Hljómlistin - 01.04.1913, Side 3
Richard Wagner.
22. maí 1913 eru hundrað ár liðin síðan
mesta söngleikatónskáld heimsins, Richard
Wagner fæddist; 100 ára afmæli hans er
hátíðlegt lialdið um allan mentaðan heirn og
á því vel við að »Hljómlistin« minnist hans
lítið eitt.
Richard Wagner fæddist nefndan dag 1813
í Leipzig. í uppvexti hans bar snemma á
að hann var hneigður fyrir skáldskap, og
ætlaði hann um tíma að gefa sig við hók-
mentum, en bráðlega breyttist þetta áform
hans, og fór hann að stunda söngfræði af
kappi og lærði hann lijá mörgum mætum
meisturum. Um tvítugt byrjaði hann á laga-
smíð, en ekki eru þau lög lians sérkennileg
og fór það að vonum því hann var ungur og
óþroskaður. 1834 varð hann fyrst æðsli söng-
stjóri við leikhúsið í Magdeburg, en að eins
stulta stund. 1837—39 dvaldi hann á Rúss-
landi (söngsljóri í Riga) en varð að hröklast
þaðan og héll lil Parísar og var þar 1839—42;
þar leið lionum illa, svo hann varð að lifa
á nótnaskrifum, en dvölin liafði mikla þýð-
ingu fyrir andlegan þroska hans, þvi bæði
heyrði liann öll frægustu stórverk á sönglist-
inni ágællega leikin og kyntist í borginni
fjölda tónsnillinga. Prált fyrir örbyrgð sína
slarfaði Wagner mikið að söngleikagerð þessi
ár og samdi: Rienzi og Der lliegende Hollaender.
1842 var liann skipaður hljóðfæraílokksljóri
við hirðleikhúsið í Dresden; var Wagner
óvanalega duglegur í stöðu þessari, afarvand-
virkur og stórvirkur að sama skapi og má
einkum nefna að hann lét leika 9. symfoniu
BeelhovenS, sem alveg var gleymd. 1848—49
var frelsishreyfing í álfu vorri og var Wagner
með i þeirri lireyfingu. Smábylting varð þá
í Dresden en var hæld niður og varð Wagner
þá að flýja á braut, og útlægur ger um alt
Þýzkaland. Hafðist Wagner eftir það við á
Svisslandi, einkum í bænum Zúrich. Hann
var sí-ritandi bæði söngleiki sína og ritgerðir
um sögu sönglistarinnar og gagnrýni á lón-
skáldum sem uppi voru. Aðrar ritgerðir eru
um endurreisn og framfarir söngleika í fram-
tíðinni og eru þær aðallega fólgnar í þvi að