Fríkirkjan - 01.04.1899, Blaðsíða 14
61
ur heldur í 19. v., áfram sinni hugsun (en ekki síra Jóns)
með orðunum: „Hver sem því brýtur (eða leysir) eitt af þess-
um boðum, .er minnst sýnist um varða, og. hvetur aðra til
þess, hann mun minnstur kallast í himnaríki." Hvað þá þeir,
sem „leysa“ öll boðorðin í einu?
,,Unz það allt er orðið.“
En það sem fullkomlega tekur af öll tvímæli um réttan
skilning á Matt. 5, 18., er bœði hinn samkynja staður í Lúk.
16, 17: „en auðveldara er að himinn og jörð forgangi, en að
hið minnsta atriði af lögmálinu gangi úr gildi", og ekki síður
hitt að orðin „unz þvi öllu er fullnægt" eru röng þýðing, svo
að bygging síra Jóns á þessum orðum feliur um koll af sjálfu
sér. I frumtextanum stendur: éwc Sv xa-;~a yÍYqvxi, sem
er rétt útlagt „unz það verður allt (eða er oi’ðið)“, og ligg-
ur næst að skilja þau orð um hið síðasta takmarkj sem stjórn
guðs á heiminum stefnir að, þegar guð verður allt í öllu, og
þá ekki lengur þörf á skráðum lagabókstaf.
Ekki iil að „leysa“ — og strikar þó út.
■ í sama kapítula sem Kristur segir, að ekki hinn minnsti
bókstafur eða titill lögmálsins mundi líða undir lok, þangað
til himinn og jörð forgengur, stendur síðar með berum orðum
að liann afnomur að minnsta kosti eitt af þeim boðum, sem
forfeðrunum voru gefin. Gamla boðorðið var: ,,IJú skalt ekki
syerja rangan eið“; en Kristur segir: „Þér eigið öldungis ekki
að sverja“. Nú spyr síra J. H., hvernig þetta verði samrýmt
við það, að þangað til himinn og jörð liði undir lok muni ekki
hinn minnsti bókstafur eða titill liða undir lok. En þetta verð-
ur sama mótsögnin, þó bætt sé við orðunum: „Unz því öllu
er fullnægt1' og þau skilin eins rangt eins og hann vill; því
að á þeim tirna sem Kristur „strikar beinlínis út“ þetta boð-
orð, háfði hann enn eigi fullnægt öllu í vorn stað. Þetta verð-
ur mótsögn, óviðráðanleg og óleysanleg, einmitt þangað til það
er játað, að Kristur tali i Matt, 5, 17. 18. um lömálið í þrengri
r merkingu eða sérlegum skilningi (x.av’ sijo'/av) eða með
öðrum orðum: hin 10 boðorð. Það er því mótsögn fyiir síra
.1. H. og aðra þá, er halda því fram, að hin 10 boðorð séu
ekkert annað en fáort ágrip eða inntak af öllu lögmáli Mósesar