Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1918, Side 8

Heimilisblaðið - 01.06.1918, Side 8
88 HEIMILISBLAÐIÐ friður læki við. En hvað þessi ónefndi Drottins þjónn hafði átt í mikilli baráttu, en hvað hann hafðí líka unnið dásamlegan og fullkominn sigur! Sumarnótt. Við fjallavatnið fríða, i faðmi grænna hliða, eg sofna sætt og rótt, við svanasönginn blíða um sumars hjarta nólt. K. II. B. j|óða stúlkan. Saga eftir Charles Dickcns. (Pýdd úr vikublaðinu »Houschold-\Vords«). Frh. »Já, hún var virkilega björt stjarnan, sem nú skein niður í dalinn. Aldrei höfðu menn nokkurntíma fyr séð aðra eins stjörnu — stóra eins og undirskál — eins og sumir sögðu, og svo hefði hún langan hala, sem helst væri útlit fyrir að sópa mundi öllum öðrum stjörnum af himninum! Hljóðin, sem menn ráku upp af undrun og ótta og berg- máluðu um alla göluna uppi og niðri, komu nágrönnunum út i dyrnar hjá sér; aðrir komust að gluggunum lil að vita hvað þeir gætu séð út um glugga, sem ekki var hægt að opna. Maður spurði mann. hvað i ósköpunum þetta gæli verið, en þeir urðu allir á einu máli um, að þetta væri dómstákn, dómur Huðs gengi yfir Bleaburn og alt rikið, og þá var full úrlausn fengin á öllu saman: vorinu kalda, slæmri korn- sprettu, sjúkleika konungs, striðinu og haustinu með þessum hræðilega sóltarfar- aldri. Loks kom þeim presturinn i hug og þá þyrptust þeir kringum hann og báðu hann að gefa sér skýringu á þessu. Prestur var skjálfraddaður í meira lagi, eigi siður en aðrir, og staðfesti það þá í óttanum, enda þótt hann segði, að þetta hlyti víst að vera halastjarna; sjálfur hefði hann al- drei séð halastjörnu, en hann væri hárviss um, að þetta hlyti að vera ein slik og mundi vera mjög nærrí jörðu; hann átti ekki við að hún væri svo nærri, að hún gæti gert tjón — það væri nú ekki annað en slúður alt saman sem menn væru að segja um það, að halastjörnur gerðu skaða. »Ætli hún láli þá nokkuð gott af sér leiða, prestur góður«, spurði snikkarinn ibygginn. »Ekki veit eg til þess. Hvað svo sem ætli hún gerði okkur gott?« »Það er nú einmitt það, sem við erum að segja, herra, af henni letðir ekkert gott, það getið þér reilt jrður á. En hvað annað snertir, þá má sá hezt vita það, sem alt veit«. »Eg vona að Neale óðalshóndi sjái hana«, skaut .einhver að nágranna sínum. Það væri hörmung íyrir hann, ef hún væri send honum til viðvörunar gegn allri harð5rðg- inni i honum við aðra! »Og þá fyrir læknirinn«, sagði annar i hljóði »eg vona hún hafi áhrif á hann«. Einhver lét það berast. »Læknirinn, lækn- irinn!« hrópuðu þeir þá allir, gláptu á hala- stjöi’nuna og fóru aftur að pískra. »Hvað eru þeir að segja um læknirinn«, sagði séra Finch við veitingamanninnn í hálfum hljóðum, »hvað er um að vera með hann?« Veitingamaðurinn hristi hara höfuðið og leil fjarska hátíðlega út i gulbleika ljós- bjarmann, sem stóð út úr opnum dyrun- hjá honum. Við þetla varð séra Finch enn þá hljóðari og litlu siðar skauzt hann í hundahljóði heim til sin. Einhverjir, sem tekið höfðu eftir honum, sögðu, að hann væri sýnilega órólegri en hann vildi gjarn- an láta á bera. Og svo var það líka i raun og veru. Hann var skelkaðri en hann vildi við gangast fyrir sjálfum sér. Hann vildi

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.