Hljómlistin - 01.04.1913, Page 12
58
HLJÓMLISTIN
vinnu sín á milli og við söngfræðinga slíka
sem Sigfús og Heiri menn liér. Pað ætti að
vera »að bera í bakkafullan lækinn«. Eg
vildi aðeins minna á hugmyndina, því að
mér fanst hún vera að gleymast.
»Hljómlistin« myndi vafalaust fús til að
bera samvinnuorð á milli manna.
Héðinn.
Textar lag-anna
í fylgiblaði Hljómlistarinnar.
1. tlin sumardag.
Um sumardag, er sólin skín
og suðar vorkátt fossa-val,
og lóan syngur ljóðin sín
um líf og yndi’ í grænum dal —
þá er svo gaman,
um græna hjalla,
að ganga saman
—- um margt að spjalla;
að ganga’ um fjalla- glæstan -sal
fyr’ góða vini — sprund og lial.
Um aftanstund, er aldan blá
við unnir frammi kyssir strönd,
og festing drottins lrimin-há
sér hvolfir yfir sæ og lönd —
þá er svo gaman,
með grænuin runnum,
að ganga saman
hjá hjörtum unnum,
og mæna nið’rí marar-sal
fyr’ mæta vini — sprund og hal.
Og þegar sólin sigin er
og sefur bjartnr dagurinn,
og aftanljóminn leikur sér
um lög’ og fold og himininn —
þá er'svo.’gaman,
— það veit mín vissa —
að vera saman,
— og faðma’ og kyssa —
og horfa’ á stirndan liimin-sal
fyr’ hjartans-vini — sprund og hal
B. P. Gröndal.
2. Bæn konungsins.
Úr söngleiknum Lohengrin, eftir Rich. Wagner.
Könungur
gengur hátíðlega fram í miðið:
Nú heiti’ eg á þig að þú sért
við einvíg þetta, droltinn minn,
og leggi svik og sannleik bert
í sverðsins úrskurð vilji þinn.
Og gefðu sönnum drengskap dug,
en dragðu’ úr níðing þrólt og liug,
Að þú sért, guð, oss voldug vörn,
við vonum eins og hrekklaus börn.
Elsa og Lohengrin:
Minn guð, eg örvænti ekki nú, .
því eftir rétti dæmir þú.
Friðrik:
Eg fel þér, lierra, lieiður minn,
geng hiklaust fyrir dóminn þinn.
Örþrú ður:
Þá hönd ineð okkur helst eg kýs;
sé liún með þér, er sigur vís.
A11 ir karlmennirnir:
Svo gefðu sönnum drengskap dug
en dragðu úr níðing þrólt og hug.
Og kveddu hér upp dóm í dag,
ó, droltinn yfir vorum liag.
P. E. þýddi.
Skýrsla
um söng og hljóðfæraslált og íleira þar að
lútandi í Stykkishólmi.
Stykkishólmur var í Ilelgafellssókn lil árs-
ins 1879; þá var vígð ný kirkja í St.liólmi.
Veturinn 1876—77, var fyrst farið að hugsa