Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1918, Qupperneq 12

Heimilisblaðið - 01.06.1918, Qupperneq 12
92 HEIMILISBLAÐIÐ hafi dregið hana skammarlega á tálar. Eg veil það, að eí eg má sækja Sally, þá kem- ur hún og verður þar að auki þakklát fyrir það, og« — »Ó, biddu hana að koma og hjálpa mér. Ef henni hefir orðið á, þá er þvi meiri ástæða til að leyfa henni að gera það gott, sem hún getur. Hvernig liður Önnu?« »Ágætlega. Hún er talsvert þreytt, eins og við má búast að við öll séum. Hún hefir aldrei fyrri staðið jafn-lengi við þvotta- balann á dag, eins og hún má nú gera á hverjum degi; en, eins og þér segið, þá var aldrei áður eins mikil ástæða til þess«. »En hvernig liður yður sjálfum?« »Þakka yður fyrir, eg hefi það af enn. Eg þykist nú sjá fram á, að eg muni sjá fyrir endann á veggjakölkuninni. Nú hafa þeir sent mér marga skúfa af réttri tegund frá 0 —; eg vildi nú bara að eg gæti nú fengið nóg af drengjum til kenslu i þessari grein. Þeir gætu kalkað veggina i útihús- unum og í neðstu stofuhæðunum, þar sem fæstir eru sjúklingarnir, en eg sjálfur í efri hæðunum; en hvernig sem á þvi stendur, þá eru allir drengir smeykir við mig. En maður getur samt orðið þess var, bæði af sjón og lykt, að hér hefir breyzt til batn- aðar; en það gæti orðið enn betra, ef eg gæti bara fengið betri hjálpcc. »0g eg vona að þér látið yður ant um það Önnu vegna, að pvotturinn sé fyrst lagður i vatnsker fyrir utan húsið. »Já, reyndar. Eg er búinn að fá húskarla snikkarans til að setja röð af vatnskerum úti fyrir dyrunum hjá okkur og til að lofa þvi að hafa vatnaskifti á þeim einusinni á dag. Eg hló að þeim, þegar þeir spurðu mig, hvort þeir gætu fengið sýkina við það. Annars eru þeir hverjum manni fúsari til að hjálpa þar, sem engin hætta er á ferðum. Simpson helir boðist til að lita eftir þvotta- katlinum, þegar hann fer í brauðgerðarhús- ið, meðan eg og Anna liggjum og sofum, sætt og vært, eins ' og hann komst að orði. Eg læt hann gera það og þakka hon- um fyrir það, en það er ekki mikið, sem við sofum, eða hugsum til að geta sofið núna«. »Þér vinnið sannarlega baki brotnu«, svaraði María, »og eg er hrædd um, að þér gerið það kauplaust og endurgjalds- laust. Eg sá aldrei fyrri svo« — »Hvað eruð þér að segja«, sagði War- render, »þér eruð vist fyrsta manneskjan sem svona hefir talað. En annars er nú ekki tími til að við stöndum hér og hæl- um hvort öðru, þegar tákn sést á himnl og reiði Guðs á jörðunnk. »Sjáið þér halastjörnuna? En hvað hún er fögur! Hún er oss til uppörfunar á næt- urvökunum. Ó, þér sjáið vist, að eg lít ekki svo á, að halastjarnan sé nein voðaleg bending um eitt eða annað, heldur á hún að kenna oss það, að vér þekkjum ekki alt enn, sem himininn ber í skauti sínu, þó að við þekkjum talsvert af þvi; til þess hefir Guð nú leitt þessa nýju stjörnu fram fyrir augu vor handa oss að undrast og dáðst að; eins er með farsóttína eftir min- um skilningi; hún er ekkert reiðitákn frá Guði. heldur sýnir hún, að fólkið hefir ekki kunnað að varðveita heilsu sína. Þeir hafa búið við óþrifnað, raka og molluloft, sumir við sult og seyru, aðrir lagst i drykkjuskap ; komi nú óvanaleg veðrátta, votviðrasamt vor og heitt sumar, þá leggjast þeir i sótt- inni. Þér skiljið vist, að eg get ekki kallað það reiði Guðs«. Warrander vildi ógjarna segja það, sem hann hugsaði: hversvegna fólkið hefði ver- ið látið vera svo fávist og þjást svona mik- ið. María kunni listina þá að vera fljót að lesa út úr svip manna hugsanir þeirra og svaraði þvi, sem þeim góða manni bjó i brjósti, meðan hún var að láta léx-eftabagg- ann upp. á herðar honum. »Við skulum nú sjá, Warrender, hvað fólkið getur lært, þegar Guð fræðir oss sjálfur. Kenning hans er ljós og lifandi á þessum dögum«. Warrender svaraði engu, en lyfti hattin- um og fór leiðar sinnar. Frænka Mai’iu var fyi'ir nokkru korain

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.