Frón - 26.01.1918, Blaðsíða 5
FRÓN
3
TJtan af laiidi.
Óvenju frosthart \
heíir vei’ið undanfarið um land
alt. — Á sunnudaginn er var og
mánudaginn var frostið á Grims-
stöðum 36° C. og mun það vera
með meztu frostum er koma hér
á landi. 34° C. voru á Kolviðar-
hóli á mánudagsmorguninn og
31 stig á geðveikrahælinu Kleppi
á mánudagskvöldið.
Úr Skagaílrði.
Eftir símtali úr Skagafirði er
fjörðurinn fullur af hafís og er
ísinn samfrosta. Ekki bólar þar
á neinum vandræðum enn sem
komið er. Hey- og matbirgðir
manna nægilegar þótt harðindin
haldist nokkra hríð.
Frá Ísaílrði
er símað, að talsverð vandræði
af harðindum séu þar í kaup-
staðnum, bæði af bjargarskorti og
eldiviðarleysi. Hefir fógeti leitað
til stjórnarráðsins um hjálp. En
ek'ki hefir enn þá verið hægt að
veita dýrtíðarlán þau, er síðasta
alþingi gerði ráð fyrir að veitt
yrðu hæja- og hreppsfélögum. —
Bráðabirgðalán mun þó stjórnin
hafa í hyggju að veita þangað til
fé fæst, svo hægt sé að veita hin
reglulegu dýrtiðalán.
„Botnía“,
eign Sameinaða gufuskipafélags-
ins, er legið hefir á Seyðisfirði
síðan hún hætti slrandferðum í
ágústmánuði síðastliðnum, hefir
nú verið fengin til að llytja kjöt
til Noregs. Kemur skipið hér inn-
an skamms. Lagði á stað frá
Seyðisfirði fyrir nokkrum dögum
en varð þá að snúa aftur sökum
hafíss. Hefir enska stjórnin veitt
undanþágu frá viðkomuskyldunni
í enskri höfn, svo skipið fer beina
, leið hjeðan til Noregs.
„Islands Falk“
kvað vera væntanlegur hingað
bráðlega.
Nokkrir hvítablrnlr
hafa verið lagðir að velli nú í
harðindakastinu. Sagt er að á
Melrakkasléttu hafi einn maður
lagt þrjú hjarndýr að velli sama
daginn, og fleiri bjarndýr hafa
verið lögð að velli þar á slétt-
unum. Þá er sagt að einu hafi
verið banað á Skagaströnd og
einu á Dalakjálka í Mjóafirði. —
Alls er sagt að 6 bjarndýr hafi
verið drepin síðan hafisinn rak
að landinu nú eftir nýárið.
Breiðafjörð
eða firði inn úr honum, Gils-
fjörð og Hvammsfjörð, lagði alla
undir ís i frosthörkunni. Er slíkt
að visu ekki mjög fátítt að firði
þessa leggi, en óvenjumiklir ísar
hafa þó verið þar nú um tíma.
Flóabátur þeirra Breiðfirðinganna
hefir nú um tíma legið hjer í
Reykjavík. Hefir eigi komist til
Stykkishólms sökum lagíss. Nú
kvað isinn vera að greiðast sund-
ur þar vestra, svo vonandi getur
nú báturinn tekið aftur til starfa.
Frétt frá Akureyri
segir að allur Eyjafjörður sé
nú ein íshella og megi ríða hann
þvers og endilangt, og jafnvel að
fara mætti fram um öll nes og
til Siglufjarðar. ís er svo langt
sem augað eygir.
Úr Árne88ý8lu
er sagt að sumstaðar hafi verið
farið að skera kýr af heyjum, nú
i harðindakastinu.
„Lagarfoss“
er væntanlegur innan skamms.
Er að losa norðurlandsvörurnar
á Austfjörðum. Kemur svo hingað.
