Einingin - 01.06.1902, Page 1
T
za.m
EININGIN.
I. ár.
Akureyri, júní 1902.
Blað Umdæmissíúkunnar
%/fsfjóri: ‘Bjarni
Kæru samverkamenn!
Á Umdæmisstúkuþinginu, sem haldið var á Akureyri í síðastl.
mafmán., var samþykt að gefa út blað fyrir umdæmið, og Fram-
kvæmdarnefndinni falið að annast um útgáfuna.
Enginn vafi getur á því leikið, að samvinna milli stúkna inn-
byrðis og stúkna og bindindisfélaga í umdæminu gæti verið og ætti
að vera meiri en hún er, og að vöntun á slíkri samvinnu stendur
framförum bindindismálsins hér í umdæminu mjög fyrir þrifum.
Tilgangur umdæmisstúkuþingsins með útgáfu þessa blaðs var aðal-
lega sá, að allar stúkur og öll bindindisfélög í umdæminu ættu
kost á að kynnast hvert öðru, með því að fá nægilega oft glögt
yfirlit yfir ástandið í hverri stúku og bindindisfélagi út af fyrir sig;
að fá stúkurnar og bindindisfélögin til að vera samíaka í öllu því,
er beint getur bindindismálinu áfram í rétta átt; að fá þessa tvo
flokka til að skipast sem mest að sömu háttum, svo þeir geti
komið fram sem ein heild gagnvart mótstöðumönnum bindindis-
starfseminnar; og að flytja friðar og vináttumál millum allra þeirra,
er helgað hafa einhvern þátt úr lífi sínu þessu þýðingarmikla sið-
menningar og mannkærleiks-starfi, hvort sem þeir heita Good-Templ-
arar eða bindindismenn.
Með þessu markmiði heilsar »Einingin« öllum G.-Templurum,
bindindismönnum og bindindisvinum, og ég vona að hún verði þeim
flestum kærkominn gestur.
Þó að Umdæmisstúkan ein hafi ráðist í að gefa út þetta litla
blað, jafnvel fram yfir það, sem efni hennar leyfðu, er ætlast til
þess, að það standi jafnopið fyrir bindindisfélögum í umdæminu
sem stúkunum, að svo miklu leyti sem rúm leyfir, eins og líka