það er þeini ætlað að gera á helgidögum. Svo er og farið að brydda á því, að ungir menn vilji nota helgidaga til að afla sér fjár á ýmsa lund. En sá siður ætti að leggjast niður hið fyrsta. Að vísu kemur hann ekki óvirðing- arblæ á friðhelgi hvíldardagsins á meðan tilfell- in eru fá. En ef þeim fjölgaði að mun og hjú- in færu alment^að reka atvinnu á helgum dög- um, þó ekki væri nema vissa tíma ársins, myndi helgi hvíldardagsins flekkast til muna. Það er gamall og góður siður að láta lík- amann hvílast á helgidögunum, að svo miklu leiti sem unt er. En nota þá til að auka víð- sýni andans, með því að lesa góðar bækur, að skoða náttúruna og æfa andlega krafta sína í því, sem er nytsamt, gott og fagurt. — Höldum þeim sið! Bergsteinn Kristjánsson. porboðinn. Berðu á ljósörmum hreinskilni í sérhverja sál, rektu sundrung á brott, þýddu hjartnanna mál, legðu eyðimörk blómucn við ylgeisla bál, vefðu ábreiðu úr kyrð, hafsins viðfeðma ál. Komdu og friðlýstu’ og treystu vort fóstbræðralag, svo að framtíðin vonbjarta snúist í hag. Láttu titra hvern streng við þinn blíðheima brag, sem að braut kveður nóttina og vor lengir dag, Jón S. Bergmann. gínbannlög í j|Janitobatfglki. Yínsölubannlög eru nú samþykt með meirf hluta atkvæða í Manitobafylki i Vesturheimi. Meiri hluti allra landa þar vestra voru fylgjandi1 vínhanninu, enda hafa þeir þar marga ötula bindindismenn og bannvini. Sigurður Júl. Jó- hannesson, ritstjóri Lögbergs, er stórtemplar þeirra þar. Fara þeir nærri um það hér heima, sem þekka dugnað Sigurðar og áhuga í bind- indismálinu, að um liðsinni hans muni hafa drjúgum munað, i þessari baráttu þeirra þar vestra, sem nú er nýafstaðin með svo glæsileg- um sigri. Það er öllum hugsandi mönnum gleðiefni, hvaðan sem fréttir koma um það, að afengis- nautninni er útrýmt, því hún veldur svo ómet- anlega miklu tjóni, kemur svo miklu illu af stað, og ýfir sár og veitir sár. Margir mætir menn og vel metnir eru mót- fallnir bindindi og banni á áfengum drykkjum, Slíkt kemur af því, að þeir halda of fast við kenningu Kains; „á ég að gæta bróður míns?“' — Hvað kemur það mér við, þó meðbræður mínir hnigi í valinn í kringum mig af afleið- ingurn ofdrykkjunnar, hvað kemur það mér við þó mæður gráti unga efnilega — syni, syni, sem orðið hafa úti á áfengisharðsporanum. Hvað kemur mér við tár og tregi annara, lífsófarsæld

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.