Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1972, Blaðsíða 9

Heimilisblaðið - 01.05.1972, Blaðsíða 9
elskhugi Diönu, kemur mér það undarlega fyrir sjónir að þér gangið hér um dulbúinn sem hestasveinn ... “ Baxter komst ekki lengra, því John rétti honum svo vel útilátið kjaftshögg að hann kastaðist aftur á bak niður í áburðarhaug, sem John var nýbúinn að moka út úr hest- húsunum. Baxter reis öskrandi á fætur, og horfði á útskitin fót sín. „Hvern fjandann ... “ byrjaði hann, en þegar John færði sig nær honum, lagði hann a flótta. John stóð og horfði á eftir honum. „Það var svei mér gott að fá ástæðu til aÖ berja á honum.“ tautaði hann. ,,En ham- h^gjan má vita hvað Diana segir þegar hún faer að vita hvað gerst hefur.“ Diana kom heim frá Wantham skömmu seinna. Hún hafði farið til Crawthorn & Co. °g fengið að vita að John hafði greitt korn- teikninginn, og þegar hún kom inn í hest- húsin var andlit hennar öskugrátt af reiði. „Hvernig vogið þér yður að gera annað eins °g þetta?“ spurði hún. „Hvað ungfrú,“sag ði John sakleysislega. „Hættið þessum leikaraskap," æpti Diana. , Þér vitið ósköp vel, um hvað ég er að tala. ^ér hafið greitt kornreikninginn minn, og gert mig skulduga yður — hestasveini. Ég veit Vel, að þetta hafa ekki verið yðar peningar, sem þér borguðu reikninginn með. Viðurkenn- bara, að þér séuð í slagtogi með Baxter. Éann hefur fengið yður til að borga reikn- Ir>ginn, til þess að ná ennþá sterkari tökum a mér.“ „Þetta er ekki rétt hjá yður. Peningana, sem ég borgaði með, átti ég sjálfur “ svaraöi John rólega. „Ég trúi yður ekki,“ svaraði Diana. „Hvers Vegna ráðið þér yður hér sem hestasvein, ef Þér hafið svona mikla peninga?" „Vegna þess, að mér geðjast vel að því að vera. hérna.“ ,Svo. En þetta verður þá síðasti dagurinn yðar hér. Ég vil ekki sjá yður framar. Pening- ana skal ég senda yður, eins fljótt og ég get. hér getið látið ráðsmanninn fá heimilisfang yðar.“ Aður en John gæti svarað, var hún rokin hurtu. Hann stóð lengi, og horfði fram fyrir sig. „Og fjandinn hafi það,“ tautaði hann. Klukkustund síðar flutti hann frá Selcombe Grange. Hann fór þó ekki lengra en í krána í þorpinu, því að hann vildi ekki tapa sjónum af Diönu, fyrst um sinn. Á hverjum morgni fór hann upp í hæðirnar, og fylgdist með því, þegar hún sýslaði við hestana. Hann reyndi að vera í felum en það var ekki svo auðvelt, og tvisvar sinnum uppgötvaði Diana hann. Hún reið fram hjá honum með reigt höfuðið, án þess að heilsa. En þriðja morguninn, skeði nokkuð, sem vakti furðu hans. Þegar hann kom á þann stað, sem hann var vanur að fela sig á, var Diana þar, og beið hans. Hún leit kundalega á hann, og steig af baki. „Jæja. Svo að þér hafið einnig verið svo ósvífinn, að kaupa veðskuldabréfin af Baxter og senda mér þau sem gjöf “ sagði hún með ofurlítið titrandi röddu. „Hvers vegna gerið þér þetta? Hvað meinið þér með þessu?“ ,Ég gerði það af áhuga fyrir staðnum, þar sem ég er fæddur, og sem sönnum um virðingu fyrir konu, sem ég hefi aldrei getað gleymt." Diana starði undrandi á hann. „Hvað meinið þér,“ stamaði hún. John þagði augnablik. Svo sagði hann bros- andi. ,Munið þér eftir ungum manni, sem hét John Ruston, syni hestasveins föður yðar. Hann var sendur burtu frá Selcombe, af því að þér sögðuð föður yðar að hann hefði kysst yður, og að það væri ásetningur yðar að gift- ast honum, þegar þér yrðuð fullvaxta?" Diana færði sig nær honum. „Hvernig vitið þér þetta?“ hvíslaði hún. „Þér eruð þó ekki ... “ „Jú ég er hann. Ég var sendur til frænda míns í Argentínu, og þegar hann dó, arf- leidi hann mig, og ég tók upp ættamafn hans. Þess vegna heiti ég nú Gorridge." Nú varð Diönu allt ljóst. Þetta var ástæðan til þess að hana langaði til að trúa þessum manni fyrir sorgum sínum. Hun hafði aldrei gleymt honum. Ást hennar til hans var eins og eldur, sem hulinn hafði verið ösku. Nú blossaði hún upp aftur, eins og ljós logi. ,,John.“ hrópaði hún. , Ó, John. Hvers vegna sagðirðu þetta ekki strax?“ „Vegna þess., að þú varst bam, þegar ég flutti til Argentíun — og ég gat ekki vitað hvort þú kærðir þig um mig lengur.“ BEIMILISBLAÐIÐ 97

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.