Alþýðublað Hafnarfjarðar - 01.06.1978, Qupperneq 1
XXXVII
Alþýðublað
Hafnarfjarðar
JÚNI 1978_.
5.TBL.
Alþýðuflokkurinn vann góðan sigur í bæjar-
stjórnar kosningunum, bætti við sig 368 atkv.
og er nú næststærsti flokkurinn í bænum
Alþýðuflokkurinn skorti
aðeins fáein atkvæði til þess að
bæta við sig manni í bæjar-
stjórnarkosningunum. Flokk-
urinn bætti við sig 368 atkvæð-
um í kosningunum og bætti
við sig flestum atkvæðum allra
flokkanna. Alþýðuflokkurinn
hlaut 1274 atkvæði og tvo
menn kjörna, Alþýðubanda-
lagið hlaut 888 atkvæði en þeir
unnu einn af Sjálfstæðisflokk-
num, Félag óháðra borgara
fékk 1165 atkvæði og tvo menn
kjörna, Frasóknarfokkurinn
491 atkvæði og einn mann
kjörinn og Sjálfstæðisflokkur-
inn fékk 2153 atkvæði og fjóra
menn kjörna og töðuðu einum
ful'.trúa.
Fulltrúaráði Alþýðuflokks-
ins þótti eðlilegt að þeir flokk-
ar sem unnu á í kosningunum
hefðu forystu um myndun
meirihluta og því skrifaði
Alþýðuflokkurinn Alþýðu-
Bæjarfulltrúar og varabæjarfulltrúar Alþýðuflokksins næsta kjörtímabil.
1. Hörður Zóphaníasson,
skólastjóri.
bandalagi og Félagi Oháðra
borgara bréf og bauð upp á
viðræður um myndun meiri-
hluta. En óháðir neituðu við-
ræðum við þessa aðilia og
völdu fremur Sjálfstæðisflokk-
2. Jón Bergsson,
verkfræðingur.
inn til samstarfs.
Alþýðuflokkurinn harmar
að ekki hefur tekist að mynda
meirihluta í samræmi við
breyttan vilja bæjarbúa þar
sem Sjálfstæðisflokkurinn
3. Lárus Guðjónsson,
vélvirki.
tapaði miklu fylgi og óháðir
töpuðu einnig hlutfallsfylgi, en
þessir flokkar mynduðu meiri-
hluta fyrir kosningar.
Alþýðuflokkurinn vill þakka
stuðningsmönnum sínum fyrir
4. Grétar Þorleifsson,
trésmiður
það traust sem þeir sýndu
honum. Jafnframt þakkar
hann sérstaklega þeim
fjölmörgu sem störfuðu fyrir
hann í kosningabaráttunni.
Kjartan Jóhannsson:
Kjarasáttmáli milli verkalýðshreyfingar
og þeirra sem stjórna landinu.
Meirihlutinn
missti mann
en situr áfram
Óháðir og sjálfstæðis-
menn hafa ákveðið að að
halda áfram meirihluta-
samstarfi sínu í bæjar-
stjórn. Þó þessir sam-
starfsaðiljar hafi ekki enn
gert með sér málefnasam-
ning, þá eru þeir allavega
sammála um að starfa
saman hvað sem tautar og
raular og burt séð frá öllu
málefnalegu samkomu-
lagi. Þetta kom fram á
fyrsta bæjarstjórnarfundi
s.l. þriðjudag. Þar var
kjörið í bæjarráð og hlutu
kosningu Árni Gunn-
laugsson, Árni Grétar
Finnsson og Ægir Sigur-
steinsson, en kosið er í
bæjarráð til eins árs.
Álþýðuflokkurinn mun
kappkosta að gæta þess
að hagsmunamál bæjar-
búa verði ekki fyrir borð
borin og leggja að
mörkum allt sitt afl til
þess að veita framfara-
málum brautargengi.
\ u
\
Úrslit bcejar- og sveitarstjórn-
arkosninganna sýna að Al-
þýðuflokkurinn er ísókn. Þessi
sókn verður að halda áfram til
þess að koma núverandi ríkis-
stjórn frá völdum. Sóknin er
hafin en sigurinn er ekki unn-
inn fyrr en úrslit alþingiskosn-
inganna liggja fyrir.
