Hvöt - 01.01.1902, Qupperneq 1
H V 0 T.
BLAÐ UMDÆMISSTÚKU AUSTURLANDS
AF I. O. Q. T.
I. ÁRG.
1. TBL.
RITSTJÓRI: JÓN JÓNSSON, UMD. UMB.M.
i. JANÚAR 1902.
Kæru rcglubrærtur! Unr leið og jeg
sen'di yður þecta blað, scm á að
vera nýarskveðja mín til yðar allra, vil
jeg í fám orðum skýra frá þv', hvernig
á blaði þessu stendur.
Eins og yður öllum er kunnugt, cr nú
svo langt komið, að síofnuð hefur verið
umdæmisstúka fyrir Austurland.
I’að er mín skoðun, að engin umdæm-
isstúka á landinu sje eins nauðsynleg
og þessi, — hitt er víst, að engin um-
dæmiss.túka stendur eins vel að vígi og
þessi stúka, livað samgöngur snertir,
í’rátt fyrir það, sá framkvæmdarnefnd-
in sjer ekki færl að kalla saman fund í
haust, og veiður næsti fundur því ckki
haldinn fyr en á komandi vori. — Mjer
finst sem sambandið milli stúknanna
verði helzt til of litið mcð þessu móti
og héfur því hugkvæmst, að úr þessu
yrði bezt bæ.tt, með því, að gefa út lít-
ið blað, sem Umdæmisstúkan kostaði og
að allir skuldlausir meðlimir í undirstúk-
unum í umdæminu fcngju ókeypis, cn
öðrum yrði það vitanlega selt.
Blað þctta hef jeg hugsað mjer að
kæmi út 6 sinnum á ári hvcrju, að vetr-
inum til hálf örk í hvert sinn. í blað-
inu ættu að vera frjcttir frá öllum
stúkum umdæmisins, og vil jeg því
biðja ritarana og aðra góða bræður að
senda mjer sem oftast fregnir um alt
markvert sem fyrir kemur í stúkunum.
Jeg hef hugsað mjer að gjöra tilraun
með þítta.í vetur og getur Umdæmis-
stúkan á fundi sínum í vor tekið ákvörð-
un um hvað gjöra skuli.
Kvcð jcg yður svo og óska Reglunni
vaxtar og virðingar í landi voru, stúk-
unum heilla og hamingju og hverjum
einstökum fjclaga góðs gengis og bless-
unar á þessu nýbyrjaða ári.
Bróðurlegast
Jón Jónsson.
Framför eðaafturför.
, Jeg lít svo á, sem bindindismálinu sje
að þoka áfram hjer á Austurlandi og
dreg það af því, að þetta sfðastliðið ár
hefur engin yínvcrzlun verið á Köpaskeri,,
Raufarhöfn. Pórshöfn, Vopnafirði, Borgar-
firði, Mjóafirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði,
Stöðvafirði, Djúpavogi pg ITornafirði. —
Það eru því aðeins 3 verzlunarstaðir, cr
halda uppi áfengissölunni og nú er í
orði, að Seyðisfjörður losni einnig við
áfengisverzlunina framvegis. — Þetta
eru því mciri framfarir, þar senr óhætt
má fullyrða, að áfengisnautnin hafi stór-
um þverrað í þeim sveitum, er salan hef-
ur hætt, þó ekki hafi hún enn þá lagst
niður með öllu. Yfir höfuð una menn
þvf vel að hafa enga vínverzlun f ná-
grenni við sig, Og það má ganga að því