Frón - 26.01.1918, Blaðsíða 3

Frón - 26.01.1918, Blaðsíða 3
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Grimúlfur H. Ólafsson, Laugalirekku, Reykjavík. Sími 622. Box 151. F R O N I. tölublað. Laugardaginn 26. janúar 1918. Fáninn. Engir þurfa meira að halda á þolinmæðinni en vér íslendingar. Enn þá megum vér ekki sýna fána vorn fyrir utan landhelgina. Og þó alþingi hafi í einu hljóði samþykt ályktun um siglingafána, þá stendur við sama. í ríkisráði var fánaúrskurði synjað staðfest- ingar. Það minnir á að Færey- ingar máttu til skamms tíma ekki heyra guðsorð prédikað á sínu eigin máli í kirkjum sinum. Miklir menn erum við Hrólfur minn. Danskir stjórnmálamenn vaka eins og ormar á gulli yfir þvi, að sjálfstæðismál vor nái eigi fram að ganga. Altaf eru yfir- skinsviðbárur til á takteinum. I þetta sinn var ekki hægt að sinna málinu neitt fyr en öll afstaðan til Danmerkur væri afráðin. Hvað liugsa Danir? Búast þeir við þvi að vér unum því lengi, að fáni vor sé falinn inni i landhelginni. /Etla þeir oss öðruvísi en aðrar þjóðir ? Allar þjóðir bera virð- ingu fyrir fána sínum, og krefj- ast þess einnig að aðrir beri virð- ingu fyrir honum. En livað er oss boðið? Oss er beinlínis neitað um að sýna hann fyrir utan land- helgina. Af hverju? Er það hags- munatap fyrir Dani? Þvert á móti; ítrekuð fánasynjun, hlyti að leiða til hagsmunataps fyrir þá, því hætt er við að lítið yrði um verzlunarsamband við þjóð, sem skildi svo illa menningu vora, allar tilfinningar vorar, að hún neitaði oss að sýna fána vorn á höfunum. Danir verða að kasta barnalegum yfirdrotn- unaranda, sem er ósamrýman- legur þessum tímum, fyrir borð. Þeir verða að skapa sér stærra stjórnmálavíðsýni, og læra að samúðin er sterkasti þátturinn, einasti óbilandi þátturinn i sam- bandi tveggja menningarlanda. En lykillinn að samúðinni er einn, að réttmætar kröfur vorar nái fram að ganga. Þetta skilja Danir ekki enn. Og að einu leyti er þeim vorkunn. Lærifaðir þeirra, spámaður þeirra í íslands mál- um er Knud Berlin, en hann hefir gert það að lífsstarfi sínu, að vekja tortryggni gegn oss niðri í Danmörku. Ef einhverju sjálf- stæðismáli voru er hreyft þar, rís hann öfugur gegn því. Hann hamaðist gegn fánamálinu nú i vetur niðri í Danmörku og æsti Dani gegn oss. Því ver og miður hlusta þeir á hann í stað þess að þagga niður i honum, því Knud Berlin er einn af þeim mönnum, sem hættulegastir eru fyrir sambandið milli landanna, því hann sáir þeim ófriðarkorn- um sem úlfúðin sprettur af. Á meðan á ófriðinum hefir staðið höfum vér farið einir með öll vor mál. Hefir það skaðað Dani? Hafa sendimenn vorir verið þeim til meins? Engan veginn, en þeir hafa verið oss til hagsmuna. Eins er það með fánann. Því sldldu nú Danir risa öfugir gegn því, sem er oss til hags- muna, en þeim ekkert mein i. Því þurfa réttmætar fánakröfur vorar að stranda á dönsku skiln- ingsleysi? Er það ekki beinlínis soi'glegt. En hvað sem um það er — eitt er víst, og allir hljóta að skilja það, að vér höldum þessum kröfum vorum fast fram. í þvi máli verður ekkert hik á oss, engin hálfvelgja. Þó orð foi'sætisi’áðhen'ans um um