Hljómlistin - 01.04.1913, Page 10

Hljómlistin - 01.04.1913, Page 10
56 HLJÓMLISTIN Ijóðmælasafn hans, er Bókmentafélagið gaf út í tveim bindum 1885—86. Annars hefir síra Stefán aldrei gleymst hjá þjóð vorri síðan hann var uppi. Gamla fólkið kunni utanað »Vallaneskverið« eða »Stefánskver«, sem sumir nefndu það, en það var eldri útgáfan af ljóð- mælum hans, sem Bókmentafélagið gaf út í Kaupmannahöfn 1823, iítið kver og snoturt með skemtilegum kvæðum og var það lengi nálega hið eina, sem fólk kunni og söng af veraldlegum Ijóðum, auk rímnanna. Um söng síra Stefáns hefir á seinni tímum ekkert verið skráð, og vita menn þó af eldri ritum, að hann var afbragðs söngmaður og tónskáld og hefir hann því verið einn þeirra fáu manna hjá oss, er gefin var bæði slcáldskaparlist og tónsnild, og lög eru til eftir hann, sem eru perlur í íslenzkum söng, er seint munu firn- ast, og getum vér því sagt um hann, að liann sé svanurinn, sem bezt hafi sungið fyrir ís- land, og þegar skugga fer að bregða yfir skáldskaparlist hans, mun sönglistin bregða skæru ijósi yfir minningu hans. (Framh.) Tveir sálmar. Sem sýnishorn af þýðingum í Sálmakveii Marteins Einarssonar, er prentað var í Kmli. 1555 koma liér tveir sálmar. Fyrri sálmur- inn er upphaflega morgunsöngur frá 4. öld og eignaður Hilaríus biskupi frá Poitivers (Pic- tavium) og frumortur á Iatínu frá óbundnu máli: Gloria in excelsis Deo. Sálmur Mar- teins er þó tekinn eftir liinni elztu, dönsku þýðingu sálmsins: »Alleneste Gud i Himme- rig« og versin 5 eins og í danska sálminum. Síðari þýðingin er af Lúlers sálmi: »Ein veste Burg ist unser Golt«. Báðir hafa sálm- ar þessir síðan um siðaskifti verið í sálma- bókum vorum og eru þar enn og hafa þeir þó tekið mildum breytingum. Af fyrri sálm- inum eru tvær þýðingar í öllum útgáfum Hólasálmabókanna og Grallaranum, nema 1. útg. Grallarans, Hól. 1594; það er sálmur- inn: »Heiður sé guði himnum á«, og er hann þýddur úr þýzlru eftir sálmi Nik. Deci- usar og 4 vers eins og frumsálmurinn, sem þjdt er eftir. I aldamótasálmabókinni, Leir- árg. 1801, og Reykjavíkur sálmab. 1871 er sálmur þessi með breytingum M. Stephensens, og í sálmabókinni síðustu frá 1886 er hann í nýrri, vandaðri þýðingu eftir lektor Helga Hálfdánarson. Eitthvað hefir Guðbrandi biskupi ekki fallið við þýðingu Marteins Einarssonar, er hann tekur sálminn: »Alleinasla guði í himerike«, þýðingu Gísla biskups Jónssonar, í sálma- bækur sínar og Grallarann og er sú þýðing þó bæði stirð og illa ort, en meira líkist hún frumsálminum og fellur enda betur undir lagið eins og það var sungið á þeim dögum. Fyrsta versið af þýðingu Gísla biskups er þannig: Alleinasta guði í himnaríki sé lof og dýrð fyrir sínar náðir, sem liann hefir gjört á jarðríki á þessum náðuglegum dögum. Á jörð er komin slór gleði og frið, svo manneskjan má vel gleðjast við guðs elsku og góðan vilja. Sálmur þessi var í grallarasöngnum ætl- aður tii að syngjast milli pislils og guðspjalls alla Jólaföstuna. I Marteinskveri er sálmurinn þannig: Vér heiðrum þig guð í liæstum slað fyrir hjálp og þínar náðir, því himin og jörð nú hyllast að, þú liefir oss sýnt þær dáðir og geíið á jörðina gæzku’ og frið svo gleðjast mega liöldar við, að góðvild sjálfur sáðir. Vér lofum, heiðrum og lútum þér og ljúllega dýrð þér þökkum, herra, guð faðir, sá hæstur er, lielzt þinn góðleik vér smökkum; á himni og jörðu hefir þú vald og liefir gjört miskunn þúsundíáld á vorum veraldar klökkum.

x

Hljómlistin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hljómlistin
https://timarit.is/publication/435

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.