„Andvaka“
heitir nýtt tímarit, sem Bjarni
Jónsson frá Vogi gefur út. Fyrsta
heftið er nýkomið, ræðir það
mest um fánamálið. Ritið hefst
með kvæði til fánans eftir Þorkel
Erlendsson. Þá eru ræður um
fánamálið, er þeir hafa flult á
fundum Sjálfstæðisfélagsins í vet-
ur: Benedikt Sveinsson og Bjarni
Jónsson frá Vogi, þá Fjallkonu-
vísur og Fjallkonu-óður, eftir
Bjarna Jónsson frá Vogi. Enn er
grein um rjettarstöðu íslands eft-
ir sama höfund og önnnr, sem
heitir »Mannamunur«, um tillög-
ur og afskifti nokkurra manna
utanlands, íslenzkra, danskra og
norskra um sjálfstæðismál vor.
Þá er nótuselt kvæði Anders
Hovdens »til íslands«, lagið eftir
Árna Thorsteinsson. — Loks er
kveðja til Finnlands, kvæði eftir
Sigurð Grímsson frá ísafirði.
Svo sem sjá má af þvi, er hér
segir af efni ritsins, er það fjöl-
breytilegt, þóft alt stefni að einu
marki. Á Bjarni skilið þjóðar-
þökk fyrir útgáfuna, því að nú
er íslendingum nauðsyn á að gefa
því sterkar gætur, er fram vind-
ur um fána-málið og mikill fróð-
leikur um þau efni i ritinu.
B.
V élplógar.
Nokkrir dugnaðarmenn á Akra-
nesi hafa gert félag með sér til
þess að kaupa vélplóg (motor-
plóg) frá útlöndum á komandi
vori. Plógur þessi er ærið stór-
virkur og hið mesta þarfaþing;
verður honum og í bezta lagi
við komið á Akranesi þar sem
saman liggja stórfeld flæmi garða
og landa, sem hæf eru til rækt-
unar.
Má vænta þess að fyrirtæki
þetta leiði til mikillar eflingar
garðræktar hér á landi og er
þess hin mesta þörf.
Bsb j air f r éttir.
Gangverð erlendrar rnyntar.
Bnnkar. PósLhús.
Doll. U.S.A. & Can. 3,50 3,60
Franki franskur... 59,00 60,00
Sænsk króna.......112,00 110,00
Norsk króna....... 107,00 106,00
Sterlingspund. ... 15,70 16,00
Mark .............. 67,00
Holl. Florin.............. 1,47
Austurr. króna.................
Kartöfl urælítun arfélag.
Nýverið hefir verið stofnað
hlutafélag hér í bænum, til þess
að koma af stað kartöflurækt i
stórum stíl. Eitt slíkt félag mun
áður hafa verið stofnað hér á
landi. Það var í Skagafirði nú
fyrir nokkrum árum síðan. Átti
félag það allervitt uppdráttar fyrst
í stað. En síðustu árin er það
starfaði mun það hafa gefið nokk-
urn arð. Nú mun félag þetta hætt
að starfa én garður þess mun þó
enn starfræktur af einstökum
mönnum.
Þetta nýja félag er stofnað fyr-
ir forgöngu tveggja ungra dugn-
aðarmanna. í stiórn þess eru for-
göngumennirnir, þeir, Guðmund-
ur Jóhannsson og Þórður Ólafs-
son og svo Benedikt Sveinsson
alþm. og bankastjóri. Varastjórn-
andi Einar Helgason garðyrkju-
maður.
Stofnféð kvað vera 8000 krón-
ur, og má auka hlutaféð upp í
12 þús.
Leigt kvað félagið hafa tvo tugi
dagsláttna af Jóhanni bónda Eyj-
ólfssyni í Brautarholti og þar ætl-
ar það að reka kartöflurækt í
sumar komandi.
Sagt er að landsstjórnin ætli
að gangast fyrir þvi að fá útlent
útsæði og kvað hún hafa lofað
félagi þessu einhverju af því.
