Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1920, Qupperneq 2

Heimilisblaðið - 01.03.1920, Qupperneq 2
34 HÉIMILISBLAÐÍÐ an er að ræða, kemur engum til hugar að setja út á eða finna að — segja menn; gagn- vart honum, sem gekk í kring og gerði öllum gott, — honum, sem til hinstu stundar lét leiðast af kærleikanum einum, án minstu eigingirni, — gagnvart honum, getur enginn fundið til annars en aðdáunar, lotningar og kærleika. — Slíkur er hinn algengi hugsun- arháttur. Og í fyrsta áliti virðist þetta hið eina eðli- lega. Þeir, sem kyntust Jesú, meðan hann gekk um kring meðal Gyðinganna, sem »manns-sonur«, urðu gagnteknir af einhverju alveg einstæðu í ræðum hans: »Aldrei höf- um vér heyrt nokkurn mann tala eins og þessi maður talar«, sögðu þeir. Og slíkt hið sama verður enn hverjum þeim, er með gaumgæfni les æfisögu Jesú í guðspjöllunum. Hann var y>fullur náðar og sannleikaa. Það var einmitt það, sem gerðí líf hans svo óvið- jafnanlega dýrðlegt og olli því, að lærisvein- ar hans, er verið höfðu strangir eingyðis- trúarmenn, festa sjón á dýrð hans, »dýrð sem hins eingetna sonar föðursins«, eins og segiríJ. 1, 14. Og af þessu lífi, fullu náðar og sannleika, leggur enn í dag hinn sama verm- andi dýrðarljóma um sérhvern þann, sem af alúð leitar í guðspjöllunum náinnar viðkynn- ingar við Jesúm frá Nazaret. Að slíkri per- sónu œttu ekki að komast aðrar tilfinningar en aðdáun, lotning og kærleikur! Og þó er það svo, að af öllu sem vér vit- um um líf Jesú, er ekkert áreiðanlegra en það, að þeir, sem kyntust honum, voru síður en ekki samdóma um hann. — Það var mælt um hann þegar i barnæsku, að hann væri seltur til tákns, sem móti yrði mælt (J. 2, 34.), og öll æfisaga hans staðfestir þau ummæli. Hvað eftir annað rekum vér oss á skiftar skoðanir meðal þeirra, er kynni höfðu af honum. Og þeir lögðu ekki neinar hömlur á óvildar-hugsanir sinar, svo sem að- eins væri um að ræða lítilsháttar aðfinslur við einstök atriði í kenningu hans eða starfs- aðferð. Nei, óvildin varð brátt að þvi hatri, er ekki lét sér annað lynda en það, að Jesús væri ráðinn.af dögum. — Hann, sem sjálfur var svo óviðjafnanlega huglaðandi, átti svo heiftrækna óvini, að þeir fengu hann dæmd- an til dauða, enda þótt dómarinn fyndi enga sök hjá honum og leitaðist við — að svo miklu lej'ti, sem það ekki stofnaði bonuBi sjálfum i hættu — að fá hann látinn lausau- Allir á einu máli um Jesú! Nei, hann vakti hjá einstökum mönnum þá óvild, er endaði í hinu afskaplegasta ofstækis-hatri. Og þessir óvinir Jesú voru ekki nein oln- bogabörn, né heldur dáðlaus varmenni, er væri uppsigað við alla og því lítils um vert. hvort þeir væru með eða móti. Nei, þa® voru guðræknir menn og mikilsmetnir, mátti ætla að þeir væru öðrum fremur bærir að skilj3 Jesú og meta að verðleikum. Því að það, sem hannhelgaði líf silt, sem sé stofnun Guðsríkis a jörðu, það var einnig þungamiðja þeirra eigiJJ lífsstarfs, — að minsta kosli að því er bæði þeir og aðrir álitu. Hvað var það þá í fari Jesú, er hratt slík' um mönnum svo sviplega frá honum ? En spurningin er víðtækari. Jesús benti lærisveinum sinum oftsinnis á það, að Þejr yrðu að vera við því búnir, að sæta batri fgrir hans nafns sakir. Þetta er einn dráttur þeirrar myndar af Guðsríki, sem Jesús dró upp í fjallræðunni, þar sem hann segir með' al annars: »Sælir eruð þér, þá er menn at' yrða yður og ofsækja og tala ljúgandi alt i*1 um yður min vegnaa. (Mt. 5, 11). Hann vék og að þessu, er hann sendi frá sér postulana og sagði þeim fyrir, hverra kjara þeir mættu vænta: að þeir mundu hans vegna verða »hataðir af öllum« (Mt. 10, 22). Og hið sama kemur fram í skilnaðarræðu hans til p°st’ ulanna: »Ef heimurinn hatar yður«, niæU1 hann, »þá vitið, að hann hefir hatað mJé fyrri en yður« .... »Hafi þeir ofsólt mJl> þá munu þeir líka ofsækja yður. En a^ þetta tnunu þeir gera við yður vegna nafnf mins, af því að þeir þekkja ekki þann, er mig sendi« (J. 15, 18—21). Og í fyrirbæn- inni fyrir postulunum, siðasta kvöldið sem hann var með þeim, sagði hann við föður sinn: »Eg hefi gefið þeim orð þitt, og hein1 urinn hefir hatað þá, af því að þeir beýríl

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.