Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1981, Qupperneq 24

Heimilisblaðið - 01.01.1981, Qupperneq 24
yrði hann af nokkru af sýningunni. Til beggja hliða sátu áhorfendur og ræddu með fjöri um það, sem þeir höfðu séð. Honum datt þá aftur í hug að hjálpa Rut, en hann vísaði henni jafnharðan á bug. En hún leitaði alltaf á, hvernig sem hann reydi að berjast gegn henni. Loks varð hún þó ofan á og þá var hann skjót- ur til framkvæmda. Hann spratt upp og ruddi sér veg gegn- um múginn og á svipstundu var hann kom- inn að baki húsmóður sinnar. Þarna lá Rut, eins og hún væri örend. Hann laut niður í snatri, tók hana á sína styrku arma og þaut af stað með hana — út úr leikhúsinu og eftir götunni. Hann bar fljótt að höll Klaudiu. Hann barði knálega að dyrum og var þá óðar lokið upp hliðinu. Þaut hann þá með hana inn í þrælaskálann eða forsal hallarinnar; þar innar af voru híbýli Klaudiu. Þar æpti hann af öllum kröftum : — Ástríður! Ástríður! — Hvað er um að vera? hrópaði stúlka og snaraðist inn. — Hvað er um að vera — það er hún hérna — Rut — sem hefur fallið í ómegin — hún er máske dáin. Sæktu Ástríði — hún verður að koma óðara og annast um hana. Að svo mæltu lagði hann Rut á legubekk og rauk svo af stað. Hann hljóp nú harð- ara en áður, það var sem hann flygi eftir götunum og að fám mínútum liðnum var hann aftur kominn á sinn stað í leikhús- inu, og þá var rétt í því ný sýning að byrja. Hann hrósaði happi yfir því, að hann hefði einskis farið á m.is af þessari ágætu kvöldskemmtun. En jafnframt fann hann fullnægju í því, að hann hafði gert eitt- hvað óvenjulegt og gat ekki annað en furð- að sig á sjálfum sér — veglyndi sínu og drengskap. Framh. 24 HEIMILISBLAÐ

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.