Fríkirkjan - 01.06.1900, Blaðsíða 10
90
Jíranjj iOcliíjsctí um vanírúarguðfrceðina.
í maínúmeri blaðsins „Yerði ljós!“ fer dócent síra Jón
Helgason meðal annars þessum orðum um þá nrenn, sem hann
kallar „andstæðinga hinna vísindalegu rannsókna gamla testa-
mentisins “:
„Nú hefur allt það, sem þessir menn hafa komið fram
með, öll þeirra röksemdaleiðsla, verið þoss eðlis, að hún ein-
vörðungu hefur sannað oss það, sem vér reyndar vorurn ekki
i neinurn vafa um áður, að þessa menn skortir allt vit og
alla þekkingu til þess að dæma um efni þau, sem hér ræðir
um, eða þeireru svo blindaðir af fordómum fyrri alda, að þeir
hvorki vilja né geta séð hið sanna og rétta í þessum efnum.
Þess vegna hefðum vér helzt af öllu leitt hjá oss allt fáfræðis-
raus þessara manna.“
Það er gömul aðferð, en ekki góð, að bregða nrótstöðu-
mönnum sínum um skort á viti og þekkingu. Slíkt er auðgjört
að visu, en harðla lítið sönnunargildi hefur það.
Vér getum nú í rauninni ekki tekið til vor það sem herra
dócentinn talar um „allt fáfræðisraus þessara manna.“ Yér
höfum hingað til ekki „rausað“ neitt um þessi efni, heldur
þvert á móti að mestu leyti leitt þau hjá oss, og að eins drepið
á þau með örfáurn orðum.
En vér tókum tvo greinarstúfa upp úr mjög rnerku lút-
ersku blaði, „The Workman", og prentuðum þá í desember-
númeri 1. árgangs blaðs vors. í þessum greinum var farið
hörðurn orðum um hinar nýjari biflíurannsóknir; en naumast
trúum vér því, að dócentinn þori að frádæma dr. Passavant,
þáverandi ritstjóra „The Workman", allt vit og þekkingu.
Nú skulum vér koma með n.okkur orð og ummæli, er
lúta að þessu efni, eptir mann, sem vér þykjumst fullvissir um
að dócentinum dettur ekki í hug að hafi verið „blindaður af
fordómunr fyni alda“ eða hafi skort „allt vit og þekkingu til
þess að dænra unr efni þau, senr lrér ræðir um.“ Unrmæli
þessi eru optir einn hinn allra mérkaéta af bifliufræðingum
síðustu tínra, prófessor dr. Fránz Delitzsch, í bók lrans, þeirri