að málið verði ekki látið falla, þyki mjúk, þá munu þau koma hljómsterlc út úr næsta alþingi íslendinga. Allur innanlandskritui', öll valdaþrá einstakra manna, alt verður að víkja fyrir öndvegis kröfu vori'i, fánakröfúnni. M-aiiiiréttincii. Einvaldarnir ogr lijörstjórnin, Einvaldar hafa jafnan gert lítið úr manni'éttindum. Þeir hafa á- skilið sér vald lífs og dauða yfir íbúum rikis síns. Kjörstjórnin í höfuðstað íslands hefir eigí reynt það enn þá. Einvaldar hafa auðvitað gert enn þá minna úr þeim mann- réttindum, sem llf eða dauði er eigi undir komið beinlínis. Tala eg þar um rétt manna til þess, að ráða þvi að sínum hlut, hversu stjórnað er þjóðfélagi og sveitai'- félagi. Þar er kjöi’stjórn Reykja- víkui'bæjar þeim jafnsnjöll. Henni verður eigi mikið fyrir, að svifta menn kosningari'étti og kjörgengi. Einvaldar þurfa eigi að beygja sig fyrir lögum. Þeir hafa sett þau sjálfir og breyta þeim, hve nær sem þeim kemur í hug. Hér er kjörstjói’nin þeim fremri, þvi að hún tekur sér vald til þess, að breyta þeim lögum, sem hún hefir elgi sjálf sett. Hún tekur sér með öðrum orðum einveldi. Að því búnu sviftir hún á annað þúsund kjósendur hér í bænum kosningarrétti. Þetta vex-k hennar er nú alræmt orðið, en það eitt undrast menn, að hún er að ómaka lögfræðing sinn með þvi, að leggja sig undir atkvæði bæjai’búa. Hví fyrirskipar hún ekki beinlínis, að hann skuli vei’a í bæjarstjórn og þá auðvitað í kjörstjórn framvegis. Lagabreytingrin. Maður einn ki'afðist þess, að kjörstjórnin tæki hann og konu hans á kjörski'á. Þessu neitar kjöi'stjórn »með því að þér hafið eigi gi’eítt gjald í bæjai'sjóð fyrir ái’ið 1917«, segir hún i bréfi 19. janúar þ. á. I sama bréfi birtir kjöi'stjói’n það, að hún »lítur svo á, að 1. gr. laga nr. 49, 30. júlí 1909, beri að skilja svo, að þeir einir eigi að takast á kjörskrá, sem hafa greitt útsvar fyrir það ái', er kjörskráin er samin eftii’, nær yfir, sbr. oi'ðin »og' greiða gjald í bæjai’sjóð eða hi'eppssjóð«. Kjörstjórnin gei'ir hér nútíð að foriið, greiða að hafa greitt og þai'f eigi lengi að þrátta um þá málfræði. Hefði þessir góðu menn farið eftir þeii’i'i i'eglu í stílum sinum í skóla, þá rnundu þeir liafa fengið litla viðurkenning. En hvað skiftir slíkt nú þá ein- völdu kjörstjórn? Hún mun nú og svara mér, að hér sé eigi um málfræði að ræða. En til þess liggur þó það svar, að þar sem lög eru sett í orðum, þá muni lögskýrendur eigi ganga beint gegn lögum málsins og málvenju. En hvorttveggja er svo gjörsam- lega andstætt skilningi kjöi’stjórn- ai', að eigi þarf um að deila. — Möi'g önnur rök renna þar og tíl, er sýna, að skilningur þessi er svo fráleitui', að mönnum hlýt- ur að vei’ða leit úr, að finna á- stæður til hans, þar sem eigi getur verið greindarskorti um að kenna. Hér skulu talin nokkur hin helztu: Lárus H. Bjarnason, háskóla- kennari, hrekur þenna skilning gjörsamlega i grein sinni i Tím- anum 19. janúar þ. á. Hann byggir fyrst og fremst á 7. grein bæjarstjórnai'tilskipunai'innar: »Kjöi’stjói'nin semur kjörskrá yfir kjósendur og skal þá farið eftir skattgjaldaskrám bæjarins frá næsta ári áður en kosning fer