Heimilisblaðið - 01.05.1916, Blaðsíða 6
HEIMILISBLAÐIÐ
70
Thomas Edison.
x
Heimskunni uppfyndinga-
maðurinn ameríski Thomas
Edison er nú nær sjötugur
(f. 1847), þó starfar hann
sem ungur væri á vinnu-
stofu sinni. Hér flytur
Heimilisblaðið mynd af Edi-
son, iyrir utan dyrnar á
efna rann sókn ar-vinnustofu
sinni. Við hlið hans stend-
ur aðstoðarmaður hans, sem
lengst hefir hjá honum unnið
og heitir sá John Ott. Edi-
son var, sem kunnugt er,
bláfátækur drengur, sem
fyrst vann fyrir sér tneð
því að selja dagblöð, en
hann varði þeim aurum,
sem hann innvann sér vel.
Hann er nú fyrir löngu við-
urkendur einn hinn heims-
ins fremsti uppfyndinga-
maður, — og uppfyndingar
hans orðnar fyrir löngu
heimskunnar, — svo sem
margar og mikilsverðar end--
urbætur á ritsímakerfinu.
Hann hefir fundið upp tal-
simann, hljóðritann, smásjána og fjöldamargar uppfyndingar til endurbóta hinum margvíslegu raf-
magnsvélum, seni nú eru notaðar til iðnaðar, vísinda og hernaðar.
Margir ætla, að Edison hafi fundið upp hræðilegar hernaðarmorðvélar, og höfðu Amer--
íkublöðin jafnvel eitthvað í þá átt eftir honum sjálfum. En jafnframt, að hann ntundi ekki opin^
hera þær uppfyndingar nema ráðist yrði á Bandaríkin, þvi hann vildi síst af öllu smíða morðvélar
handa heiminum.
Mikið hefir verið um Edison skrifað, í bækur og blöð. Og allir rithöfundar, sem um
hann skrifa, muna eftir frásögunni um fátæka drenginn, sem byrjaði iifsstarf sitt á því að selja blöðr
umkomulaus og óþektur. Hefði Edison á þeim árum haft það að sið, að kaupa sælgæti fyrir
aurana, sem hann vann sér inn, reykja vindlinga, sækja kvikmyndaleikhús (bio) og þvíuml., þá
hefði hann ekki komist áfram, þá hefðu fýsnirnar og vondur félagsskapur fljótt fengið vald yfir
honum og andans sáðkornið, sem Guð lagði í sálu hans, hefði þá smávisnað og kulnað. En hann
tók strax þá stefnu, að ávaxta vel það pund, sem honum hafði verið lánað. Það var stórt
og þess meiri vandi að ávaxta það vel. — — — En, hversu margir eru ekki gæddir góð^
um hæfileikum frá Guðs hendi? En fara illa með þá, vannola og ávaxta illa það pund, sen>
Droltinn fól þeim að ávaxta, mönnunum til blessunar, en sjálfum honum til dýrðar.