Vonandi er að félagi þessu
farnist vel og þessi byrjun verði
vísir til mikilla framfara í þess-
ari grein jarðræktarinnar hér á
landi.
Land8verzlunin.
Eftir áramótin gerði landsstjórn-
in þá breytingu á »Verzlun Lands-
sjóðs« að forusla hennar og fram-
kvæmd öll var falin þrem mönn-
um. Mennirnir er landsstjórnin
hefir valið eru þeir
Ágúst Ftygenring, kaupmaður
og útgerðarmaður í Hafnarfirði,
Hallgrímur Kristinsson, fram-
kvæmdarstjóri Sambands ísl. sam-
vinnufélaga.
Magnús Kristjánsson alþm. og
kaupmann á Akureyri.
Hafa menn þessir nú tekið við
allri stjórn verzlunarinnar. Allír
eru menn þessir þjóðkunnir at-
orku og dugnaðarmenn.
Bæjarstjórnarkoaning
á fram að fara hér i bænum
31. þ. m. Eru þessir listar fram
komnir:
Frá verkmannafélögunum. Á
honum standa þessi nöfn:
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
FRÓN
kemur út einu sinni á viku.
Kostar 4.00 kr. árg., ef borgað
er fyrir 1. júlí, 5.00 kr. ef siðar
er greitt.
Gjalddagi 1. júlí ár hvert.
Uppsögn s'krifleg bundin við
áramót — ógild nema komin sé
til útgefanda fyrir 1. okt., enda
kaupandi þá skuldlaus.
Útgefandi: Félag f Reykjavfk.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Grfmúlfur H. ólafssou,
Laugabrekku í Reykjavik.
Sími 622. — Box 151.
Afgreiðslumaður:
Þorlákur Davíðsson,
Bergstaðastræti 45.
Afgr. Tempiarasundi 3. Simi 477.
I
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Þorv. Þorvarðsson prentsm.stj.
ólafur Friðriksson, ritstjóri.
Jón Baldvinnsson, prentari.
Sigurjón Ólafsson, sjómaður.
Kjartan Ólafsson, verkamaður.
Guðmundur Davíðsson kaupm.
Jónbjörn Gislason, verkstjóri.
Þá frá hinu nýstofnaða bæjar-
málefnafélagi Sjálfstjórn. Á hon-
um standa þessi nöfn:
Sveinn Björnsson, yfirdómslögm.
Inga L. Lárusdóttir, ungfrú.
Guðm. Ásbjörnsson, kaupmaður.
Jón Ólafsson, skipstjóri.
Guðm. Eiríksson, trésmiður.
Jón Kristjánsson, prófessor.
é
Nýr scndiinaður.
Nýlega hefir landstjórnin ráðið
skipamiðlara Gunnar Egilsson sem
ráðunaút sinn í Bandarikjunum
í Ameríku í stað Jóns Sivertsen
verzlunarskólastjóra, er verið hef-
ir það undanfarið.
Fer Gunnar vestur með Gull-
foss — núna reftir helgina — á-
samt fjölskyldu sinni og sezt að
vestra.
Er það trú þeirra er Gunnar
þekkja.'að hann muni velfallinn
til starfs þessa, og vænta hins
bezta af starfi hans.
Guðmundur Ölsen,
kaupmaður varð bráðkvaddur
hér í bænum 21. þ. m. Hann var
Reykvíkingur að •uppruna og
hafði alið allan aldur sinn hér í
bænum. Hann hafði nú um mörg
ár rekið verzlun í Aðalstræti hér
í bænurn.
Hann var merkur maður i
hvívetna og vel látinn og á bær-
inn þar á bak að sjá eins og sín-
um merkustu borgurum.
Saltkjöt
og
Rullupylsur
er auðvitað bezt í
Matarverzlun
Tómasar Jónssonar
Laugaveg 2.