Ljós og sannleikur - 01.09.1919, Page 3

Ljós og sannleikur - 01.09.1919, Page 3
Ljós og sannleikur 5i lífi, að vér séum ekki fæddir af Guði fyr en vér erum algerlega helgaðir, og ýmsu i'leiru í kenningum þeirra erum vér mót- íallnir. 9. Drottinn segir: „Hjúskapurinn sé í heiðri hafður i öllum greinum, og hjóna- sængin sé óflekkuð og vér höldum því fast fram, að sérstakt samband sé milli manns og lconu, sem er algerlega heimulegt sam- kvæmt Guðs orði, og að enginn hafi rétt til að rannsaka þann heilaga leyndardóm. (Heb. 13:4; 1. Kor. 7:1—5.). 10. Ekkert eftirfarandi þirkjuþing hefir vald til að breyta grundvallarreglunum fyr en fyrirliugaðar breytingar hafa verið born- ar undir hvci’ja kirkjudeild, og þá hlotið meiri hluta atkvæða. 2. gr. Vatnsskírn. Vér trúum þvi, að niðurdýfingarskírn sé hin biblíulega aðferð. (Matth. 3 : 13—16). 3. gr. Hin heiíaga kvöldmáltíð. Hin heilaga kvöldmáltíð er sakramenti endurlausnar vorrar fyrir dauða Krists. pað bendir okkur á krossinn, og endurkomu Jcsú, hversu blóð hans hreinsar oss af allri synd og býr oss undir hans blessuðu endur- komu. Konur sem karlar skulu taka þátt í hinni heilögu kvöldmáltíð, og að eins óáfengt vín notað. Drottins borð á að vera opið öllum, sem elska hann, og öll Guðs börn skulu vera vel- komin þangað, til að minnast dauða hins sameiginlega frelsara sins og Drottins. í lok guðsþjónustu eða biblíulesturs, eða á hvaða tíma, sem álitinn er hentugur, getur presturinn með djákna og viðstöddum safn- aðarmeðlimum, notið heilagrar kvöldmál- tíðar við borðið, og sé þá lesin bæn. Almennar reglur. 1. Enginn getur orðið meðlimur í þessari kirkju, sem ekki er algerlega samdóma kenningum hennar, eins og þær eru birt- ar í grundvallarreglunum. 2. Hann verður einnig að gefa fullnægj- andi sönnun, fyrir utan sinn eigin vitnis- burð, um það, að hann sé endurfæddur, rétt- lættur, sé að leita helgunar, og þrái innilega hvítasunnuskírn heilags anda. 3. Samkvæmt þessum játningum skulu allir þeir, er með oss eru, hafa Guðs orð sem reglu fyrir hegðun sinni, halda sér við þess einföldu kenningu bæði leynt og ljóst í dag- legu lifi sínu, og í samtali við aðra. (Gal. 6 :16.). 4. Oss er boðið i Guðs orði að ganga ekki undir ósamkynja ok með vantrúuðum, og eiga þvi engan lilut i verkum myrlcursins, þvi viljum vér forðast eiðbundin leynifélög, félagsldúbba og spilta stjórnmálaflokka. (2. Kor. 6:14; Ef. 5:11.). Vér viljum ekki hegða oss eftir öld þessari. (Róm. 12 : 2.). Farið burt frá þeim og skiljið yður frá þeim, segir Drottinn. (2. Ivor. 6 : 17.). Og snú þér burt frá slikum, þvi að þeir hafa á sér yfir- skyn guðhræðslunnar, en afneita krafti hennar. (2. Tím. 3:5.). Vér viljum hreins- ast frá saurgun holdsins og andans (2. Kor. 7 :1.), livorki nota, rækta, selja né hand- leika tóbak í nokkurri mynd. Sama gildir um morfin og áfengi. Vér viljum engan ljótan munnsöfnuð, heimskuhjal eða gár- ungaslcap, vér viljum halda oss frá sérhverri mynd hins illa. (1. pess. 5 : 22); og gera alt sem vér gerum Guði til dýrðar i nafni Jesú Krists. (Kól. 3 : 17; Kor. 10 : 31.). Vér vilj- um ekki bera neitt ytra skraut, svo sem gim- steina, gull, fjaðrir, blóm, dýran fatnað eða glys af nokkurri tegund. (1. Tím. 2 : 9; 1. Pét. 3:3.). pess er krafist af öllum meðlim- um vorum, að þeir breyti algerlega eftir þessum boðum ritningarinnar, og skilji sig við alt sem ekki miðar að þvi, að helga vort mannlega eðli og efla Guðs dýrð. 5. pess er og krafist af meðlimum vor- um, að þeir lialdi Drottins dag, sunnudag- inn, heÚagan, samkvæmt hinum óræku sönnunum, er Drottinn Jesús sjálfur og all- ir hans heilögu postular hafa gefið. Á fyrsta degi vikunnar reis Jesús upp frá dauðum (Matth. 28 : 1.). Á fyrsta degi vikunnar birt- ist hann lærisveinum sínum, er dyrum hafði verið lokað. (Jóh. 20 : 19.). Og í annað sinn (Jóh. 20 :26.). Á fyrsta degi vikunnar úthelti Drottinn heilögum anda yfir postula sína (Post. 2:1—4). Á fyrsta degi vikunnarkomu

x

Ljós og sannleikur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.