Ljós og sannleikur - 01.11.1919, Page 7

Ljós og sannleikur - 01.11.1919, Page 7
Ljós og sannleikur 71 fóta minna og ljós á veguin mínum; hann lýsir mér í myrkrinu og eg hlakka til komu hans, sem segir: Eg kem skjótt! Haltu fast því, sem þú hefir, svo enginn taki frá þér kórónu þína. Op. 3, 11. Hann er stjarnan, skínandi morgunstjarnan; hann er mín sól og skjöldur og mitt eilíft ljós og geisl- andi röðull; liann er skapari minn, frelsari og huggari; hann er hið lifandi brauð, sem kom niður af himnuin, mitt blessaða lífsins brauð, minn fögnuður og gleði, því að Guð kom í holdinu og dó fyrir syndir vorar eft- ir ritningunum og er grafinn og upprisinn á þriðja degi eftir ritningunum, 1. Kor. 15., og steig up til liimna og hefir sent sinn góða lieilaga anda til að leiða oss inn í allan sann- leikann. Honum sé dýrð um aldir alda. — Amen. Heimilisguðrækni. Frumkvöðlar heimilisguðrækninnar voru þeir Oddur biskup Einarsson og ]?orlákur biskup Skúlason, einkum hinn síðarnefndi. porlákur blskup þýddi „Hugvekjur Ger- hards“ úr þýsku til húslestra. pæf voru 50 alls, gefnar út 1630 fyrsta sinni. Seinna fékk hann séra Sigurð Jónsson í Presthólum til að snúa þeim í jafnmarga sáhna. ]?eir sálm- ar voru prentaðir í Messusöngsbókum, bæði allir (í „Flokkabókinni“ eða „Höfuðgreina- bókinni“), og síðan ágrip af þeim í siðari sálmabókum og enn eru þeir eigi með öllu úr sögunni. Seinna þýddi hann og gal’ út „Daglega iðkun guðrækninnar“ í fjórum pörtum og 16 kapitulum. Síra Sigurður orti lika jafn- marga sálma út af þeírri bók, og voru þeir sungnir fram á ofanverða 17. öld og prent- aðir 1 sálmabókum. Nú eru þeir alveg úr sögunni. pessi bæklingur átti að vera bænabók handa fáfróðum almúga eða einfeldningun- mn; áttu þeir að lesa og biðja þær bænir daglega, liann átti að vekja hjörtu þeirra til sannarlegrar guðrækni og bænariðju. Bænar-efnin voru fjögur að tölu: 1. Syndajátning og fyrirgefningarbænir og bænir um varðveislu fyrir freistingum; í 10 kapítulum. 2. paltkarbænir til guðs fyrir velgjörðir hans; í 15 kapítulum. 3. Bænir fyrir sjálfum oss, í 14 kapítul- um. 4 Bænir fyrir náunganum í 7 kapítulum. Út af þessari bænabók spruttu svo smám saman fjöldinn allur af sérstökum bæna- bókum og bænarsálmum, svo sem vikubæn- ir og vikusáhnar. Himilisguðræknin varð einhver öflugasti þáttur í heimilislífinu á þrauta-árum þjóð- arinnar. Til konungsins var jafnað leitað um all- ar nýjungar í andlegum málum, og eins var með heimilisguðræknina. Kristján hinn IV. Danakonungur gefur út fyrirskipanir um „daglegar bænastundir“ á hverju heimili, 28. janúar 1630, sama árið og Gerhards-hugvekjur voru gefnar út.. Kraftur af hæðum. í bænum Jeannette, skamt fyrir austan borgina Pittsburg í Pennsilvaníu i Banda- ríkjunum, voru blessunarríkar samkomur haldnar fyrir skemstu. Bæjarbúar eru 16 þúsund og er bærinn í miklum uppgangi. Á samkomunum úthelti Guð rikuglega anda sínum yfir leitandi og hungrandi sál- ir. Presturinn, sem hélt samkomurnar, lieit- ir Ben Mahan; starfi hans hefir fylgt sér- stök blessun Drottins. Andi Drottins kveikti líf í söfnuðnum og margir þeir, sem áður höfðu gefist Guði, þráðu meiri fræðslu og skilning, og meiri kraft og innilegra sam- félag við Guð. Og Guð er sannorður, liann lét þá eigi huggunarlausa frá sér fara; fyrir- lieitin hans rættust á þeim. Margir voru slcírðir af lieilögum anda, eins og á hvíta- sunnudeginum fyrsta. Post. 2, 4. Nú er söfnuðurinn nýbúinn að kaupa sér kirkjuhús fyrir 6000 dali, og er nú þegar búið að safna 4700 dölum af þeirri upphæð.

x

Ljós og sannleikur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljós og sannleikur
https://timarit.is/publication/479

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.