Jólasveinar - 24.12.1914, Page 21
21
VI.
Almennlr angurgapar.
Draumglópur (liggur og svæftr sig):
Spaklegt er að dreyma,
það er orðið móðias og dillidó.
Draumar eru vísindi.
Eg er að rífa lönguhausa’ og korríró.
Stríðsglópur (kemur og ónáðar hann):
Hvað ertu’ að hugsa, maður minn ?
Mikið stand er á Jóni Bola:
Drepinn fyrir oss Danskurinn,
dýrtíð og sult vér megum þola.
Selskabsglópur (kemur inn kjólklæddur
og heilsar hofmannlega):
Eg hef hækkað í tigninni’ um hundrað fet.
Hjá broddum var ball
og bacchantiskt rall.
Eg dansaði best og var metinn þar mest
þeirra herra, er komu’ á það knall.
Draumgl.:
Fagurt er að hrjóta,
það er orðið móðins og dillidó.
þetta segir Gústi.
Eg er að skera hrúta og korriró.