Brúin


Brúin - 21.09.1929, Blaðsíða 3

Brúin - 21.09.1929, Blaðsíða 3
BRÚIN 3 Ný bók! Leyndarmál Suðurhafsins fæst hjá bóksölum og í bókbandsvinnustofunni Kirkjuveg 3. ur en þegar að við fórum inn í hann. Eftir mælingu á sólinni, reiknaðist okkur að við værum staddir á 710 48’ norðlægrar breiddar þarna sem við vorum teptir. 15. júní gátum við loks byrjað að fika okkur í áttina út úr ísnum. 22. júlí komumst við aftur á auðan sjó. — Á leiðinni út sáum við tvö bjarndvr og drápum annað. Eftir að við vorum komnir út aftur, hjeldum við lengra norður með ísnum og ætluðum að reyna að ná landi við eyna Shannon. Víða urðum við að fara gegn um ís- tanga, sem hvergi sást fyrir endann á. Á 74° n. brd. fórum við aftur inn í ísinn. Að morgni hins 24. sáum við bjarndýr og drápum það. Seinni hluta dagsins vorum við á leiðinni inn stórar vakir, sem náðu töluvert inn í ísinn. Rákumst við þá á bjarndýr, sem var með einn hún. Voru dýrin á sundi úti í miðri vökinni, sem heíir verið nærri tveggja sjómílna breið. Húnninn studdi framlöppunum á bakið á móður sinni en ljetti undir á sund- inu með afturlöppunum. Við lögð- um skipinu að dýrunum og skut- um ekki fyr en við vorum komn- ir mjög nærri. Þó drapst birnan ekki fyr en búið var að skjóta finnn skotum á hana. Á meðan verið var að skjóta birnuna rann skipið framhjá dýrunum, svo var því snúið við til þess að skjóta húninn. Hann gerði enga tilraun til þess að forða sjer, heldur synti í kring um móður sína dauða þó að við kæmum alveg að honum. Hann var drep- með einu skoti. Eftir þetta leituðum við víða að sprungum í ísnum, en gátum hvergi fundið sund eða sprungu, sem reynandi var að faraígegnum.— 26. júlí skutum við birnu og tvo húna, sem með henni voru. 29. júlí hvesti af vestri, kom þá rek á ísinn og hann griðnaði töluvert í sundur þar sem hann var uppbrotinn. Við þetta varð hægara að leita fyrir sjer. 30. júlí skutum við afarmikið bjarndýr. Sama dag fundum við sund, sem ísinn var uppbrotinn í og hjeldum við þar inn í hann. Þetta var á 73° 30’ n. brd. Lengst höfðum við leitað norður á 75° 44’ n. brd. Fram eítir deginum hjeld- um áfram inn í ísinn, en þegar komið var fram á lcvöld, urðum við að gefast upp. Lögðum við þá skipinu við ísskör. Á meðan að við lágum þarna, komum við auga á skipi sem var nokkuð lengra inni í ísnum. Eftir nærri tvo daga tókst okk- ur að komast langdrægt að því. Við lögðumst við ísjaka í stórri vök, kom hitt skipið eftir stutta stund og lagðist hjá okkur. Þetta var norskt íshafsskip sem heitir „Heimland I“. Skipshöfnin var norsk, en níu enskir stúdentar og einn umsjónarmaður frá há- skólanum í Cambridge höfðu leigt skipið til þessarar ferðar. /Etluðu þeir inn í Franz Jósefs- Nú eru hin langþráðu góðu frakkaefni komin í mörgum fögr- um litum, sömuleiðis mikið úrval aí fataefnum í nýjum litum og gerðum. Aldrei áður meira úrval. Ennfremur sjerstaklega ód}'rr fata- efni, hentug fyrir unglinga. Dragið ekki að panta það, sem yður vantar svo hægt verði að afgreiða í tæka tíð. Einar Einarsson, klæðskeri. Það besta er aldrei of gott! Reynslan heíir sýnt og sannað að kjöt til niðursöltunar er best að kaupa hjá Jóni Mathiesen, Sími 101. Stúlka óskast í vist 1. október. Stella Flygenring. Sími 177. 