Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.06.1918, Page 16

Heimilisblaðið - 01.06.1918, Page 16
96 ÍIEIMILISBLAÐIÐ fkuggsjá. Bambusreyrinn vex stundum áll að því 15 cm. á dag og á mánuði verður hann á hæð við þriggja hæða hús. Elsta blað í heimi eru kínversku ríkistíð- indin, »King Coo«; þau hófu göngu sína árið 911 og eru nú rúmra 1000 ára gömul. — í ríkisskjalasafninu í Peking er alt blaðið til frá upphafi. Og það einkennilega er, að fyrsta tölublaðið lítur út eins og það síðasta, aldrei nein breyting átt sér stað, hvorki smá né stór. Fimtán ritsljórar hafa mist höfuðið fyrir að hafa sagt eiltkvað í blaðinu, sem stjórn- endunum líkaði ekki. Alment vasaúr kvað geyma í sér eitthvað um 175 smáhluli. í vönduð fortepíanó er oft nolaður trjávið- ur, sem legið hefir í geymslu og til þurk- unar í 30—40 ár. Mörg af ríkjum Norður-Ameríku eru mjög slór ummáls. Texas er stærsta ríkið að um- máli og álíka stórt eins og þessi lönd öll: Belgía, Sviss, Holland, Frakkland, Rúmenía, Búlgaría, Serbía og Grikkland. í Lundúnaborg eru 500 járnbrautarstöðvar. Oft kemur það fyrir, að regnið á Ítalíu er blandað með sandsteinum, sem lcoma frá Sakara-eyðimörkinni. í Stokkhólmi er til sýningarstaður, þar sem sérstaklega er sýnt alt það, sem fundið er upp lil þess að bæta úr vandræðum þeim, sem af heimsstyrjöldinni leiða. Fyrir þessari sýningu ræður ungur maður, sein sannarlega er talandi vitni þess, hvað menn geta kjálpað sér sjálfir, þegar neyðin kreppir að. Klæðnaður hans er ger úr pappír ein- göngu og er mörgum forvitni á, hve hald- góðar pappírsbuxurnar hans verða. Tilraunir, sem áður liafa verið gerðar í þessu efni, hafa sýnt það, að föt úr pappír endast vel. SKRÍTLUR. Eggjasalinn: Pað er stríðinu að kenna, barnið gott, hvað eggin eru dýr. Ella: En livernig fara hænsnin að vita að stríðið er? , Kennarinn: Úr hverju eru búin til stígvél? Drengurinn: Úr leðri. Kennarinn: En livaðan kemur leðrið? Drengurinn: Leðrið er skinnið af nautun- um, sem slátrað er. Kennarinn: Hvaðan færð þú þá efnið í skóna þína og kjötið, sem þú borðar? Drengurinn: Frá pabba. Konan (við bónda sinn, sem er að taka sér kerlaugarbað): Hvers vegna lætur þú ekki fæturna ofan í lika? Bóndinn: Læknirinn sagði, að eg ætti að varast að vera blautur í fætur. Jón: Af hverju ertu að gráta, mamma? Móðirin: Af þvi að hann Árni bróðir þinn ver öllum aurunum sínum til að sitja í leik- húsinu. I*ú ætlar ekki að gera það, þegar þú ferð að vinna þér inn aura. Jón: Nei, mamma, það skal eg ekki gera. Eg skal altaf fara í Bíó. Heimilisblaðið biður alla þá kaupendur sína, sem ekki eru búnir að borga, að láta það ekki bregðast að senda borgunina með næsta pósti eftir móttöku þessa blaðs. Peir kaupendur blaðsins, sem skift hafa um bústaði í vor, geri afgreiðslunni aðvart. Hún er eins og áður í Bergstaðastrœti 27. Útgefandi: Jón Helgason, prentari. Prentsmiðjan Gutenberg. %

x

Heimilisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.