Fríkirkjan - 01.07.1900, Síða 12

Fríkirkjan - 01.07.1900, Síða 12
108 Það stingur allt of mikið í stúf, að heyra í kirkjunni talað um prestana sem „salt jarðar" og „ljós heimsins", og sjá þá síðan setjast á rökstóla til að — telja krónur. Prest- arnir eru saman fáar klukkustundir einu sinni á ári, til að ræða um málefni kirkjunnar, og þó er hnípt af þessum litla tíma, til að gjöra það, sem er ailsendis óþarft að komi nokk- um skapaðan hlut til kasta prestastefnunnar. Dæmalaust er það uppbyggilegt að byrja hverja prestastefnu á þessu krónu- umstangi, og dæmalaust eru knýjandi hin andlegu málefni kirkju þeirrar, sem gjörir — nei, sem ]>olir slíkt hneixli ár eptir ár af gömlum vana. Að þessu sinni var varið l1/^ klukkustund til að fjalla um þessi fjármál; eitthvað hefði víst mátt gjöra betra við þann tíma. Þá var heila klukkustund verið að ræða um kirkjugarða- frumvarpið, og minnti það átakanlega á orð frelsarans: „lát hina dauðu grafa sína dauðu, en far þú og flyt lærdóminn um guðs ríki.“ Lúk. 9, 60. Þessu næst hélt dócont Jón Helgason fyrirlestur sinn og var fyrirsögn hans og efni: Mósebækurnar í Ijósi v'tsindalegrar biflíurannsóknar. Upplesturinn var afar-langur, stóð yfir hartnær tvær klukkustundir. Auðvitað var lítið sem ekkert af þessum langa Jóns(bókar)lestri frá brjósti sjálfs hans; það var hin nýja bifllíufræði, sem talaði, með Welhausen í broddi fylkingar; að minnsta kosti nefndi lesarinn ekki annan biflíufræðing og kvað alla hina nýju biflíufræði við hann kennda. EnWelhausen þessi er forsprakki fyrir þeim flokki biflíurannsóknara, sem hinum gætnari þykir fara of langt og kalla neitandi (negativa), og munu orðin eptir Dr. Franz Delitzsch, þau er vér tilfærð- um í síðasta tölublaði, einmitt lúta að biflíurannsókn þessara manna. Biflíutrúuðum áheyrendum uppi á pöllunum gætum vér ímyndað oss að hefði komið til hugar, þegar þeir heyrðu, hvernig dócentinn tætti í sundur hinar lielgu bækur, að hon- um mundi þykja „betra illt að gjöra, enn ekki neitt.“ Yæntanlega birtist öll þessi sannuppbyggilega biflíufræði síðar á prenti. Alls engar umræður urðu um þennan fyrirlestur; enda var hann svo langur og þreytandi, að þess var ekki von, og hljóp þó dócentinn yfir mörg blöð af því, er hann hafði

x

Fríkirkjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fríkirkjan
https://timarit.is/publication/464

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.