2 herbergi og eldhús til leigu í miðbænum, frá 1. okt. Uppl. í Edinborg. Sími 7 og 107. fjörð til þess að mæla fjall eitt. „Heimland“ hafði legið fast þarna á sama stað í hálfan mánuð. Bæði Norðmennirnir og Englendingarnir tóku okkur á- gætlega. Við fengum hjá þeim skotfæri og lleira, sem okkur vanhagaði um. Skipstjórinn bauð okkur að verða samferða þeim, þótt hann væri vondaufur með að sjer tækist að komast inn úr ísnum. Við þáðum boðið með þökkum, því engin von var fyrir okkur að komast áfram ef þeir yrðu að snúa við. Eftir miðjan dag 1. ágúst lögðu svo bæði skipin af stað. Ekki varð komist nema stuttan spöl í einu og varð ýmist að bíða þar til ísinn griðnaði sund- ur eða að höftin voru sprengd sundur með „dýnamiti". Við unnum allir að því að ýta jök- unum til hliðar þegar búið var að sprengja. Svona var haldið áfram þar til eftir hádegi 4. ágúst, þá komum Við í greiðfæran ís, sem varð æ greiðfærari eftir því sem nær dró landinu. Kl. 4 síðd. komum við að „Cope Höldwith hape“, sem er á 74° n. brd. og 19° 20’ v. lgd. Var haldið beint áfram inn í „Mygbukten". Þar .eiga Norðmenn loftskeytastöð. Við vörpuðum þar akkeri kl. 6 síðd. 4. ágúst. (Frh.) Fastar ferðir milli Hafnarfjarðar og Rej’kjavíkur tilla daga á hverjum klukkutíma. — Frá Hafnarfirði kl. 9'/2 árdegis. Til Grindavíkiir 3var í viku. 1. flokks bifreiðar ávalt til leigu í lengri og skemri ferðir. Sláturiíðin er komin. Kaupið Rúgmjöl og Krydd hjá Jóni Mathiesen, Sími 101. H.F. DVERGUR Alt byggingarefni með lægsta verði. Öll smíði vönduð. Allir skilmálar aðgengilegir. Öll reikningsskil ábyggileg. Kaupið það besta. Nankinsföt með þessu alviðurkenda Vöru merki er trygging fyrir haldgóðum og velsniðnum slitfötum. Fást hjá Steingrími Torfa- syni, F. Hansen, Gunnlaugi Stefánssyni og Sesselju Kjærnested. Haust vörurnar nýju, verða teknar upp eftir helgina í verzlun Helga Guðmundssonar. Nota ð píanó til sölu. Tækifærisverð. Upplýsingar hjá ritstjóra. Verzlunin Framtíðin Göð stofa til leigu í S.Lækjar- götu 20. Gott fæði og ódýrt fæst í Brekkugötu nr, 9 í Hafnarfirði. Sími 66. Stórt lierbergi móti suðri til leigu. Uppl. í Kaffihúsinu „Birninum“. Sími 91 Kirkjuveg 10. Sírni 91 Nýkomið: Könnur. Katlar. Kolakörfur. Kolausur. Ivústar. Matvörur og Glervörur ódýrastar í bænum f. h. Verzlunarinnar Framtíðin — Guðmundur Þ. Magnússon. Silkiregnhlíf hefir fundist í þjóðkirkjunni. Vitjist til Jóhönnu Eiríksdóttur Brekkugötu 5. Stúlka óskast í vist hjá góðu fólki í Reykjavík, 4 í heimili. Upplýs- ingar hjá Einari Guðmundssyni á skrifstofu Þ. Flygenring. Kindakjöt. Nautakjöt Hakkaðkjöt. Kjötfars. Kjötbúðin. Þeir, sem vilja taka að sjer ræstingu Flensborgarskólans í vetur geíi sig fram nú þegar við Skólasijórann. Hrossakjöt. Hrossum verður slátrað hjá okkur á mánudaginn og verða seld í heilum og hálfum skrokk- um. Se't verður í smásölu í búð- inni en í heilli vigt á staðnum. Hross verða einnig seld á fætí eftir samkomulagi. — þeir, sem hafa pantað hjá okkur, ættu að tcla við okkur strax. Kjöibuð Hafnarfjarðar. U p p b oð á tómum kössum og tunnum o. 11. verður haldið á Reykjavíkurveg 3 þriðjudaginn 24 þ. m. og hefst kl. \Yi síðdegis. Steingrímur Tortason.

x

Brúin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Brúin
https://timarit.is/publication/448

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.