Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.02.1918, Blaðsíða 3

Heimilisblaðið - 01.02.1918, Blaðsíða 3
HEIMILISBLAÐIÐ 19 meSal til laiidsiiis okkar. Má þar til telja ólta og kviða og erfitt stríS út af likams nauðsynja- bresti og dýrleika og svo meetti og ætti líka að mega gera ráð i'yrir jiví, að vér kristnir menn væruni ekki tilfinningarlausír fyrir hörmunga- býsnúnum, sern bræður vorir og systur pinast nú af og undir i öðrum löndum, heldur væri einnig hér sorg og samhrygð í landi. En svo einkenniiega og undarlega hefir nú og við borið, að sarnhliSa hinu skelfilega heims- stríði. hefir hér á voru landi víðast hvar, herj- að annarskonar stríð, að vísu ekki ójiekt eða nrjög óvanalegt hér, en jió nreð meira og meiu- legra móti, strið senr sjálf náttúran hefir sagt þjóð vorri á hendur. Það stríð hefir verið fólg- ið í óhagstæðum náttúrugangi og eyðileggjandi veðraföllum. í því stríði hafa ílestir hér á landi átt í erfiðri baráltu fyrir lífsbjörg sín og sinna. Og þó að hór hafi engirin maður fallið af þessum sökum og hér hafi mátt gullöld heita hjá því sem verið hefir og nú er í hernaðar- löndunum, þá hefir samt margt annað fallið, fækkað og rírnað sem til lít'sgæða heyrir og vellíðan má valda, svo að nú rennur þessi ný- ársdagur upp yfir allan þorra búandi manna, einkum hina efnaminni, sem eru veikari fyrir i eftirkomandi baráttu fyrir líkamslífi sín og sinna. Og ofan á þetta bætist svo skorturinn og dýrtíðin, sem heimsvígaferlin valda. Þannig er nú yfir að líta til baka, og þannig er nú umhorfs nær og fjær á þessum nýársdegi. En hvað og hvernig mun þá vera framundan, fram- sýnin til nýársskeiðsins, sem liggur nú næst fyrir flestum mönnum, þjóðum og einslakling- um, nær og fjær? Eftir því undanfarna og yfir- standandi ástandi og útliti að dæma, þá er út- litið framundan í meira lagi skuggalegt og ný- ársskeiðið næsla þyrnum og þistlum vaxið, svo langt sem augað eygir. En sem betur fer, er flest á allri framtiðarleið meiri eða minni þoku vafið, óvissu hjúpi hulið, og óráðin gáta. Þar getur þvi margt og mikið reynst ýmist betur en sýnist eða lakara en á horfist. En hvað þetta upprennandi ár snertir, þá er ekkert líklegra eða sýnna en það, að alt undanfarna og yfir- standandi stríðið eigi enn eftir að harðna, og alt ástandið og útlitið, sem þar með fylgir, eigi einnig eftir að verða ennþá bágara bæði nær oss og fjær, en ennþá er orðið. Það má því segja nú, að hvert sem maður lítur: aftur eða fram, til hægri eða vinstri, þá sé alsherjar- ástandið alveg óvenjulega aurnt, og horfurnar óheillavænlegar. Og óhætt rná fullyrða, aö eng- inn núlifandi maður hefir lifað annan eins ný- ársdag og þennan. En nú rísa upp margar spurningar, og þar á meðal þessar: Hvaðan kemur alt þelta óáran, og hvert stefnir það? llver er orsökin, og hver verður afleiðingin? Hver er alsherjar tilgangurinn, og hvert og hvar er endimarkið? Eða mun þetta alt vera blindur heudinga- leikur, tilgangslaus, lögmálslaus og takmarka- laus? Nei; viss og ákveðin orsök er li! alls, sem er og verður; og vissu föstu lögmáli fylgir alt, að settu sérstöku marki. Og nú skal eg segja sannfæringu mína með hjálp og tilsögn guðspjallsins, sem nú var hér upplesið, sem nýárslexía fyrir oss. Kjarninn í þessu guðspjalli er kenning Jesú Krists um bænina? bænarnauðsynina, bænar- aðferðina og bænarefnið, og svo bænafyrirmynd- in bezta, sem hann gefur jafnframt: Faðir vorið. Af því nú er snertir aðalorsök hernaðaróskap- anna, sem þessi nýárssól verður nú á að horfa, þá er viss um, að hún er sú: að margir, og. kanske flestir af þjóðhöfðingjum, eða leiðandi og ráðandi mönnum landanna, hafa iila kunn- að, eða illa misskilið, eða hrapalLega vanvirt og vanbrúkað Faðir vorið sitt: Þótt þeir hafi ákall að og beðið „föðurinn allra, sem er á himnum“, og nefnt föður sinn í hverju orði, þá hafa þeir ekki skilið, hvað það er að vera, og ekki hugs- að eða hirt um, að vera sjálfir góð og sann- kölluð Guðs börn. Þeir hafa misskilið, gleymt eða slept að hugsa og hirða um það, sem helg- ar nafnið Guðs, en metið meira fánýta og ranga eigin nafnfræging í þessum heimi. Þeir hafa hugsað og hirt meira um sitt eigið ríki og vald.

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.