Ljós og sannleikur - 01.11.1919, Blaðsíða 2

Ljós og sannleikur - 01.11.1919, Blaðsíða 2
66 Liós og sannleikur TAKIÐ EFTIR! Aðalútsala blaðsins í Reykjavík er áLauga. veg 20 B, sími 322, og i Bókaverslun Theo- dórs Árnasonar, Austurstræti 17; i Hafnar- firði í Bókaverslun Friðriks Hafberg, sími 33. Einnig fæst nú blaðið „Ljós og sannleik- ur“ í flestum kauptúnum kringum land alt. „Það sem eg hefi, það gef eg þér.“ pað eitt, sem einhver hefir og á i raun og veru, getur hann gefið. Mynd af eldi vermir ekki, og dygð, sem ekki er nema lík- ing ein, glæðir eigi dygðir hjá öðrum. Hafi einhver peninga, þá getur hann gefið þá. Sá, sem hefir sannleikann getur miðlað öðrum áf honum; hið sama getur sá, sem á hug- prýði, von, kærleika og góðvild i sálu sinni. Ef einhver er sterkur, þá getur hann beitt kröftum sínrnn fyrir aðra. „Að vera“ fer á- valt á undan að „gjöra“ í málfræði kristin- dómsins. pað er erfitt að lyfta öðrum hærra en vér stöndum sjálfir. Ef einhver er sjálfur fullur úlfúðar, efasemda, haturs eða illra ástríðna, þá hefir hann ekki öðru að miðla þeim, sem með honum eru; slíkur maður getur engan veginn auðsýnt öðrum þau gæði, sem hann hefir ekki sjálfur. pví er það mað- urinn, sem á bak við stendur, sem mestu varðar í allri kenslu og prédikun. Köld kenn- ing getur eigi vermt iðrunarlausa menn, svo að þeir lifni við. Vér getum eigi kveikt eld i brjóstum annara, nema vér séum sjálfir eldheitir í anda. Hér rætist hið fornkveðna: „Brandur af brandi brennur og funi af funa.“ Biðjum því eins og skáldið: „Leið þú mig Drottinn, að leitt eg geti þreytta vegfara á vegum lífsins; seð þú mig, Drottinn. að satt eg geti hungraða menn á himinbrauði; styrktu mig, að eg standi fast á bjarginu og báðar hendur rétti í kærleiks-krafti þínum, þeim, sem ólögin yfir ríða.“ — Postulinn Pétur gaf halta manninum tvent sem var miklu meira vert en silfur og gull. Hann gaf honum þrótt til að sjá fyrir sér sjálfur. ]?að var hvorki ávaxtalcarfa né ávaxtatré. pað er að öllum jafnaði talin haldkvæmasta aðferðin til að auðsýna öðr- um kærleika, þegar þeir biða eftir starfi sér til atvinnu. Síðan gaf Pétur honum annað, sem var miklu æðri gjöf — hann leiddi hann til Drottins Jesú Krists, leiddi liann inn í líf og starf kristinna manna. pegar Jesús læknaði sjálfur, gaf hann ávalt þessa æðri blessun með hinni lægri. Hann gerði ávalt meira en það að lækna líkamann. pað var ávalt hinn minni þáttur lækningarinnar. Hann spurði sjúklinginn ávalt, hvort hann tryði, og gerði alt sem hann gat, til að tendra trú hjá hon- um. Heimskur er sá, sem vill bjarga öðrum, en kveður sér eigi til aðstoðar þann kraft- inn, sem mestur er, og það er kraftur trú- arinnar. Postularnir voru á leið til að gegna öðr- um skylduverkum, þegar þetta tækifæri barst þeim að höndum. Margar hinar nyt- sömustu stundir i lífi voru berast oss að höndmn á sama hátt. Ferskjutré spruttu upp í röðum meðfram vegi, þar sem hermenn höfðu gengið og fleygt steinum úr ferskj- um, sem þeir voru að eta. pegar myndastytt- ur Thorvaldsens, liins fræga myndhöggvara, voru fluttar heim frá Rómaborg, þá fluttust frækorn í hálminum, sem troðið var i kring mn þær og þau frækom urðu að nýjum blómum, sem nú skreyta aldingarðana í Kaupmannahöfn. Yér eigum ávalt að hafa vakandi auga á tækifærunum við veginn, til að gera það, sem gott er. Pétur tók i liægri hönd halta mannsins og reisti liann á fætur. pegar það er kraftur trúarinnar, sem læknar, þá þarf eigi og á eigi að vanrækja annað, sem reynslan sýn- ir, að orðið geti til heilsubótar; trúarkraft- urinn á að vera því til uppfyllingar. „Eigum vér að fela Alla (Drotni) úlfaldana vora í lcvöld?“ sagði sveinn Múhameðs við hann, þegar þeir voru að tjalda á graseyju nokk- urri i eyðimörkinni. „Já,“ svaraði spámaður- inn, „en bittu þá fyrst.“ Pétur gerði einmitt hið sama fyrir halta manninn, með krafti hins lifandi frelsara,

x

Ljós og sannleikur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.