Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1920, Qupperneq 7

Heimilisblaðið - 01.03.1920, Qupperneq 7
HEIMILISBLAÐIÐ 39 Jesú, er vakti og örvaði slíka óvináttu gegn honum, þá koma brált í ljós þrír höfuð- drættir í skýringunni. Sterkust mótmæli og beiskasta gremju vakti a't það í ráði hans og ræðu, er að því laut, »hann gerði sjálfan sig að Guðs syni«; enda var það að lokum eitt aðal-kæruatriðið (J- 19, 7). En það sem gerði ræðu hans um guðdóm- ^egan myndugleika enn hneykslanlegri í eyrum Earíseanna og hinna skriftlærðu, var sá öiælikvarði, sem hann í orði og verki lagði a öll andleg mál; ytri alhafnir og háttsemi ^’irti hann einungis eftir þeim hvötum, er tíl grundvallar lágu, og þeim hug er fylgdi máli. Af þessum gagngerða stefnumun er það anðskilið — enda auðsælt í guðspjöllunum að hin sívaxandi áhrif Jesú juku gremj- u&a og óvináttuna gegn honum. — Hér höfum vér þá þrjú megin-atriði hat- ars-orsakanna: 1) Fullyrðing Jesú um að hann og Guð væru eitt og að hann hefði guðlegt vald; 2) hans óvinsæla mat á orð- um og athöfnum manna, eftir hugarfari þeirra °g hvötum; 3) sívaxandi áhrif hans. 1. Guðlegt vald. Þegar Jesús sagði við lama manuinn: sJ'ndir þínar eru þér fyrirgefnar, báru fræði- mennirnir og Farísearnir honum á brýn, að að hann færi með guðlastanir (L. 5, 20—24, sbr- 7, 49). f>að er auðsætt, að hér er um það atriði að rseða, er miklu hlaut að ráða um afstöðu manna b' Jesú, — atriði, sem jafnan hlýtur að reynast þungt á metum. Hún verður sem sé ekki véfengd, þessi grundvallar-setning, sem %ðingarnir bygðu á andmæli sín: »Hver 8etur fyrirgefið syndir, nema Guð einn?« Það er Því ómótmælanlegt, að með því, að fyrir- gefa syndir, tjáði Jesús sig liafa guðlegt vald. Hinsvegar líta þó sumir svo á, að þetta ^egi skilja á annan veg; Jesús hafi alls ekki tjáð sig fyrirgefa syndir í sínu eigin nafni, neldur að hann með þar að lútandi ummæl- sínum hafi viljað fullvissa hlutaðeigendur Uln> að Guð væri reiðubúinn að fyrirgefa þeim. En ef þetta hefði verið meining Jesú, þá er augljóst að hann hefði gefið þá skýringu, þegar er hann varð þess var, að andstæðing- arnir misskildu orð hans og hneyksluðust á þeim. En því fór svo fjarri, að hann viki orðum í þá átt, svo sem til að hnekkja guð- löstunar-ámælinu. Andstæðingarnir hugðu það því að sjálfsögðu fyllilega réltmætt, að trúar- meðvitund þeirra risi öndverð gegn orðum hans. — Að vekja bneyksli, það taldi Jesú vera svo hræðilegt og há-alvarlegt, að hann hefði sannarlega aldrei viljað vera þess vald- ur. En e/ önnur merking var fólgin í orðum hans en sú, sem æsti Gyðingana og sparn þeim frá honum, þá var þar að ræða um misskilning, sem olli hneykslaninni. Slíkan misskilning mundi Jesús umsvifalaust hafa fjarlægt, með viðeigandi skýringu. En í stað slíkrar skýringar gaf hann þeim það, sem hann sjálfur nefndi sönnun þess, að hann hefði guð- legt vald til að fyrirgefa syndir, sbr. orðin þessi: »En til þess að þér vitið, að manns- sonnrinn hefir vald á jörðn til að fyrirgefa syndir, — þá sagði hann við lama manninn: — eq seqi þér, statt upp, tak rekkju þina oq jar heim til þína (L. 5, 24). Með þessum hætti hélt Jesús því fram, að hann og Guð væru eitt, — að hann hefði bæði vald og rétt til að gera það, sem eng- inn getur gert, nema Guð einn. Þegar al- vörugefnir trúmenn risu á móti, endurtók hann fullyrðingu sína og áréttaði hana með kraftaverki, því til sönnunar, að hann segði ekki um of. Skýlaus meining Jesú var því sú hin sama, sem Gyðingarnir lögðu í orð hans. Og hann hlýtur að hafa talið þetta miklu máli skifta; annars hefði það verið fjarslæða, að halda fullyrðingunni fram, er hann sá, hve mjög hún gerði menn honum fráhverfa og hneykslaði þá. Og það var ekki aðeins í þetla skifti, að hann lagði áherzlu á guðdóms-vald sitt. Slíkt hið sama gerði hann eftir að hafa læknað sjúklinginn við Betesda-laugina (J. 5, 17-áfr.). »Fyrir því leituðust Gyöingarnir nú enn frekar víð að ráða hann af dögum, að hann ekki einungis braut hvíldardags-helgina, held-

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.