Ýmsir bundu vonir við þessa
ríkisstjórn þegar hún var
mynduð. Þcer vonir þeirra hafa
brugðist. Ríkisstjórnin hefur
rúið sig öllu trausti með getu-
leysi og stjórnleysi. Hún hefur
engum tökum náð á lands-
stjórninni. Það skortir ekki orð
og fögur fyrirheit, en fram-
kvæmdinni fer minna fyrir. Nú
eru stjórnarflokkarnir meira
að segja farnir að boða sem
sérstök stefnumál sín ýmis þau
mál, sem þeirsinntu ekki.
Liðið kjörtímabil hefur
einkennst af óðaverðbólgu og
linnulausum árásum á lífskjör
vinnandi fólks. Árásirnar á
hfskjörin hafa tekið á sig tvœr
myndir. Annars vegar laga-
setningar og bráðabirgðarráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar og
hins vegar hafa þær birst í
rangri fjárfestingarstefnu.
Ríkisstjórnarflokkarnir
kunna engar aðrar leiðir en
ráðast á hfskjör vinnandi
fólks, þegar vandamálin
hrannast upp sem afleiðing af
margra ára óstjórn þeirra sjálf-
ra. Þeir munu feta sömu
brautina áfram, ef þeir fá að
ráða ferðinni. Enginn
launamaður getur treyst þess-
um flokkum. Þeirra orð eru
marklaus. Þeir lögðu blessun
sína yfir launasamningana í
júní. Þeir gerðu sjálfir samn-
inga við opinbera starfsmenn í
nóvember. Báðum þessum
samningum riftu þeir ífebrúar.
Enginn launamaður getur
samið við þá til fjögurra ára
með því að greiða þeim
atkvæði sitt.
Hin ranga fjárfestingar-
stefna var kórónuð með Ktöf-
luœvintýrinu. í því naut ríkis-
stjórnin dyggilega stuðnings
Alþýðubandalagsins. Sama
ábyrgðarleysið hefur komið
fram í árvissum yfirboðum
Alþýðubandalagsins í
ríkisframkvæmdum. Sannleik-
urinn ersá, að ábyrgðarleysi og
ævintýramennska af þessu tagi
er það sem við megum síst við.
Þau eru líka kauprán, því að
með því eru lagðar byrðar á
okkur öll, hvert og eitt okkar.
í komandi kosningum
verður tekist á um það, hvort
ríkisstjórnarflokkarnir eiga
áfram að fá að fylgja leið kjar-
askerðingar og samningsrofa. í
þeim kosningum verður líka
tekist á um það, hvort hér eigi
áfram að ríkja yfirboðs- og
œvintýrapólitík Kröfluflokk-
anna þriggja. — Alþýðuflokk-
urinn sker sig frá þessum
flokkum. Hann boðar ger-
breytta efnahagsstefnu og
kjarasáttmála milli verkalýðs-
hreyfingar og þeirra sem
stjórna landinu. Hann einn
hefur mótmælt glæfraspili og
duldu kaupráni Kröfluævin-
týris og annarra yfirboða ífjár-
festingu. Eina ráðið til þess að
stöðva bæði kauprán samn-
ingsrofa og kauprán fjárfest-
ingarvitleysunnar er að styðja
Alþýðuflokkinn.
Alþýðuflokkurinn er í sókn.
Sú sókn þarf að ná því marki
að Alþýðuflokkurinn nái for-
ystuhlutverki á launþegaarmi
íslenzkra stjórnmála. Þá fá
ríkisstjórnarflokkarnir þá ráð-
ningu sem þeir eiga að fá
einungis þannig verður hrund-
ið ábyrgðarleysi Alþýðubanda-
lagsins. Alþýðuflokkurinn er
eina raunverulega mótvægið
við Alþýðubandalagið.
Alþýðuflokkurinn byggir á
nýjum viðhorfum, nýjum
vinnubrögðum og endur-
nýjaðri stefnumótun. Hann er
nýr flokkur á gömlum grunni.
Það eru þessi nýju viðhorf sem
til þarf í íslenzkum stjórnmál-
um til þess að rífa efnahags-
framhald á bls. 2