Ljós og sannleikur - 01.09.1919, Page 4

Ljós og sannleikur - 01.09.1919, Page 4
52 Ljós og sannleikur þeir saman til aö brjóta brauðið (Post. 20 : 7.). Og margar fleiri sannanir úr Guðs orði væri hægt að tilfæra, um það, að sunnudag- urinn er hinn ákveðni Drottins dagm: i hans kirkju. 6. þess er og krafist, að þeir forðist að minnast á yfirsjónir nokkurs fjarverandi manns, og skulu þeir ekki einu sinni hlusta á þá er það gera, nema það sé óhjákvæmi- legt vegna Guðs dýrðar og góðs málefnis, og til að styðja að heill þess manns, er í hlut á. 7. pess er krafist af öllum meðlimum vorum, að þeir séu fyrirmynd i hófsemi, iðjusemi, trúmensku og ástúð, taki á sig krossinn daglega, að þeir séu stöðugt sann- ir og trúir og sýni i öllu, að þeir séu skírðir af heilögum anda. 8. pað er og slcylda vor, að nota hvert við- eigandi tækifæri, jafnvel þó að það kosti oss lifið, til að vitna um það, sem Drottinn hef- ir gert fyrir oss, sérstaklega um helgunina, guðlega lækningu og skírn heilags anda og elds. Forsjón Guðs. Dæmisaga. pað var ekkja, sem sat við sjúkrabeð son- ar síns. Hún hafði vakað yfir honum marg- ar nætur, og var nú orðin örmagna af þreytu. En vonin um það, að elsku litli drengurinn hennar lifði, gaf henni meira þrek. Hún bað til Guðs fyrir honum, en henni virtist Guð ekki ætla að gefa bænum hennar mikinn gaum. Drengnum versnaði æ meir og meir, og svo fór að lokum, að hann lagði augun aft- ur í síðasta sinn. Móðirin grét lengi, lengi, missi drengsins síns. Hún ásakaði Guð fyrir óréttlæti og miskunnarleysi, fyrir það, að taka eina drenginn hennar burtu, eina barnið sem hún átti; og með þvi dóu allar framtiðarvonir hennar. Allar fögru hugsjónirnar, sem vak- að höfðu fyrir henni, dóu nú út með drengn- um hennar. Henni virtist alt ókleift, og það, sem henni fanst verst af öllu, var það, að henni virtist Guð hafa gleymt sér. Hvað hafði hún brotið fremur öðrum, svo að hún verðskuldaði þetta? Hvernig gat Guð verið algóður, og taka frá henni einu framtíðar- vonina hennar, harnið hennar, sem hún elsk- aði svo heitt? Nei, hún skildi ekkert í þessu; alt var ókleift, öll sund lokuð. pannig rak hver hugsunin aðra hjá henni, þangað til að svefninn flutti hana inn í land draumanna. Ekkjan sér að kona ein kennir inn. Ilún var fögur ásýndum, og Ijómi skein af á- sjónu hennar. Konan ávarpar hana og segir: — „Fylg mér.“ það var eins og eitthvert ómótstæðilegt afl knýi ekkjuna áfram, því hún reis þeg- ar á fætur, og gekk út með konunni. „Hvert á eg að fara með þér?“ spurði ekkjan. „Yiltu fá barnið þitt aftur?“ spurði konan. „Eg vildi gefa alt, sem eg á, ef eg gæti fengið það aftur.“ Hugsða þig vel um; þú veist ekki Iivers þú óskar núna. En þú skalt fá að velja.“ „pökk! þökk! hrópaði ekkjan. Hún var alveg utan við sig af fögnuði. „Ef eg vissi hvernig eg ætti að þakka þér þetta.“ „þú átt ekki að þalcka mér, heldur föð- urnum; frá honum koma allar góðar gjaf- ir, og það er hann, sem stjórnar og ræður öllu. — Viltu fylgja mér?“ „Já, þó eg ætti að fara heiminn á enda, ef eg fengi barnið mitt aftur, þá vildi eg gera það.“ pær lyftust nú upp, og liðu áfram í loft- inu, þar til þær komu að háu fjalli. Á fjall- inu stóð höll, afarstór. Umhverfis liana var liár múrveggur. pær svifu nú inn fyrir múrinn, og sást þá að eins upp í heiðan himininn. „Hvar erum við nú?“ spurði ekkjan. „Ertu lirædd að fylgja mér?“ „Nei; en getur barnið mitt verið hér?“ „þú hefir rétt fyrir þér, það er ekki hér, en við höfum erindi hingað.“ þær gengu nú inn i höllina, og komu í af- arstóran, ferhyrndan sal. 1 miðjum salnum

x

Ljós og sannleikur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.