Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.11.1920, Blaðsíða 8

Heimilisblaðið - 01.11.1920, Blaðsíða 8
168 HEIMILISBLAÐIÐ Margur er þjóðhetja, þó hann sé ekki nafnfrægur. Þjóðhetja er fjölskyldumaður sá, sem uppelur börn sín vel og lætur heldur lífið í hættulegri vinnu vegna þeirra en að vera upp á aðra kominn. En þótt vér ekki þurfum að fórna lifi, heilsu eða fé fyrir ættjörðina, þá getum vér samt gert henni gagn. En ottast kostar það þó einhverja sjálfsafneitun. Kostar oft það, að neita sér um næði og nautnir. Kostar það, að þurfa að vinna hart og lifa spart. En flestir vilja nú helst eiga hægt og gott. Þeim finst hörð þraut að fara of snemma á fætur eða missa af einni máltíð. En því smærri og veikari sem þjóðin er, þess meiri sómi er að reynast henni eins og ástkær og drenglyndur sonur. (Pri».). rglsku frœnkan mín'. Nlðurlag. »Findist yður, kæra Nelly, ekkert i það varið, ef þér gætuð hengt þessa dýru gull- festi um hálsinn á yður?« Og ekki held eg það«, svaraði eg blátt áfram, því að mér fanst á henni, að hún mundi vilja gefa mér gullfestina, en það vildi eg ekki þiggja. 1 sama bili har þar að mann með her- mannasnið á sér, háan vexti. »Aktu áfram«, sagði þá Lavinia sviplega með hásum og höstum rómi, svo að eg var alveg steinhissa. »Mér varð snögglega ilt«, sagði hún sér til afsökunar, þegar eg var komin inn í hliðargötu með hana. Maðurinn hávaxni fór leiðar sinnar. »Það var hann David Phylston, nýi lög- regluþjónninn«, sagði einhver stúlka við aðra þar á götunni. Þegar við komum heim, þá var þar kom- inn gestur, — það var prestur hár og grannlegur á vöxt og tignarlegur ásýndum. Mér sýndust konurnar verða hrifnar af komu hans. Seinna um daginn, þegar við vorum komin út á gangbrautina, þá gáfu menn okkur heldur en ekki auga; og það voru engin undur. Það var »hrifandi« að sjá okkur öll saman á skemtiför; gömlu, elsku- legu hefðarkonuna í ökustólnum, fylgi- mey hennar, í blóma æskunnar, og prest- inn, hávaxinn og tignarlegan. Það var glatt á hjalla við kvöldverðar- borðið, þó að úti væri kolniðamyrkur og beljandi óveður. »Elsku frænka« Lavinía var á fótum, aldrei þessu vön, og kom þá i Ijós, að hún kunni margt til skemtunar, þó roskin væri. Klukkan var orðin 11, þegar við buðum hvert öðru góða nótt og frú Graham slökti á gasljósunum, eftir vanda. Áður en prestur kvaddi, lagði hann til, að eg og hann skyldum drekka hvert öðru til þvl til staðfestu, að við mættum bráð- lega eiga jafnglatt kvöld saman aftur. Þegar eg kom upp í herbergið mitt, þá gat eg varla á fótunum staðið; eg varð alt í einu svo ákaflega syfjuð og fleygði mér út af í rúmið i öllum fötunum og sofnaði á auga- bragði. Eg veit ekki, hvað eg hefi sofið lengi, en þegar eg vaknaði, þá var eitthvert óbragð í munninum á mér og mér fanst mér líða svo illa. Datt mér þá í hug, að í borðstof- unni stóð sódavatn og að eg mundi bafa gott af að fá mér eitt glas af því; opnaði eg þá hurðina hægt og hljóðlaust og þreif- aði mig áfram niður stigann með mestu varúð, því að niðdimt var. En er inn í borðstofuna kom, aá eg, að gasið logaði hálfum loga á lampanum og furðaði mig mjög á þessu, því að eg mundi svo glögt að frú Graham, hafði slökt á lampanum, áður en við gengum til rekkju. Eg ætlaði að fara að rétta fram hendina til að slökkva á lampanum;*en þá heyri eg fótatak fram í ganginum og hrökk eg þá saman. Þjófur! hugsaði eg. Eg opnaði munninn og ætlaði að fara að hljóða, en

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.