Fríkirkjan - 01.07.1900, Blaðsíða 10
ÍOG
(hypothesev), og kannast hinir gætnari biflíufræðingar við það
fullum orðiun, að jafnvel þær getgátur, sem nú þykja senni-
legastar og öllum kemur saman um, kunni síðar að falla um
koll fyrir meiri og betri þekkingu. Prófessor Franz Delitzsch,
sem vér gátum um í síðasta blaði voru og var einn af hinum
allra merkustu biflíufræðingum nútíðaiinnar, talar um ásigkomu-
lag liinnar vísindalegu bifllíurannsóknar eins og óskapnað eða
ringulreið (chaos). Hann kveðst eigi dirfast að segja fyrir, hve
mikið af hinni núverandi biflíufræði muni verða uppistandandi
árið 2000; en hitt er hann sannfærður um, að hin helgu íit
gamla og nýja testamentisins séu og verði um aldur og æfi hin
eina áreiðanlega uppspretta sannrar guðsþekkingar.
„Verði ljós!“ hefur viljað slá því föstu í meðvitund íslend-
inga, að ritningin sé áreiðanleg í guðfræðislegum efnum eða
sáluhjálplegum, en í öðrum atriðum sé hún óáreiðanleg, svo
sem t. a. m. sögulegum og náttúrufræðislegum. Sumir hafa
nú haldið fram einmitt hinu gagnstæða, nl. að ritningin sé
áreiðanleg sem sögubók, en að því er snertir andleg efni sé
ekki meira að marka hina helgu rithöfunda, heldur enn guð-
fræðinga nú á dögum.
Mundi það ekki hafa verið réttast, á meðan hin vísinda-
lega biflíufræði er að vinsa sannleiksmolana úr óskapnaðinum
(chaos)*, að lofa íslendingum að hafa ritninguna í friði, sem
áreiðanlega bæði í sögulegum efnum og trúaratriðum ?
En úr því „Verði Ijós! “ fann sig knúð til að byrja að
„upplýsa" landa sína um skoðun sína og biflíufræðinganna,
þá er það skýlaus skylda þess að lialda áfram og koma með
sannanir þær, sem hingað til hefur vantað, eða þá að öðrum
kosti játa að ógætilega hafi verið af stað farið, að niðurstöður
biflíufræðinnar séu enn óáreiðanlegar, og að það eitt sé áreið-
anlegt að „ritningin getur ekki raskast.“
^nódus.
Hin venjulega prestastefna var haldin dagana 29. og 30.
júní mánaðar. Voru þar, auk stiptsyfirvaldanna, komnir saman
* Franz Delitzsch.