Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1918, Síða 15

Heimilisblaðið - 01.06.1918, Síða 15
95 HEIMILISBLAÐIÐ af þér. Eg held líka að mamma þin verðí góð við hana þin vegna upp frá þessu, þvi eins og þú veizt, elsku frænka, þá opua sjúkdómur og dauði talsvert augu vor«. »Já, vist er það, eg sé það alt nú«. Þegar Sally kom aftur með svarið frá presti, þá var hún ógn skömmustuleg og þó að hún vissi, að engum tíma mætti eyða, þá dvaldist henni þó við hurðina. Séra Finch féll þungt, að hann skyldi eiga svona annríkt; en hann vonaði, að ekki yrði sent eftir honum oftar, fyrst hann gat ekki komið. »Það hefði máske verið betra að senda einhvern annan«, sagði Sally með tárin í augunum við Mariu. »Getur verið að hann kæmi, ef þér senduð annan«. »Ekki held eg það, Sally. Þó skal eg fara sjálf, ef þú vilt vera hérna á meðan. Eg fæst ekkert um, hvað hann hugsar um mig, aðkomandi stúllcu í þessu þorpi, og það getur verið, að enginn i söfnuði hans geti sagt honum það eins og eg, að þetta sé skylda, sem hann geti ekki neitað að gegna«. María hafði ekki gengið á götum úti vikum saman, þvi þó að allir hefðu orðið þess varir í nágrenninu við Johnson frænku hennar, að hún hefði breytt út frá sér þrifnað, hreint loft, gleði og von, þá sáu menn hana þó aldrei ganga annað en úr einu sjúkraherberginu i annað í næstu hús- nnum. Hún hugði að það kæmi til af því, að hún væri svo óvön útigöngum, að alt kom henni nú svo ókunnuglega fyrir sjón- lr; en undarlega brá henni við það, að hún var nærri tilfinningarlaus i fótunum og hús og menn komu henni fyrir sjónir líkt °g i draumi. Samt fann hún ekki til nokk- Ul's lasleika og sagði með sjálfri sér, að ef hún bara fengi lóm til að sofa reglulega góðan dúr, þá mundi hún sjá alt og hafa iilfinningu fyrir öllu, eins og hún væri vön að hafa. Þegar hún gekk eftir götunni, hlupu hörnin frá leikjum sínum til að segja frá ÞVl» að »góða stúlkan« kæmi gangandi og allir, bæði heilbrigðir og þeir, sem voru í afturbata, komu út á dyraþrepið til að biðja Guð að blessa hana, og sjúklingarnir, sem höfðu nóga rænu til að skynja, hvað um væri að vera, báðu Guð í rúminu að blessa hana. Hverjum ráðum »góða stúlkan« beilti við prestinn, það veit enginn, því enginn hefir nokkurntima sagt frá viðtali þeirra, en hún kom fljótt aftur blíð og glöð í bragði og sagði að séra Finch kæmi innan stundar. Á leiðinni leit hún inn til War- renders og bað hann koma með dóttur sinni til að neyta kvöldmáltíðarinnar með hinni deyjandi konu. Þau tóku því fúslega og var viss um, að Sally mundi vera fús á að koma í stað Önnu við þvotlabalann, því það voru svo margir sjúklingar, sem þurftu á hreinu líni að halda fyrir kvöldið. Veslings Sally fór grátandi leiðar sinnar. Iiún skyldi, að »góðu stúlkunni« hafði ekki gengið annað en gott til að senda hána burtu til að gegna nytsömu starfi, fyrst hún gat, þvi miður, ekki neytt kvöldmáltíðar- innar með hinum. Hún lifði í synd, og þar sem tveir eða þrír eru saman komnir í Jesú nafni, hlaut henni þess vegna að vera vísað frá. (Frh.). ^ldhúsxáÚ. Finkur. 25 gr. smjör er brúnað í potti og bakað saman við 30 gr. af hveiti, sem svo er þynt út með l/a pt. af góðu kjötsoði, 250 gr. soðið kjöt, 2 epli, 1 meðalstór gulrófa hrá og tvær vænar hráar kartöflur; þetta er alt skorið í ekki mjög smáa ferhyrnda bita og látið út í jafninginn og látið sjóða í 20 mínútur, þá er það kryddað með 1 matskeið af ediki, 1 matskeið af sykri og pipar, og salt eftir vild. Síðast má láta ofurlítinn sósulit í jafninginn.

x

Heimilisblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.