fram«. Tekur hann það réttilega fram, að hér sé eigi um það að ræða, hvort«menn hafi greitt gjöldin í réttan tíma. Þetta eitt nægir til þess, að kollvarpa »skiln- ingi« kjörstjórnar. í tilskipun um bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavik 20. apr. 1872, 5. gr. er kveðið svo að orði bæði um hærri og lægri gjald- endur, að þeir skuli kjósa, ef þeir hafa verið eitt ár..............og greitt o. s. frv. Þ. e. ef þeir hafa greitt það gjald, sem þar er til skilið. — 1 tilskipun um sveita- Afgreiðslu- og innlieimtumaður: Þoríákur Daviðsson, Bergstaðastræti 45. Afgreiðsla Templarasundi 3. I. árgangur. stjórn á íslandi 4. mai 1872 stendur: »Kosningarrétt og kjörgengi til hreppsnefndar á hver búandi . . .......ef hann síðasta árið hefir haft fast aðsetur í hreppnum og goldið o. s. frv.« En i lögum um breyting á tilskipun um bæjar- stjórn í Reykjavík 22. nóv. 1907, 3. gr. (5. gr. tilsk.) er kveðið svo að orði um þetta: »ef þeir greiða skattgjald til bæjarsjóðs«. Sama orðalag er í lögum um bæjar- stjórn í Hafnarfirði 22. nóv. 1907, 5. gr. Og loks er í lögum um breyting á lögum, er snerta kosn- ingarrétt og kjörgengi í málefnum kaupstaða og hreppsfélaga 30. júlí 1909 1. gr. sagt »og greiða gjald í bæjarsjóð eða hreppssjóð«. Löggjafinn hefir breytt greini- lega til um orðun laganna að þessu leyti. í eldri lögunum er það beint skilyrði kosningarréttar, með ótvíræðum orðum, að hafa greitt gjaldið. Hefði nú löggjaf- inn 1907 og 1909 ætlast til að svo væri, þá mundi hann alls eigi hafa breytt orðalaginu. Hann breytti því af þvi, að hann vildi breyta ákvæðinu á þann hátt, að þetta skilyrði félli burt. Og það er auðsætt og fljótséð, hversvegna: Að hafa greiit gjaldið var sett að skilyrði fyrir kosningarrétti i lögum 1872, en 1874 fellir stjórn- arskráin þetta skilyrði niður fyrir kosningarrétti til Alþingis, þó að hún gerði gjaldskyldu að skilyrði, og sama gera öll kosningarlög sem á henni bygðust alt þar til, er nýja stjórnarskráin feldi gjald- skylduskiljTðið einnig. Árið 1874 er því tímamóta ár i löggjafarsögu vorri. Þá er virð- ing manna fyrir almennum mann- réttindum, og þá sérstaklega fyrir kosningarrétti og kjörgengi, orðin svo rík, að löggjafinn þekkir ekki nema tvær tegundir afbrota svo illar, að þær svifti fullveðja menn þessum rétti: syndir á móti hegn- ingarlögunum og fátœkt. Og þótt ósamræmt atriði héldist í sveitar- stjórnarlögum nokkru lengur, þá er það að eins tómlæti löggjafans að kenna. En óðar en hann hreyfði við þeim lögum, þá hlaut hann að koma þeim i samræmi við stjórnarskrána, varð að breyta ákvæðinu, og hann — breytti því. Þessi rök ein nægja til þess að kollvarpa alveg »skilningi« kjör- stjórnar. Auk þessa fer hálfilla á þvf, að kjörstjórn bæjarins sé höfð fyrir skuldakröfusendil. Bæjarstjórn gerir sig og heldur smáa með slíku, er hún reynist eigi bær að semja við einstaka menn um lúkning á skuld eða gjaldi til bæjarsjóðs, þar sem kjörstjórnin gæti refsað gjaldand-

x

Frón

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frón
https://timarit.is/publication/451

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.