Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.09.1948, Side 13

Heimilisblaðið - 01.09.1948, Side 13
heimilisblaðið 153 — De Berault, ef yður er sama, sapiði ég og leit hvasslega á liann. — Forskeytið de á sér jafn langa sögu í ætt minni og yðar, herra de Pombal. Hann gat ekki neitað því og svaraði: — Eins og yður þóknast, og um leið gaf hann vini sínum bendingu um að fara sér liægt. — En engu að síður, liélt liann áfram, — ætt- uð þér að fara að ráðum mínum. Kardínál- inn hefur bannað einvígi og nú er lionum alvara! Þér hafið áður lent í klípu og slopp- ið. Það gæti farið verr fyrir yður, ef sagan endurtæki sig. Leyfið þessum manni því að fara, herra de Berault. Og þar að auki er þetta skömm fyrir yður, maður niinn! hróp- aði hann með hita; — þetta er bara drengur! Tveir eða þrír af þeim, sem stóðu hak við mig, voru á sama máli. En ég sneri mér við °g hvessti á þá augun, og þeir þögnuðu sam- stundis. — Aldur hans varðar hann einan, sagði ég hörkulega. — Hann var nógu gamall til að Jnóðga mig áðan. — Og ég skal sanna orð mín! hrópaði pilt- urinn, sem gat nú ekki lengur liaft hemil á sér. Hann var stórgeðja, og markgreifinn liafði átt fullt í fangi með að halda aftur af lion- uni svona lengi. — Þér gerið mér engan greiða uieð þessu, herra de Pomhal, hélt liann áfram og hristi hönd vinar síns af sér með vanstillingu. — Ef yður er sama, mun ég gera ut uni þetta mál við mann þennan. — Þetta líkar mér betur, sagði ég og kink- aSi kuldalega kolli, en markgreifinn stóð á- lengdar, þungbrýnn og ráðalaus. — Leyfið mér að vísa yður leiðina. Veitingahús Zatons stendur tæp hundrað shref frá St. J acques, og helmingur gestanna hom þangað með okkur. Það var rigning, götu- Ijósin voru dauf og göturnar voru óhreinar °S sleipar. Fáir voru á ferð í St. Anloine- götunni, svo að enginn tók eftir hópnum, 8®m hefði lilotið að draga að sér athvgli mainia f>’rr að deginum, og við komumst án uokk- Urrar tálmunar inn á steinlagða þríhyrning- JUn sem er hak við kirkjuna. Ég sá einn af varðmönnum kardínálans vera á vakki fyrir framan smíðapallana, sem umluktu nýja Bicheliu-gistihúsið, og er ég bar kennsl á cmkennisbúninginn, hikaði ég andartak. En það var orðið of seint að iðrast. Englendingurinn hóf strax að færa sig úr ytri fötunum. Ég hneppti mínum upp í liáls, því veðrið var hráslagalegt. Þegar við vor- um að húast til bardagans, og flestir liinna viðstöddu virtust helzt ekki vilja standa of nálægt mér, faim ég einhvem taka í handlegg mér. Ég sneri mér við og sá dvergvaxna klæð- skerann úr Savonnerie-götunni, sem ég bjó hjá þá stundina. Mér þótti það stómm mið- ur, að hann skyldi koma, svo að ekki sé dýpra tekið í árinni. Ég liafði stundum hvatt hann til að koma frjálsmannlega fram við mig heima, þegar ekki var völ á betri félagsskap, en mér fannst samt engin ástæða til að hann liéngi á mér frammi fyrir aðalsmönnum. Ég liristi hann því af mér og vonaði, að ég gæti þaggað niður í honum með því að hvessa á liann augun. En liann lét ekki annað eins og það liindra sig, svo að ég neyddist til að tala við hann. — Á eftir, herra minn, sagði ég í flýti. — Ég hef öðru að sinna núna. —- I Guðs bænum, gerið þetta ekki, herra minn! hrópaði karlaulinn og liékk í ermi minni. — Gerið það ekki! Þér leiðið bölvun yfir hús mitt. Þetta er ekki nema drengur og — — Ætlið þér nú að byrja líka! öskraði ég og var alveg að missa þolinmæðina. — Þegið þér, skepnan yðar! Hvað þekkið þér til deilu- mála aðalsmanna? Burt með yður, heyrið þér það! —• En kardínálinn! lirópaði hann skjálf- andi röddu. — Kardínálinn, herra de Berault! Hann liefur enn ekki gleymt síðasta mann- inum, sem þér drápuð. Það er alveg áreið- Únílegt, að nú — — Burt með yður, heyrið þér það! livæsti ég. Ósvífni mannsins átti sér engin takmörk. Hún var jafn fráleit og vælið í lioiuim. -— Komið yður hurt! hætti ég við. — Þér óttist það sjálfsagt, að hann muni drepa mig og þér munið tapa peningunum yðar. Frison höfaði undan, rétt eins og é'g hefði slegið hann, og ég sneri mér að andstæðingi mínum, sem liafði beðið mín óþolinmóður. Guð veit, að hann var ungur að sjá, þar sem hann stóð berhöfðaður og ljóst liárið liðaðist niður vfir slétt og kvenlegt ennið — aðeins unglingur, nýsloppinn út úr Burgundy-skól- anum, ef þess konar stofnanir eru þá til í

x

Heimilisblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.