Muninn - 01.11.1982, Page 23
K v/KMA
Skömmu eftir að skólinn tók til starfa
veturinn 1982 -83 boðaði gamla KvikMA stjórn-
in til fundar. Ekki voru margir á fundinum
en þó sá fjöldi að kosin var stjórn sem þess-
ir menn skipa:
Sigurður Á. Sigurðsson
Gunnar Þór Gunnarsson
Arnar Matthíhasarson
Birgir Birgirsson
Róbert Róbertsson
Fyrsta myndin sem við sýndum var frönsk
sakamálamynd mjög sérstök og feykigóð. Myndin
hét: „LE SAMOURAI" og var það Tómas Ingi
Olrich sem fékk hana frá franska sendiráðinu
i Reykjavik.
formaður,
gj aldkeri,
ritari,
meðstjórnandi og
meðstjórnandi .
Fimmtudaginn 4. nóv. var „videokvöld"
i Möðruvöllum og voru þar sýndar myndirnar
Hárið og Space Odyssey 2001. Var „video-
kvöldið" mjög vel sótt og vonum við að svo
verði áfram i framtiðinni.
Við i stjórninni viljum litlu lofa um
áframhaldið en segja má að allt sé i athugun
þegar þetta er skrifað þ.e að fá myndir og
fá lánað annaðhvort bióhúsið hér i bæ.
Væntanlega munum við fá fleiri franskar
myndir til að sýna og „video" verður öðru
hvoru .