Heimilisblaðið - 01.09.1948, Blaðsíða 8
148
HEIMILISBLAÐIÐ
William Saroyan
P í A
— Mér finnst ég verða svo skrítinn í hvert
skipti sem ég sé píanó, sagði Ben.
— Verðurðu það? sagði Emma. — Hvers
vegna?
-— Ég veit ekki, sagði Ben. — Hvað segirðu
um, að við göngum inn í verzlunina og reyn-
um það litla í liorninu?
— Kanntu að leika á píanó? sagði Emma.
— Ég veit ekki, hvort þú kallar það að
leika, sagði Ben.
— Hvað er það þá? sagði Emma.
-— Þú færð nú að sjá, sagði Ben.
Þau gengu inn í verzlunina og að litla
píanóinu í horninu. Emma sá hann brosa,
og hún spurði sjálfa sig, hvort hún mundi
nokkurntíma skilja hann. Hún gat gengið
lengi með lionum og lialdið, að hún þekkti
hann vel, en allt í einu komst hún að raun
um að svo var ekki. Hann stóð hjá píanóinu
og virti það fyrir sér. Hana grunaði, að liann
hefði ef til vill hlustað á fólk, sem lék vel
á píanó, því hann kærði sig aðeins um góða
músík, og í hvert skipti sem liann sá hljóm-
borð á píanói kom honum inúsík í hug, og
liann ímyndaði sér, að hann væri píanósnill-
ingur.
— Kanntu að leika á píanó? sagði hún.
Ben horfði í kringum sig. Afgreiðslumað-
urinn var hvergi nálægur.
— Nei, ég kann ekki að leika, sagði Ben.
Hún sá, hvernig hendur hans slruku nót-
urnar. Þær voru alveg eins og hendur píanó-
leikara. Henni fannst þetta svo undarlegt,
það var' rétt eins og hann kynni að leika
á píanó.
Ben sló varfærnislega nokkrar nótur. Það
kom enginn afgreiðslumaður í ljós. Hann
hélt því áfram að reyna hljóðfærið.
Henni fannst hann leika ágætlega. En leik-
ur hans stóð aðeins í hálfa mínútu. Þá skotr-
aði hann til liennar augunum og sagði:
»
— Það hljómar vel.
— Mér finnst þetta prýðilegt, sagði Emma-
- Ég á ekki við leikinn hjá mér, sagði
Ben. — Ég á við píanóið. Það hefur ágætan
hljóm, óvanalega góðan af litlu píanói að vera.
Miðaldra maður gekk fram í búðina til
þeirra og sagði: — Góðan daginn.
— Góðan daginn, sagði Ben. Þetta er ágætt
píanó.
-— Það er mjög gott liljóðfæri, sagði kaup'
maðurinn. Sérstaklega þægilegt fyrir heima-
hús. Við höfum selt mörg.
— Hvað kostar það? sagði Ben.
Tvö hundruð fjörutíu og níu dollara'
sagði kaupmaðurinn. — En þér getið auðvita*
greitt það með mánaðarlegri afborgun.
Ilvar er það framleitt, sagði Ben.
— Ég veit það ekki með vissu, sagði kaup
maðurinn, — en að öllum líkindum í PUila
delphíu. En ég get tekið ábyrgð á þvi.
— Enga áhættu mín vegna, sagði Bcl1-
Leikið þér á píanó?
- Nei, því miður, sagði kaupmaðurinn-
Hann sá, að Ben vildi gjarnan reyna þa<
einu sinni enn.
péx
— Gjörið þér svo vel, sagði liann. -
megið leika á það.
— Ég kann ekki að leika, sagði Ben-
— En ég heyrði yður þó leika, sagði kaUp
maðurinn.
—: 0, það var enginn leikur, sagði Bcl1
—- Ég^þekki ekki nóturnar.
— Mér fannst þér spila ágætlega, s3?1
kaupmaðurinn.
Mér líka, sagði Emma. — Hversu mik1
á að greiða strax? „
— 0, sagði kaupmaðurinn. — Fjörutíu c ^
fimmtíu dollara. Gjörið þér svo vel.
væri ganian að heyra yður leika aftur.
-— Ef það væri heima, sagði Ben, — þa "x
ég leikið í næði.