Einingin - 01.06.1902, Side 4
4
Einingin.
i. blað.
a. Að skuld sú, er st. Nýju Aldarblómið er talin að vera í, út af mismun
á skatti, falli burtu.
b. Að skuld sú, er stúkan Framsókn er talin að vera í, út af sama, falli
sömuleiðis burtu, ef stúkan ekki vill góðfúslega greiða hana.
19. Samþykt tillaga Fjármálanefndarinnar: Að Útbreiðslusjóður Umd.st.
hafi sérstakan reikning, og hinn eiginl. Umd.st. sjóður sérstakan reikning.
20. Reikningar Umd.st. fyrir síðastl. ár því næst samþyktir.
21. Samþykt að gefa út blað fyrir Umdæmið, samkv. yfirlýstum vilja
fulltrúafundarins, og Frkvn. falið að framkvæma það, og veitt heimild til
að verja til þess fé úr Útbreiðslusjóði.
22. Samþykt að borga upp í ferðakostnað þessara fulltrúa þannig:
Jónasar Sveinssonar 15 kr., Hinriks Árnasonar 15 kr., Ástvaldar Björnsson-
ar 12 kr., Sigtryggs Sigurðssonar 6 kr.
23. Kosið og skipað í embætti Umdst.
24. Mælt með br. Frb. Steinssyni bóksala, sem Umdæmisumboðsmanni.
25. Samþykt að halda næsta Umdæmisstúkuþing á Sauðárkrók.
: 6. Samþykt að taka gilda ábyrgð Einars Hjörleifssonar fyrir U. G. og
ábyrgð Davíðs Ketilssonar fyrir U. R.
27. Embættismenn settir í embætti af Umd. umboðsmanni, br. Friðbirni
Steinssyni.
28. Þá skipaði U. Æ. í hinar föstu nefndir.
29. Eftir að gjörðabók hafði verið upplesin og samþykt, var þinginu
slitið kl. 10V2 síðd. sunnudaginn 25. maí.
U. Regluboðar. Á Framkv.nefndarfundi 31. maí var sr. Árni Björnsson
á Sauðárkróki endurkosinn regluboði Umd. stúk. fyrir Skagafjarðarsýslu,
og br. Lárus Thórarensen fyrir Eyjafjarðarsýslu í staðinn fyrir br. Bjarna
Lyngholt, er tjáðist ekki lengur geta gegnt því starfi sökum annríkis.
*
„EININGIN" er ætlast til að komi út einu sinni á hverjum mánuði, á
söniu stærð og þetta 1. núiner. Verð árgangsins er 60 aurar, er borgist fyrir
1. desember, en þeir sem kaupa 10 eintök eða fleiri, eða hafa útsölu á þeiin,
fá árganginn fyrir 50 aura.
Blaðið verður sent bæði G. T. og Bindindismönnum til útsölu, og treystum
vér því að útsölumennirnir séu svo heppilega valdir, að það fái talsverða
útbreiðslu.
Prentari Oddur Björnsson.